Vísir - 25.11.1975, Blaðsíða 17
VISIR Þriðjudagur 25. nóvember 1975.
17
ÍJAB I DAG I í KVÖLP | I PAG |
Sjónvarp ki. 22.15:
„Þjóðarbúið nónast eins
illa leikið og ísland"
„lltan úr heimi" ú dagskrú
„Utan úr heimi” er á dagskrá
sjónvarpsins i kvöld. Umsjónar-
maður er Jón Hákon Magnús-
son.
Fjallað verður um styrjöldina
i Angóla sem nú magnast með
hverjum deginum.
Þá verður rætt við Magnús
Torfa Ólafsson sem er nýkom-
inn heim frá þingi Sameinuðu
þjóðanna. Jón Hákon ræðir við
hann um það sem fram kom á
þinginu.
Loks verður svo sýnd frétta-
mynd frá Egyptalandi um efna-
hagsuppbygginguna sem þar er
að fara i gang eftir allt það sem
á undan er gengið.
0
„Þar er þjóðarbúið nánast
eins illa leikið og ísland”, sagði
Jón Hákon. „Munurinn er bara
sá að við eigum i striði við
breta.”
— EA
Útvarp kl. 20.50:
„ÞAÐ HLJÓTA EIN-
HVERJIR AÐ HLUSTA,
FYRST VIÐ FÁUM
SVONA MÖRG BRÉF"
„Jú, það hljóta einhverjir að
hlusta á þáttinn, fyrst við fáum
svona mikið af bréfum”, sagði
Guðmundur Arni Stefánsson
umsjónarmaður þáttarins „Frá
ýmsum hliðum”.
Geysimikið af bréfum berst til
þáttarins, og sérstaklega mikið
eftir þann siðasta.
1 kvöld verður starf
hjúkrunarkonunnar kynnt, og
einnig starf matsveinsins.
Spjallað verður við Ingigerði-
ólafsdóttur sem er á fjórða ári i
námi i hjúkrun og Jón Sigurðs-
son sem er nýútskrifaður i
hjúkrun og farinn að starfa.
Þá verður rætt við Frimann
Sveinsson sem er að ljúka námi
i Hótel- og veitingaskólanum,
um starf matsveinsins.
Flosi ólafsson leikari les úr
„Bjargvættur úr grasinu” sem
hann hefur þýtt sjálfur. „Þetta
er mjög gott hjá Flosa”, sagði
Guðmundur Arni. „Ha'nn nær
þarna hugsunum unglingsins og
notkun hans á ýmsum orðum
mjög vel.”
Þá er komið að „ungu afreks-
fólki”. Að þessu sinni er það 16
ára stúlka, Emma Magnúsdótt-
ir, sem er Islandsmeistari i fim-
leikum i sinum aldursflokki.
Siðan er það leynigesturinn,
lesið verður úr bréfum, og
ungur vélhjólapiltur ver vél-
hjólamenninguna sem svo
margir ráðast á.
— EA
Flosi ólafsson les úr „Bjarg-
vættur úr grasinu” i þættinum
„Frá ýmsum hliðum” í kvöld.
Starf matsveinsins verður meðal annars kynnt.
ií« Ástin og miðillinn,
rúmið og skólapiltarnir
„Astin og miðiilinn”, Astin og rúmið” og „Astin
og skólapiltarnir”. Þetta eru heiti myndanna sem
sýndar verða ikvöld i myndaflokknum „Svona er
ástin”.
Fyrsta myndin segir frá karli nokkrum sem
orðinn er ekkill. Hann leitar til miðils sem ei;
kona, til þess að ná sambandi við hina látnu
eiginkonu.
Þetta verður þó allt til þess að miðillinn verður
ástfanginn af karlinum, og það er allpinleg að-
staða þegar karlspyr konusina i gegnum miðilinn
hvort hann megi gifta sig aftur....
„I „Ástinni ogrúmið” fylgjumstvið með pilti og
stúlku sem leigja ibúð hlið við hlið. Húsvörðurinn i
húsinu ætlar að fleygja járnrúmi sem hann hefur
átt, en stúlkan vill kaupa það, og húsvörðurinn
samþykkir það.
En um svipað leyti kaupir pilturinn rúmið af
eiginkonu húsvarðarins. Hjónin höfðu ekki ætlað
að segja hvort öðru frá sölunni, svo nú er ástandið
alvarlegt.
Siðasta myndin heitir svo „Astin og skólapilt-
arnir”. Menntaskólastrákar eru að grobba sig af
sigrum sinum á veitingahúsi, og leiðir það til þess,
að einn piltanna býður afgreiðslustúlku á veit-
ingahúsi út. En hún er nokkuð eldri en þeir, svo
þeim finnst hún eiginlega hundgömul...
^ — EA
— Ég er nú bara með hann á leigu, en kannski
fær ég rikisábyrgð seinna til að kaupa hann.
| lÍTVARP •
14.30 Vettvangur. Umsjón:
Sigmar B. Hauksson. 1 ni-
unda þætti er fjallað um si-
brot.
15.00 Miðdegistónleikar: is-
lensk tónlist.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatiminn. Finn-
borg Scheving fóstra sér um
timann.
17.00 Lagið mitt. Berglind
Bjarnadóttir sér um óska-
lagaþátt fyrir börn yngri en
tólf ára.
17.30 Framburðarkennsla i
spænsku og þýsku.
17.50 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki, Til-
kynningar.
19.35 Menntun islen.skra
kvenna. Guðmnndur Jósa-
fatsson frá Brandsstöðum
flytur erindi.
20.00 Lög unga fólksins.
Ragnheiður Drifa Stein-
þórsdóttir kynnir.
20.50 Frá ýmsum hliðum.
Guðmundur Arni Stefáns-
son sér um þátt fyrir ung-
linga. Þorvaldur Jón
Viktorsson aðstoðar.
21.30 „Eins og harpa er hjarta
mannsins”. Þorsteinn
- Hannesson les úr ljóöaþýð-
ingum Magnúsar Asgeirs-
sonar og flytur nokkur
kynningarorð.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Kjarval” eftir Thor
Vilhjálmsson. Höfundur les
(18).
22.40 Harmonikulög. Leo
Aquino leikur lög eftir Fros-
ini.
23.00 A hljóðbergi.,,The Play-
boy of the Western World”.
Gamanleikur i þremur þátt-
um eftir John Millington
Synge. Með aðalhlutverkin
fara: Cýril Cusack og
Siobhan McKenna. Fyrri
hluti.
23.50 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
SJÓNVARP •
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.40 Skólamál. Þáttur um
tónmenntakennslu. Rætt er
við Herdisi Oddsdóttur, Njál
Sigurðsson og Stefán Edel-
stein. Sýnd dæmi úr kennslu
i fyrsta, fjórða og áttunda
bekk. Auk þess syngur kór
Hvassaleitisskóla. Umsjón
Helgi Jónasson fræðslu-
stjóri. Stjórn upptöku Sig-
urður Sverrir Pálsson.
21.15 Svona er ástin. Banda-
risk gamanmyndasyrpa.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.15 Utan úr heimi. Þáttur
um erlend málefni ofarlega
á baugi. Umsjónarmaður
Jón Hákon Magnússón.
22.50 Dagskrárlok.
Nýir
snjóhjólbarðar
Hollenskir
heilsólaðir
snjóhjólbarðar
BORGARTÚNI 24
.HJDLBflRDASALflH
- SÍMI 14925 - PÓSTHÓLF 5169
pycstur með
fréttimar
vism