Vísir - 25.11.1975, Page 20

Vísir - 25.11.1975, Page 20
h<ŒN<z n-a lapjJDtt <ZQgmoi 'QZO EQtr- u.œuido- j--ux tí j<*- 20 Þriðjudagur 25. nóvember 1975. VISIR illBS Spáin gildir fyrir miðvikudaginn 26. nóvember: E2 Hrúturinn 21. mars—20. apríl: Þú gerir einhverjum mikinn greiða og endurgjaldið kemur þér ánægjulega á óvart. Reyndu að komastfyrir vandamálin áður en þau vax,a þér yfir höfuð. Þú mættir spara meira. Nautið 21. apríl—21. mai: Tilfinningalegt álag er of mikið, reyndu að létta á vinnunni og taka hlutina ekki of nærri þér. Krakk- arnir eru eitthvað að bralla og betra að hafa auga með þeim. Allar fjárfestingar eru varhuga- verðar. m Tviburarnir 22. mai—21. júni: Fjórðungstunglið hefur áhrif á fjölskyldulífið. Hlúðu að heimil- inu og fjölskyldunni. Láttu ekki reka á reiðanum. Forðastu allar áhættur. Krabbinn 21. júní—23. júlí: Vertu varkár f viðræðum við aðra og reyndu að festast ekki um of i smáatriðum. Sýndu nágrönnum þfnum tillitssemi. Þeir eru vel þess virði að þú kynnist þeim nánar. Ljóniö 24. júli—23. ágúst: Ahrif fjórðungstunglsins ger- breyta þeirri mynd sem þú hefur gert þér um ástand peningamál- anna hjá þér. Hafðu augun opin fyriröllum mögulegum leiðum til að afla peninga ef þú þyrftir á þvi að halda. En allt gróðabrall er varasamt. Meyjan 24. ágúst—23. sept.: Aðdráttarafl þitt á hitt kynið er ótrúlega mikið og þú stofnar til sambands sem annaðhvort er mjög innilegteða alveg fáranlegt. Láttu ekki blanda þér i neitt sem þér er á móti skapi. Vogin 24. sept.—23. okt.: Það verður eitthvað til að ergja þig eða valda- þér litilsháttar áhyggjum. Gerðu ekki úlfalda úr mýflugu, þótt á móti blási. Lyftu þér upp i kvöld. Drekinn _________ 24. okt.—22. nóv.: Fyrri hluta dags kemur upp vandamál varðandi vin þinn eða ættingja. Vertu ekki of nærgöng- ull i aðfinnslum þinum við aðra. Vertu sannsögull. Bogmaöurinn 23. nóv.—21. des.: Það er full ástæða til að endur- meta allt er viðkemur starfi og námi. Reyndu að fylgjast með öll- um nýjungum á þfnu starfssviði. Þú hefur eignast keppinaut. Steingeitin 22. des.—20. jan.: Sjálfbyrgingsháttur er ekki fall- inn til frama, athugaðu hvort sannfæring þin er á rökum reist. Það gæti verið ráðlegt að endur- skoða lífsskoðun sina, kannski ertu langt á eftir þróuninni. Vatnsberinn 21. jan.—19. febr.: Þú kemst að farsælu samkomu- lagi hvað snertir fjármál eða samninga af öðru tagi. Sestu niður og ræddu hlutina áður en þú tekur bindandi ákvörðun. Fiskarnir ________ 20. febr.—20. mars: Fjórðungstunglið varpar nýju ljósi á vandamál sem þú átt við að glima i hjónabandinu eða ásta- sambandi.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.