Vísir - 25.11.1975, Page 24
4 -•
VÍSIR
Þriðjudagur 25. nóvember 1975.
Bréfið
kom 8
árum of
seint...
Fvrir nokkru var borið i hús
eitt liér i borg bréf frú lyf-
læknisdeild Borgarspitalans.
\ unislagið var ritað nafn við-
takanda scm átt lial'ði við
lijarlasjnjidóm að striða.
i umslaginu var spurninga-
listi undirritaður al' |>reinur
læknuin og maðurinn beðinn
aðsvara þessum spurningum,
sem munu vera liður i
rannsókn eða eftirliti meö
lijartasjúklingum.
Kiginkona inannsins opnaði
brél'in og brá i brún. Maðurinn
lést úr kransæðrastiflu fyrir
álta árum.
Útifundur ó
fimmtudag
Skora á fólk að
taka sér frí
Sa m s tarI'sn efiidin um
Iriðuin landlielginnar liefur
samþykkt að skora á fólk að
laka sér fri næsta fimmtudag
t í I þess að inólmæia
sa m n in gsuppkás tinu við
Veslur Þjóövcrja, sagöi Pétur
i.uðjoiissoii, formaður Sam-
starfsiiefndarinnar i samtali
við Visi i morgun.
Kinnig veröur boðað til úti-
liimlar i Iteykjavik sama dag
kl. 2.
-KKG.
„Ekki beðið um
lögregluvernd,#
..Við liölum ekki beðið um
neina lögregluvernd við liús
breska sendiráðsins,” sagði
Hrian llolt ræðismaður er Visir
lialði samband við hann i morg-
iiii.
1 siðasta þorskastriði var
nokkrum sinnum hafður lög-
regluvörður um hús sendiráðs-
ins vegna ótta um að aðsúgur
yrði gerður að þeim.
,,Við fengum ýmislegt að
heyrd .þegar þorskastriðið stóð
yfir”, sagði Brian Holt, „en nú
hefur ekki borið á neinu”.
íslenska sendiráðið i London
l'ékk tvö bréf i gær, með
sprengjuhótunum. Talið er að
sami maður hafi skrifað þau.
Schotland Yard rannsakar mál-
ið.
— ÓH.
Hagkaup eignast
rœkjuvinnslu
Veislunin liagkaup eykur
nú enn umsvif sin, þar sem
eigandi liennar, Pálmi Jóns-
son, lieíur nú fest kaup á
lækjiiviiinslu i Kópavogi og
verður búsnæðið notað undir
kjötviniislu.
Að sögn Birgir Steinþórs-
sonar hjá Hagkaup er ástæðan
fyrir þessum húsnæðiskaup-
um þrengsli i verslunar-
húsnæðinu i -Skeifunni þar
sem unnið hefur verið að
niöursögun og tilreiðslu kjöt-
vara.
Unniö er að undirbúningi
fyrir vinnsluria i hinu nýja
húsnæði, en hún mun eingöngu
þjóna versluninni Hagkaup.
Brotist var inn i skrifstofu-
búsnæði Visis á llvcrfisgötu 44 i
nólt. Ýmsu var rótað til á
tveiinur skrifstofum þar, og cin-
liverju l'émætu var stolið, cn
ekki er enn vitað bve iniklu.
Þjól'urinn braust inn um bak-
glugga sem cr i um tveggja
metra bæð l'rá jöröu, og að lok-
inni rannsókn sinni á staðnum
liel'ur liaiin l'arið út um bakdyrn-
ar og læst á eftir sér. Litlar
skemindir voru unnar.
Málið er nú i liöndum
raniisókiiarlögreglunnar.
—EB/Ljósm. Jim.
Samningsdrögin
gera ráð fyrir
4 veiðisvœðum
Samningsdrögin við vestur
þjóðverja fela i sér, að
islendingar heimiia vestur þjóð-
verjum að veiða 55 þúsund lestir
af karfa og ufsa á ákveðnum
svæðum innan fiskveiðiland-
helginnar. Þá fá þeir heimild til
að veiða 5 þúsund lestir af
þorski.
Vestur-þjóðverjar falla frá
fyrirvara sinum um gildistöku
viðskiptasamningsins við Efna-
hagsbandalagið. Komi tolla-
ivilnanirnar ekki til fram-
kvæmda innan fimm mánaða
frestast framkvæmd samkomu-
lagsins. Hugsanleg frestun af
þessum sökum lengir ekki
gildistimann sem er tvö ár frá
undirritun samkomulagsins.
Samningarnir gera ráð fyrir
að 40 þýskir togarar fái veiði-
heimildir hér við land. Vestur-
þjóðverjar féllu frá kröfu sinni
um veiðiheimildir fyrir verk-
smiðju- og frystiskip.
Samkomulagsdrögin gera ráð
fyrir fjórum veiðisvæðum. Eitt
svæðið er út af norðanverðum
Vestfjörðum. Eftir þeim
upplýsingum sem Visir hefur
aflað sér mun litill geiri þar ná
inn að 40 sjómilna mörkum frá
grunnlinum. Þá eru veiðisvæði
út af Breiðafirði og út af
Reykjanesi. A siðarnefnda
svæðinu nær litill geiri veiði-
svæðisins inn að 25 sjómilna
mörkum frá grunnlinu. Fjórða
svæðið er út af Suðausturlandi.
Þar nær Jitill geiri svæðisins inn
að 23 sjómilna mörkum frá
grunnlinu' eftir þvi sem Visir
kemst næst.
Á svæöinu norður af Vest-
fjörðum verður aðeins leyfð
veiði á timabilinu frá 1. júni til
30. nóvember. Ef viðskipta-
samningarnir við Efnahags-
bandalagið koma ekki til fram-
kvæmda hefur frestun á fram-
kvæmd samkomulagsins það i
för með sér að þetta svæði opn-
ast ekki.
— Þ.P.
Gífurleg pressa á
bresku stjórninni
— Það er gifurleg pressa á
bresku stjórninni, sagði Niels P.
Sigurðsson, sendiherra í
Londin, við Visi i morgun —
Togaraeigendur og sjómenn og
svo auövitaö þingmenn fiski-
bæjanna krefjast þess eindregiff
að togararnir fái herskipa-
vernd.
— Þarna nota þeir strax leik
sem þeir beittu ekki fyrr en eftir
margra mánaða þóf i siðasta
þorskastriði. Siðast báru úr-
slitakostirnir þann árangur að
flotinn var sendur á vettvang.
Hvað nú gerist er ekki gott að
segja, en ákvörðun á að koma á
hádegi.
Áður fengið hótanir
— Jú, jú, sendiráðið er hér
ennþá og i heilu lagi, sagði Niels
og hló, þegar hann var spurður
um sprengjuhótunina sem
sendiráðinu barst. — Þetta er
ekki i fyrsta skipti sem við fáum
slika orðsendingu, þegar til á-
taka hefur komið milli land-
anna. Við höfum þó ekki af
henni miklar áhyggjur.
-ÓT
Rannsóknarnefnd-
in ósammála bœjarstjóra
Ekki virðast allir i Vest-
mannaeyjum sammála um að
máli bæjarstjórans, Sigfinns
Sigurðssonar, sé að fullu lokið.
Fiins og komiö licfur fram I
fréttuin sakaði minnihluti
bæjarstjórnar Sigfinn um óeðli-
lega mcðferð fjár bæjarsjóðs.
A fundi bæjarstjórnar á
sunnudag var lagt fram álit
nefndpr, sem fengin var til að
rannsaka máliö. 1 framhaldi af
þvi áliti samþykkti bæjarstjórn
einróma eftirfarandi: „Bæjar-
stjórn samþykkir niöurstöðu
nefndarinnar og harmar þau
mistök sem hér hafa orðiö og
litur svo á að málinu sé þar með
lokið.” Alit nefndarinnar er
birt orðrétt hér á siðunni.
t morgun barst Visi siöan
yfirlýsing frá nefndinni, og er
hún undirrituö af öllum
nefndarmönnum. Þar segir:
„Vegna viðtals við bæjar-
stjórann I Vestmannaeyjaum i
dagblaðinu Visi 24. nóvember
vill nefndin sem bæjarstjórn
skipaði til að kanna ásakanir
minnihluta bæjarstjórnar um
misnotkun bæjarstjóra á fjár-
munum bæjarstjórnar um mis-
notkun bæjarstjóra á fjármun-
um Vestmannaeyja, taka eftir-
farandi fram:
1. Þann 4. nóvember siðast
liöinn barst bæjarstjóra i
hendur launagreiðsluform,
ásamt áfestu afriti af innleggs-
nótu i Otvegsbanka tslands i
Vestmannaeyjum sem sýndu að
laun bæjarstjóra fyrir timabilið
1. ágúst til 31. október 1975 höfðu
verið lögð á ávisanareikning
bæjarstjóra við ofangreint úti-
bú.
2. Þann 8. nóvember siöast
liöinn hélt bæjarstjóri til
Reykjavikur i erindum bæjar-
stjórnar Vestmannaeyja og
dvaldist þar til 16. nóvember.
3. Þann 18. nóvember greiddi
bæjarstjóri krónur 600 þúsund
inn á viðskiptareikning sinn við
bæjarsjóð. Að öðru leyti visast
til sameiginlegs nefndarálits
um mál þetta.
Vestmannaeyjum, 25. nóvem-
ber 1975. Jóhann Pétur Ander-
sen, Arnar Sigurmundsson, Jó-
hannes Kristinsson, Sigurður
Jónsson.
Or þessari yfirlýsingu veröur
að lesa á milli lina. Þarna er
verið aö mótmæla þeirri full-
yröingu bæjarstjórans i Visi i
gær að hann hafi frétt af mis-
tökunum, þegar hann var i
Reykjavfk aö vinna að uppgjöri
viö Viðlagasjóð.
Samkvæmt yfirlýsingunni á
bæjarstjóriinn að hafa vitað um
mistökin 4 dögum áður en hann
hélt til Reykjavikur. Visir bar
þessa yfirlýsingu undir bæjar-
stjórann i morgun. Hann sagði
að vel mætti vera að hann hefði
átt að vita um þessi mistök áður
en hann fór frá Vestmannaeyj-
um. Þetta hefði verið lagt á
borðið hjá sér eins og önnur
gögn, og i annriki siðustu daga
fyrir brottför hefði það hrein-
lega farist fyrir að ganga fra
llerjá eftir l'ei' orffréttur sá
hluti nefndarálits laniisóknar-
nefiidariniiar i Eyjum sem Visi
liefur borist:
„Nefndin telur eðlilegt að
bæjarstjóri fengi greitt upp i
væntanlegt kaup meðan ósamið
var um launakjör hans. Þann 4.
nóvember sl. þegar gerð voru
upp laun bæjarstjóra fyrir tima-
bilið 1. ágústtil 31. október urðu
þau niistök á milli iaunadeildar
og fjármáladeildar að fyrir-
framgreiðsla upp i laun var ekkj
dregin af launum bæjarstjórá
fyrir timabilið.
Þessi mistök urðu þess vald-
málinu. Niðurstöður nefndar-
innar og yfirlýsing bæjar-
stjornar stæði óhögguð þrátt
fyrir það.
Þá hefur Visir haft af þvi
spumir að Reykjavikurblöðun-
um hafi aðeins verið sendur
fyrrihluti nefndarálits rann-
sóknarnefndarinnar. Alitið i
heild verði birt i heimablöðum.
Málið virðist þvi vera heldur
klúðurslegt, og bera menn við
þagnarskyldu. -AG-
andi að viðskiptamannaskuld
bæjarstjóra kr. 900.000 stóð
óbreytt og gaf það tilefni til get-
saka um misnotkun á fjármun-
um bæjarsjóðs.
Þann 18. nóvember sl. greiddi
bæjarstjóri krónur 600 þúsund
inn á viöskiptaskuld og álitur
nefndin aö bæjarstjóri hafi þar
með gert full skil á viðskipta-
skuld sinni, þar sem fyrir liggur
loforð meirihluta bæjarráðs að
bæjarstjóri skyldi tá greidd sem
svarar 1 mánaða launum fyrir
fram, auk þess á bæjarstjóri
eftir að fá greitt fyrir nefndar-
störf frá 1. ágúst sl..”
NEFNDARALITIÐ...