Vísir - 29.11.1975, Side 11
VISIR Laugardagur 29. nóvember 1975.
ín Guójohnsen
Dobfíð vor sjólfsagt
og redobfíð einnig...
Félagsmeistarar
Bridgefélags Reykjavík-
unsveit Hjalta Elíassonar
hélt velli i spennandi leik
móti sveit Stefáns og
sigraði 12-8.
Sigurinn hefði verið
meira sannfærandi ef
eftirfarandi spil hefði
ekki komið fyrir.
Staðan var a-v á hættu og
norður gaf.
AK-G
V A-K-D-9-8-6-4
♦ 5-3
G-8
A D-7-6-2 A 9-4-3
JIO V 5-3-2
A-D-8-4 ♦ G-9-7-6-2
4 A-K-10-5 * 9-2
♦ A-10-8-5
ViG-7
♦ i K-10
* D-7-6-4-3
1 opna salnum sátu n-s Einar
Þorfinnsson og Ásmundur Páls-
son, en a-v Stefán Guðjohnsen
og Simon Simonarson. Þar
gengu sagnir á þessa leið:
Norður Austur Suður Vestur
P l 4 D
2 V P 3 G P
P P
Vestur spilaði út hjartatiu og
Ásmundur hirti sina upplögðu
niu slagi. Þetta virtist vera há-
marksárangur á spilið, þvi
hættan er að lenda i fjórum
hjörtum, sem eru töpuð með
tigli út. A.m.k. grunaði engan
viðstaddan að n-s myndu tapa 10
IMPum á spilinu.
1 lokaða salnum sátu n-s
Hörður Arnþórsson og Þórarinn
Sigþórsson, en a-v Guðlaugur R.
Jóhannsson og Örn Arnþórsson.
Lokasamningurinn varð einmitt
fjögur hjörtu meira að segja
dobluð og redobluð og til allrar
hamingju fyrir n-s var suður
sagnhafi.
Sagnirnar voru þannig:
Norður Austur Suður Vestur
44 p 4V D
P P RD P
P P
Það er ákaflega erfitt fyrir
vestur að segja pass við fjórum
hjörtum og liggur við að doblið
sésjálfsagt. Hins vegar er álita-
mál, hvort ekki sé rétt að segja
fjögur grönd við redoblinu.
Hvað sögnum n-s viðkemur,
þá þýðir opnun á fjórum laufum
þéttur sjölitur i hjarta með
hliðarstyrk. Redobl Þórarins er
þvi góður möguleiki, þvi hliðar-
styrkur norðurs hlýtur að koma
vel við hann.
Vestur spilaði út laufaás og
siðan láglaufi. Eftir það varð
hann að gæta vel að afköstum
hinna, til þess að ná tveimur
slögum i viðbót. Það gerði hann,
en samt voru 830 töpuð.
SVEIT KRISTINAR ÞORÐAR-
DÓTTUR SIGRAÐI HJÁ TBK
Orslit i hraðsveitakeppni
Tafl- og bridgeklúbbsins urðu
þau, að sveit Kristinar Þórðar-
dóttur sigraði. Auk hennar eru i
sveitinni Jón Pálsson, Albert
Þorsteinsson, Guðni Þorsteins-
Guðjón og Þorvaldur
efstir í undankeppni
Eftir fyrri umferð undankeppni Reykjavikurmótsins í tví-
menningi, sem jafnframt er undankeppni fyrir tslandsmót eru
þessir efstir:
1. Guðjón Kristjánsson — Þorvaldur Matthiasson 199
2. Asmundur Pálsson — Hjalti Ellasson 197
3. Gylfi Baldursson — Sveinn Helgason 192
4. Sigurður Sverrisson — Sverrir Ármannsson 191
5. Ólafur Jóhannesson — Þórhallur Þorsteinsson 185
6. Jón Asbjörnsson — Sigtryggur Sigurðsson 184
7. Daniel Gunnarsson — Steinberg Rikarðsson 184
8. Jóhann Jónsson — Þráinn Finnbogason 182
9. Guðlaugur R. Jóhannsson — örn Arnþórsson 180
10. Guðmundur Sveinsson — Þorgeir Eyjólfsson 180
Seinni umferðin verður spiluð á morgun i Domus Medica og
hefst kl. 13,30.
son og Kjartan Markússon.
Röð og stig efstu sveitanna
var þessi:
1. Sv. Kristinar Þórðard. 3471
2. Sv. Erlu Eyjólfsd. 3436
3. Sv. Bernharðar Guðm.ss. 3431
4. Sv. Hannesar Ingibergss. 3419
5. Sv. Þórhalls Þorst.ss. 3418
Það virðist sem kvenfólkið sé
betri stjórnendur sveita hjá
TBK, þótt á engan hátt sé verið
að setja út á fyrirliða hins kyns-
ins.
Nýlega heimsóttu 9 sveitir frá
TBK Bridgefélag Akraness og
var spilað á jafnmörgum borð-
um. Leikar fóru svo, að TBK
vann samanlagt 11:9. Þótti
TBK-mönnum akurnesingar
góðir heim að sækja og rómuðu
móttökur allar og viðurgerning.
Frá sveitakeppmi BR. Svcit
Hjalta er að spiia við sveit
Lárusar. Talið frá vinstri:
Asmundur Páisson, Her-
mann Lárusson, Einar Þor-
finnsson, Sigurjón Tryggva-
son.
iöfn og spennandi keppni
hjá Bridgefélagi Rvíkur
Að fimm umferðuni loknum i sveitakeppni Bridgefélags
Reykjavikur er sveit Hjaita efst, eftir að hafa sigrað sveit
Stefáns i siðustu umferð.
íirslit einstakra leikja i siðustu umferð voru þannig:
Hjalti — Stefán 12-8
Einar — Benedikt 17-3
Jón — Helgi 17-3
Gisli — Lárus 14-6
Gylfi — Gunngeir 20-0
Birgir — Þórður 15-5
Alfreð — Ólafur H. 18-2
Ólafur V. — Gestur 12-8
Þórir — Esther 17-3
Röð og stig efstu sveitanna er nú þessi:
1. Sveit Hjalta Eliassonar 75 stig
2. Sveit Stefáns Guðjohnsen 71 stig
3. Sveit Einars Guðjohnsen 71 stig
4. Sveit Jóns Hjaltasonar 62 stig
5. Sveit Helga Jóhannssonar 59 stig
6. Sveit Alfreðs G. Alfreðssonar 56 stig
7. Sveit Gisla Hafliðasonar 55 stig
8. Sveit Gylfa Baldurssonar 54 stig
1 næstu umferð spila saman m.a. sveitir Hjalta og Jóns,
Stefáns og Helga, Einars og Alfreðs, Gisla og Benedikts og Gylfa
og Lárusar.
Leikur félagsmeistaranna við Islandsmeistarana verður
áreiðanlega harður og spennandi. Hjalti má varla við að tapa
honum og Jón verður að vinna.
Spilað er á miðvikudagskvöldum i Domus Meica.
FLUGAN
Hrafn
Gunnlaugsson
skrifar
OSVINNA
Á mínu
grœno eyra
Fyrir skömmu dreymdi mig
að kæmi tii min maður. Hann
mælti:
,,Sú ósvinna hefur viðgengist
allt of lengi i islensku þjóðfélagi,
að hið opinbera hefur ekki hirt
um þá skyldu sina að koma á fót
skólum þar sem kornabörnum
er kennt að skriða, ganga og
tala. 1 stað þess varpar hið opin-
bera skyldunni yfir á herðar
blásaklausra foreldra og ætlast
til þess að börn læri jafn flókna
hluti i heimahúsum. Það er
krafa allra langskólagenginna
skólamanna, námssérfræðinga,
kennslufræðinga og lærimeist-
ara, að hið opinbera komi þegar
á stofn skólum til að kenna þessi
fræði. Það ófremdarástand sem
rikt hefur i þessum efnum er
fyrir neðan allar hellur.
Einnig er nauðsynlegt að
stofnsettir verði fjölbrautaskól-
ar þar sem tekin verður upp
kennsla i þvi hvernig menn eiga
að beita munninum þegar þeir
tyggja mat. Þá er það hreint
óþolandi að ekki skuli vera búið
að taka upp fast skyldunám við
alla framhaldsskóla, þar sem
kennt er hvernig eigi að anda.
Mér er spurn: Vilja menn að
þjóðin svelti i hel, af þvi hún
hefur ekki fengið sérfræðitil-
sögn i þvi hvernig eigi að
tyggja, eða kafni, af þvi henni er
ekki kennt að anda strax á
skólabekk.”
Upp úr svefni
Maðurinn i draumnum, sem
var hinn hræðilegasti návistum
var einhvers konar bastarður af
þjóðfélagsfræðingi, sálfræðingi,
kennslufræðingi, þjóðmálafræð-
ingi og þjóðháttarfræðingi — en
þó engir tveir i senn. Hann lét
móðan mása: ,
„Það er lifsspursmál fyrir is-
lensku þjóðina að leggja niður
sumarfri skólafólks. Þessu fólki
á alls ekki að hleypa úl á vinnu-
markaðinn á sumrin til að
vinna. Nei, það á að setja það i
verklega kennslu þar sem þvi er
kennt að vinna. — Það er ekkert
hægt að læra nema i skólum.
Skólarnir eiga að leysa öll
vandamál og koma i staðinn
fyrir allt, til þess eru kennarar,
að kenna.
Það ætti að banna mönnum
með lögum að snerta á skóflu
eða haka (að ég nefni ekki ham-
ar eða tannbursta) án þess að
hafa lært að beita þessum verk-
færum i til þess reknum fjöl-
brautaskólum á vegum hins
opinbera.”
Hrotur
Mér var farið að liöa hálf illa i
draumnum, en átti ekki undan-
komu auðið. Bastarður hélt á-
fram:
„Það er nauðsynlegt að hafa
vit fyrir fólki. Fólk á ekki að
þurfa að hugsa. Hvers vegna
ekki refsa þeim, sem ganga um
illa búnir i köldu veðri, þjóðfé-
lagið ber jú ábyrgð á þeim!
Lögreglan ætti að taka alla
fasta sem klæða sig ekki eftir
settum reglum. A þjóðfélagið að
borga fyrir þessa menn ef þeir
fá kvef?! A sama hátt á að
skylda menn með lögum til að
nota öryggisbelti i bilum og
refsa þeim stórlega sem leyfa
sér aö nota þau ekki. Ég spyr: á
þjóðfélagiöað borga sjúkrahús-
vist fyrir þessa menn ef þeir
slasast. Eins á að banna reyk-
ingar með lögum, og láta lög-
regluna fara inn á heimili til að
fylgja reykingabanninu eftir, —
þvi, á þjóðfélagiö að borga
sjúkrahúsvist fyrir þá sem
reykja ef þeir fá i lungun?
Ég vil lika benda á háhælaða
skó. Hverjir eru það sem borga
dýrar aðgerðir, þegar fjarlægja
þarf æðahnúta i fótleggjum
þeirra kvenna, sem pjaska á há-
hæluðum skóm? Eru það ekki
ska 11 bo rga ra r nir, þ jóðfélagið!
Háhælaða skó á að banna með
lögum.þeir eru stórhættulegir.”
Mér var orðið innanbrjósts
eins og umferðarsérfræðingi
sem er úti að aka á sunnudags-
morgni og keyrir yfir á rauðu og
lendir i árekstri. — Draum-
maðurinn setti upp fjölda and-
lita, hvert öðru skelfilegra. Þar
voru komnir á einu bretti allar
þær vitsmunaverur sem helriða
fjölmiðlum og telja sig einar og
útvaldar til að hafa vit fyrir öðr-
um. Draumurinn breyttist i
martröð og ég vaknaði með
andfælum.
Morgunmaturinn beið á elda-
vélinni og i' útvarpinu klakaði
ungur maður um „nauðsyr
þess, að þegar i stað yrði lög-
leidd notkun öryggisbelta i bif-
reiðum” — þvi fólk er jú fifl sem
þarf að hafa vit fyrir.