Vísir - 01.12.1975, Blaðsíða 24
VÍSIR
HAFLIÐI HALLGRIMS-
SON í HLJÓMLEIKA-
FERÐ MEÐ MENUHIN
Ilafliöi Hallgrimsson selló-
leikari er nú að Ijúka sex vikna
hljómleikaferðalagi með hljóm-
sveit hins heimskunna fiðlu-
sn illings Yehudi Menuhins.
Þykir það mikill heiöur að vera
valinn I þessa hljón^veit.
Hljómleikaferðin, var farin
um Ástraliu, Tíýja Sjáland,
Fiji-eyjar og Bandarikin, og
hófst i byrjun október.
Hljómsveitinni hefur verið
mjög vel tekið og blaöadómar
um hana verið lofsamlegir.
Þetta er ekki i fyrsta skipti,
sem Hafliði fer i hljómleikaferð
með heimsfrægum tónlistar-
manni. f fyrra lék hann i The
English Chamber Orchestra
sem hljómsveitarstjórinn
heimskunni Barenboim stjórn-
aði og fór þá i hnattferð með
hljómsveitinni.
Múnudagur I. desember 1975.
Ógnaði leigu-
bílstjóra
með hníf
Farþegi f leigubO ógnaði bil-
stjóra með hnifi aöfaranótt
sunnudags, en gerði honum þó
ekki mein. Lögreglan tók far-
þegann I sinar hendur.
Maðurinn var staddur i
leigubil á Árbæjarsvæði og
hefur sennilega átt að borga
fargjaldiö, þegarhann kaus að
taka fram hnif og ota að bil-
stjóranum.
Fareginn var ölvaður og gat
bilstjórinn gert stöö sinni að-
vart. Árbæjarlögreglan fékk
siöan hringingu frá stöðinni,
og fór hún þegar á vettvang.
Þar náöi hún farþeganum og
tók hann að sjálfsögðu i sina
vörslu. — EA
Dróttur ó við-
viðrœðum við
norðmenn
Ekki er búið að semja viö
norðmenn um landhelgisveið-
ar, né heldur færeyinga.
Undirbúningsviðræður hafa
átt sér stað við norðmenn. Að
sögn Þóröar Einarssonar hjá
utanrikisráöuneytinu verður
einhver dráttur á að þeim
ljúki.
Viöræöur viö færeyinga hafa
engar veriö enn. Búist er við
að þær hefjist öðru hvorum
megin við áramótin.
—ÓH
Heimdellingar
ósparir ó púðrið
„Heimdallur SUS f Reykjavik
telur óeðlilegt að hafa stjórn-
málasamband við riki sem beitir
hervaldiá fslensku y firráðasvæði
og beinir þeirri áskorun til rlkis-
stjórnarinnar að hún sliti stjórn-
málasambandi við breta um leið
og herskipum þeirra verður beitt
til hjálpar enskum veiðiþjófum”.
Þannig segir m.a. i stjórnmála-
ályktun Iieimdalls sem samþykkt
var á framhaldsaðalfundi fyrir
skömmu.
Og Heimdellingar koma viða
við f stjórnmálaályktun sinni.
Þeir vilja láta afnema tekjuskatt-
inn, en vara jafnframt við þvi að
lagðir séu á óhóflegir fasteigna-
skattar. Kjördæmaskipunina
telja þeir úrelta og vilja láta jafna
kosningarétt fólksíns.
Fariðerhörðum orðum um lán-
tökur þær sem verið er að fram-
kvæma. Og sagt: „Núkynslóðin
er að hlaupast undan þeirri
ábyrgð sem hún ber.”
Þá er itrekuð andstaða Heim-
dallar við flokkspólitiskt eftirlits-
manna og fyrirgreiöslukerfi i
stjórnsýslunni og áhersla lögð á
að Framkvæmdastofnunin verði
leyst upp. —EKG
,/Aótmœlum atkvœðamis-
rétti í Alþingiskosningum"
Undirskriftir ó Reykjanesi
I„Við viljum ekki vekja upp
deilur um leiöir til að bæta úr
þvi misrétti sem er rikjandi,
heldur aðeins mótmæla núver-
andi ástandi”, sagöi Vilhjálmur
Grimsson, bæjartæknifræðing-
ur I Keflavik, er Visir spurði
hann frétta af undirskriftalist-
um með mólmælum gegn at-
kvæöismisrétti i Álþingiskosn-
inguni'Sem nú eru I gangi í
Keflavik og nágrenni.
Það er klúbburinn Junior
Chambersem gengst fyrir'þess-
ari undirskriftasöfnun meðal
kjósenda I Reykjaneskjördæmi
á svæðinu sunnan Hafnarfjarð-
ar.
t rökstuðningi fyrir mótmæl-
unum er bent á kjósendafjölda
að baki hvers þingmanns að
meöaltali yfir landið og siðan að
baki hvers þingmanns i Reykja-
neskjördæmi. Undirskrifendum
finnst rikja þarna ólýðræðislegt
misrétti.
Að sögn Vilhjálms hafa list-
arnir nú verið i gangi rúman
hálfan mánuð, og sagði hann að
kjósendur tækju málinu yfirleitt
af áhuga. Þó sagði hann að ein-
staka maður hikaði við að skrifa
undir af ótta við að veröa settur
á einhvern lista eða flokkaður á
einhvem hátt.
Ekki liggja enn fyrir neinar
tölur um fjölda undirskrifenda,
en i lok undirskriftasöfnunar et
meiningn aö skila listunum til
Alþingis og biðja forseta Sam-
einaðs þings að taka við þeim.
— EB
Fyrsta tap
TR í 75 ár
t fyrsta skipti i sjötiu og fimm
ár gerðist það að Taflfélag
Reykjavikur tapaði keppni. Þetta
átti sér stað i gærkvöldi i deilda-
keppninni sem Skáksamband ts-
lands gengst fvrir. En þá sigraði
hið nýstofnaða skákfélag, Mjöln-
ir, Taflfélag Reykjavikur með
fimm vinningum gegn þremur.
—EKG
i:
Þær slógu Olgu Korbut næstum við, sumar ungu stúlkurnar sem
sýndu fimleika á fimleikasýningunni I Laugardalshöll i gær.
Fimleikasamband tslands og tþróttakennarafélag islands stóðu
fyrir sýningunni, sem þótti takast mjög vel, Sýningin stóð yfir
samfleytt I tvo og hálfan tima. Um eitt þúsund manns komu að sjá
rjómann af fimleikafólki okkar. —óll
Villtust — en
gerðu vart við
sig illa til reika
Tveir unglingsstrákar lentu
i hrakningum aðfaranótt
sunnudags, er þeir villtust á
leið í skátaskála talsvert ofan
viö Lækjarbotna. Undir morg-
un gerðu þeir vart við sig, og
var þá annar sérlega illa til
reika.
Piltarnir höfðu haft Bakkus
með sér i förina. Hafa þeir
liklega tekið strætisvagn upp i
Lækjarbotna og lagt af stað I
skálann fyrir miðnætti á laug-
ardagskvöldið.
Fljótlega hafa þeir þó hresst
sig á guðaveigunum, enda
mjög kalt úti. En „guðaveig-
arnar” gerðu gæfumuninn.
Piltarnir villtust fljótlega og
voru á flækingi fram eftir allri
nóttu.
Að lokum gerðu þeir vart við
sig á býli sem heitir Tún-
hvammur og er rétt ofan við
Lækjarbotna. Þá var klukkan
orðin fjögur um morguninn og
óskuðu piltarnir eftir lög-
regluaðstoð. Þeir voru þá illa
til reika eftir flækinginn og
taldi lögreglan að þeir myndu
ekki hafa þolað útivist fram á
næsta dag. Annar þeirra var
til dæmis orðinn skólaus og
var fluttur á slysadeild.
—EA
í gœslu-
varðhaldi
vegna inn-
brotsins
í Héðin
Enn vantar tvo af þeim
þrem peningakössum sem
stolið var úr Héðni fyrir helg-
ina. t þcim eru meðal annars
sex hundruö þúsund krónur I
peningum óg rúmlega fjögur-
hundruð þúsund i ávísunum.
Gisli Guðmundsson,
rannsóknarlögreglumaður,
sagði VIsi i morgun aö á
sunnudag heföi maður verið
úrskuröaður í sjö daga gæslu-
varphald vegna þessa máls,
Annað væri ekki fréttnæmt.
Málið væri enn I rannsókn.
— ÓT
Stúlka brennd-
íst er kviknaði
í rúmi hennar
Stúlka brenndisl I gærmorg-
un, þegar kviknaði I rúmi
hcnnar. Hún var flutt á gjör-
gæsludeild Landspltalans. t
morgun þegar Vlsir hafði
samband viö deildina var Hð-
an hennar eftir atvikum.
Atburðurinn átti sér stað i
Hveragerði. Stúlkan hefur
verið við kennslu þar og er
með hús á leigu.
Svo heppilega viidi til að
kunningjakona hennar gisti
hjá stúlkunni þessa nótt og
vaknaði hún við að eldur var i
rúmi stúlkunnar. Hún gerði
þegar lögreglu og lækni við-
vart, og var stúlkan flutt á
Landspitalann.
Taliö var að kviknað hefði i
út frá sigarettu, en það yar þó
ekki fyllilega vitað.
Bœjarfull-
trúar þöglir
sem gröfin
Fundur i bæjarstjórninni I
Vestmannaeyjum var haldinn
sl. laugardag. Þar hefur að
öllum likindum verið rætt hið
svo nefnda bæjarstjóramál.
Bæjarfulltrúar verjast hins
vegar allra frétta og láta ekki
uppi hið minnsta af gangi
fundarins. Fundur þessi var
lokaður og engar fundargerðir
færöar.
—EKG
Til Fœreyja
eftir olíu
— Það komu hingaö tveir
breskir togarar um helgina til
að taka olíu, sagði Nils Jul
Aarge, útvarpsstjóri I Færeyj-
um, við Visi I morgun. — Þeir
komu til Klakksvikur en eru
nú væntanlega farnir aftur á
tslandsmið. Þetta eru Royal
Lynx og Prince Philip, og þeir
stunda aö jafnaði ckki vciöar
við Færcyjar. —ÓT