Vísir - 09.12.1975, Síða 1
65. árg. — Þriöjudagur 9. desember 1975. — 279. tbl.
15 DAGAR TIL
JÓLA
VERKFÖLL YFIR-
VOFANDI Á SPÁNI
líiKMMBBfltiiwBaaBMaiaiBgwaBaBB
Fyrir feguröina er mikiö á sig lagt. 1 Ilollywood eru skurölækn-
ar, sem fást ekki viö annaö en aö lagfæra andlit fólks, sem hefur
^hyggjur af því aö ekki gangi nógu vel á framabrautinni. Þessir
menn taka offjár fyrir aö fjarlægja bólu eöa vörtu, eöa breyta
örlltið lögun nefsins. — Frá þessu er sagt á 14. siöu.
Bresku blööin hafa gert sér mikinn mat úr þorskastrföinu og stund-
um hefur konunglegi breski sjóherinn fengið háöulega útreiö, einkum i
teikningum bresku brandarakarlanna. — A blaösiöu 19. er safn slikra
teikninga, sem lesendur geta skemmt sér viö að skoða.
HVER ÆTLAR AÐ
STÖÐVA FARFUGLA!
,,Að brenna glæpinn” heitir grein eftir Pál Heiðar Jónsson á 10.
síðu. Þar fjallar hann um innflutningsbann á kjöti, til dæmis
fuglakjöti. Hann minnir á mikla kjúklingabrennu og bendir á að
islendingum sé bannað að éta útlent kjöt á meðan menn háma það
i sig i erlendum sendiráðum, hjá varnarliðinu á Keflavikurflug-
velli. Og hver ætlar að stöðva alla farfuglana sem hingað koma á
hverju vori?
Vildu fordœma
loftárósirnar
en ekki hryðju-
verk hinna
Þeir auka þeim fegurð
Breskir brandara-
karlar og þorskastríð
LIFIÐ GEKK SINN
VANAGANG HJÁ
SUNNU í MORGUN
— Guðni Þórðarson
œtlar að gera hreint
fyrir sínum dyrum
á Borginni kl. 14
Það var fremur rólegt á skrif-
stofu Sunnu I morgun, en það
var vegna þess að í skammdeg-
inu kemst fólk ekki i feröahug
fyrr en eftir hádegi, eftir þvi
sem afgreiðslustúlkurnar
sögðu. Hjá þeim gekk lffiö sinn
vanagang.og þær unnu að al-
mennu^n afgreiöslustörfum eins
og áður.
Oðru hvoru vatt sér einhver
innúr dyrunum til að gera fyrir-
spum einhvers eðlis. Ung
stúlka kom til að ganga endan-
lega frá ferðapöntun sinni.
Roskin kona hafði ætlað til
Kanarieyja 10. april, en taldi sig
nú þurfa að leita eitthvað annað.
— Það er nú enginn kominn til
að segja, að sú ferð verði ekki
farin, sagði afgreiðslustúlkan.
— En það er sjálfsagt að endur-
greiða það sem búið var að
borga inná.
Ekki tókst að ná sambandi vjið
Guðna Þórðarson, þótt viða
væri hringt og farið. Visismenn
fengu aðeins þau skilaboð að
hann yrði til viðtals á blaða-
mannafundi á Hótel Borg kl. 14 i
dag.
Ofsóknir
Guðni hefur lýst þvi yfir að á
þeim fundi muni hann gera
hreint fyrir sinum dyrum. Hann
hefur haldið þvi fram að seðla-
bankinn ofsæki fyrirtæki sitt að
tilefnislausu. Þeir séu verkfæri
Flugleiða sem vilji með þessu
mótilosnaviðsamkeppni. -Öt.
Þaö var unniö viö afgreiöslu eins og venjulega. (Mynd BG)
UTLITIÐ ER EKKI ALLSTAÐAR SVART,
BJARTARI HORFUR UM
SÖLU Á LOÐNUMJÖLI
Horfur á sölu loðnumjöis eru
nú öllu bjartari en á sama tima i
fyrra. i fyrra fór verðið allt nið-
ur i :S dollara og 20 sent fyrir
hvcrja eggjahvitueiningu i lok
vertiðar, en nú er vitað að verð-
ið hefur hæst komist i 4 dollara
og 40 sent hver eggjahvituein-
ing.
Jónas Jónsson, forstjóri Sild-
ar- og fiskimjölsverksmiðjunn-
ar á Kletti, sagði i morgun, að
nú væri búið að selja fyrirfram
11 til 12 þúsund tonn af loðnu-
mjöli. Verðið væri 4 dollarar og
15 sent og upp i 4 dollara og 40
sent hver eggjahvitueining.
I fyrra greiddu rússar allt að 4
dollurum og 30 sentum fyrir
eggjahvitueininguna, sem þótti
þá gott verð. Verðið fór þá allt
niður i 3 dollara og 20 sent.
Jónas sagði að það vekti at-
hygli, hve litil eftirspurnin væri
þrátt fyrir litinn ansjósuafla
perúmanna og uppskerubrest i
Sovétrikjunum. Hann kvaðst þó
þeirrar trúar að verðið færi ekki
niður fyrir það, sem nú hefði
verið ákveðið með fyrirfram-
sölu. Hins vegar væri þessi
markaður svo ótryggur, að
reynslan hefði kennt mönnum
að fullyrða aldrei neitt.
1 fyrra keyptu rússar um 30
þúsund tonn, en nú munu þeir
vart kaupa nema 10 til 20 þús-
und smálestir. — Loðnuvertið
hefst væntanlega um mánaða-
mótin janúar/febrúar og af-
skipanir gætu þá hafist i febrú-
ar.
Þótt verð i fyrra hafi farið
niður i 3 dollara og 20 sent var
það fjarri að vera meðalverð.
Margir höfðu selt fyrirfram
fyrir sæmilegt verð, og verðið,
sem rússar gáfu fyrir mjölið.
var tiltölulega hátt. — Nú er
hins vegar útlit fyrir ,að meðal-
verðið geti orðið nokkru hærra
en í fyrra. — AG