Vísir - 09.12.1975, Side 6
6
REUTER
A P
Þriöjudagur 9. dcsember 1975. VISIR
ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í
Vilja vfta Kissinger
fyrir upplýsingatregðu
Hafnar eru tilraunir til
að miðla málum i argvít-
ugri deilu sem sprottin er
upp milli Henry Kissing-
ers utanríkisráðherra
annarsvegar og hinsveg-
ar þeirrar nefndar full-
trúadeildar Bandarikja-
þings sem fjallar um
málefni leyniþjón-
ustunnar CIA.
Nefndin hefur lagt til við
fulltrúadeildina að samþykktar
yrðu vitur á dr. Kissinger fyrir
að neita að láta af hendi við
hana leynileg skjöl ráðuneytis
hans. — Skjöl þessi lúta að
leynilegum aðgerðum erlendis á
árunum 1962 til 1972, eða áður en
Kissinger varð ráðherra.
Otis Pike, formaður þessarar
fastanefndar þingsins, hafnaði i
gær tilboði Hvita hússins um að
láta af hendi við nefndina leyni-
skjöl ef fallið yrði frá þvi aö vita
ráðherrann.
Nú hefur einn flokksbræöra
Pike, þingmaður demókrata frá
Wisconsin Les Aspin að nafni,
látiöeftir sér hafa, að hann teldi
hljóta vera hægt að fá viðeig-
andi upplýsingar án-þess að
brjóta sérréttindi ráðherra.
Dr. Kissinger hefur þverneit-
að að láta nefndinni i té umbeðin
skjöl. t>au skjöl er nú standa
til böða, varða leyniaðgerðir
erlendis siðustu 14 árin meðan
nefndarformaðurinn vildi
einnig fá skjöl yfir þær aðgeröir
sem stjórnin i Washington hafði
lagt blessun sina yfir, hvort sem
þeim var hrundið i framkvæmd
eður ei. — Þar stendur allt fast i
botni og vill stjórnin bjóöa flest
annað i staðinn.
önnur deila milli stjórnarinn-
ar og þingsins leystist i gær,
þegar Roger Morton, viðskipta-
málaráöherra, lét eina af nefnd-
um þingsins fá lista yfir nöfn
þeirra fyrirtækja i Bandarikj-
unum sem beðin voru um að
taka þátt i viðskiptabanni
Araba á Israel.
,,Ég get sagt, að þessi afstaða
Kissingers hefur oft komið mér
til að bregða illa við. Mér finnst
hún reist á hentistefnusjónar-
miöum þar sem leitað er ár-
angurs sem kann að verða
skammgóður vermir eins og
reynslan hefur oft og tiðum
sýnt,” , sagði dr. Sakharov.
Hann taldi hugsanlega betra
að fara hægar i sakirnar, ef það
gæti orðið til þess að tilslakanir
sovétstjórnarinnar entust betur
með þvi að þær yrðu þá
byggðar á traustum siðgæðis-
grundvelli.
Hann kvað það helst há Sovét-
rikjunum að upplýsinga-
streymi væri takmarkað, frjáls-
um skoöunum haldiö niðri,
mikil skriffinnska, frumkvæðið
væri niðurdrepið, stjórnarand-
stæðingar ofsóttir, pólitisk
útþenslustefna rekin erlendis og
hertrumbur barðar i sifellu.
Um lifskjör almennings sagði
Sakharov að þau færu smátt og
smátt batnandi.
Hann taldi að milli 2,000 og
Sakharov fe/ur
Kissinger vera
tœkifœrissinn-
aðan í sam-
skiptum við
Moskvu
Andrei Sakharov sagöi i
sjónvarpsviðtali viö BBC,
sem birt var í gærkvöldi,
að „þiöan" i samskiptum
austurs og vesturs yröi
ekki trygg, ef vesturlönd
legðu ekki áherslu á
mannréttindin.
Dr. Sakharov sagði ennfrem-
ur, að hann áliti Henry Kissing-
er of kreddufastan i afstöðu
sinni til þjóðfélagsbreytinga i
Ráðstjórnarrikjunum.
Viðtalið var tekiö i ibúð
Sakharovs i Moskvu og spurði
breski fréttaspyrillinn visinda-
manninn álits á þeirri
fullyrðingu Kissingers, að
möguleikar vesturlandamanna
til að hafa áhrif á innanlands-
málefni rússa væru mjög tak-
markaðir.
10.000 manns væru pólitiskir
fangar i Sovétrikjunum, en áleit
hugsanlegt, aö sá fjöldi kynni þó
að vera miklu meiri.
BBC haföi um leið sérstakt
viðtal viö Yelenu,eiginkonu
Sakharovs, en hún er stödd á
ttaliu til lækninga. — Hún kvað
friöarverðlaun Nóbels, sem
Sakharov vo'ru veitt, vera
ma nnréttindabaráttunni i
Sovétrikjunum einkar mikil-
væg.
,,Þau hafa uppörvandi áhrif á
pólitiska fanga i Sovétrikjunum
og þorra þeirra, sem binda
vonir sinar viö Sakharov,”
sagði Yelena.
Hún kvað bónda sinn halda,
að heimili þeirra I Moskvu væri
hlerað, ,,en það veldur okkur
ekki áhyggjum, þvi að viö
stöndum ekki i neinu
leynibruggi.”
Verk fallsboðanir falla
í góðan jarðveg á Spáni
Spænskir vinstrisinnar
hafa í undirbúningi verk-
föll, sárgramir lögreglunni
vegna afskipta hennar af
útifundum þeirra og mót-
mælaaðgerðum undan-
farna þrjá daga. — Með
verkföllum er ætlun þeirra
að knýja Juan Carlos,
Spánarkonung, til lýð-
ræðislegra umbóta.
Ólgan fer vaxandi meðan
Carlos Arias Navarro, forsætis-
ráðherra, lætur biða að leggja
fram ráðherralista nýju stjórnar-
innar. En þess er vænst, að hann
skipi nokkra frjálslynda menn i
stjórnina, sem vinna mundi að
þjóöfélagslegum umbótum i anda
þeirra loforða, sem konungur gaf
þjóðinni.
Harkaleg framganga lögregl-
unnar við að hleypa upp
mannsafnaöi vinstrisinna þykir
þó stinga nokkuð i stúf viö þær
yfirlýsingar, og hefur hleypt illu
blóði i þá. Er nýju stjórninni legið
á hálsi fyrir að vera eins og
Francostjórnin.
Verkfallsboðanir vinstrisinna
hafa fallið i góðan jarðveg á
Spáni, þar sem verðbólga og
frysting launa hefur leitt til óróa á
vinnumarkaðnum. Verkföllin
eiga að hefjast á morgun.
KOSIÐ í NAZÁRETH
Gengið verður f dag til
bæjarstjórnarkosninga i
Nazareth, fæðingarbæ Jesú.
Veldur það ráðamönnum i
ísrael nokkrum áhyggjum, að
kommúnistar þykja liklegir til
aö fara með sigur af hdlmi. —
Flestir bæjarbúar eru ara-
bfskir.
Kommúnistaflokkur þeirra i
Nazareth hefur sýnt sig að
vera mjög tryggur Moskvulin-
unni. Hann var i meirihluta I
bæjarstjórn fyrir nokkrum ár-
um.
Abraham Ofer, ráðherra,
hefur varað bæjarbúa við að
kjósa kommúnista, og látiðað
þvi liggja, að hætt yrði viö
lánaaðstoð ráðuneytis hans, ef
þeir kæmust i meirihlutaað-
stöðu. — Moshe Baram, at-
vinnumálaráðherra, brýndi
mjög fyrir kjósendum af-
leiðingarnar, sem kynnu að
hljótast af þvi, ef flokkur
„kommúnistiskrar heims-
veldisstefnu og afturhalds-
samrar þjóöernisstefnu araba
kæmist til valda”.
,,Fyrri hópurinn biður þig velkominn....siðari hópurinn biður þig vel aðfara.”