Vísir - 09.12.1975, Page 17
VISIR Þriðjudagur 9. desember 1975.
17
í DAG | í KVÖLD | í DAG [
JACQUELINE STANBURY til hægri i hlutverki PINKIE og JULIA FORSTER Ihlutverki ANGEL.
Sis. „Dregur hver dóm
af sínum sessunaut"
Axelford og engillinn, breskt
gamanleikrit, segir frá við-
skiptajöfri sem gengur mjög
upp i starfi sinu, og er ákaflega
vélrænn i starfi sinu. Kaldur og
ákveðinn „bissness”-maður, ó-
mannúðlegur og tillitslaus.
Hann ræður sér einkaritara,
unga stúlku ákaflega hrein-
skilna og blátt áfram. Hún lætur
ekkert á sig fá kaldlyndi hans og
ónot, finnstreyndaraðhann hafi
sinn rétttilað vera sérvitur.
Þetta endar með þvi, að hún
gengur alveg fram af honum, og
hann tekur að öfunda hana. Hún
hefur alveg umhverft lifsskoðun
hans.
Það má þvi segja að málin
taka að þróast á ann'an veg en
hingað til. —VS
Sjónvarp kl. 22.25:
Óvœgin heimildarmynd um CIA
leyniþjónustu Bandoríkjanna
Hún er ansi óvægin, sagði
Gylfi Pálsson, þýöándi og þul-
ur bresku heimildarmyndarinn-
ar um bandarlsku leyniþjónust-
una, CIA, sem er á dagskrá
sjónvarpsins kl. 22.25 i kvöld.
Þar er rakin saga hennar I ljósi
þeirrar gagnrýni sem hún hefur
sætt á undanförnum mánuðurp.
Talað verður við fyrrverandi
leyniþjónustumenn sem annað
hvort hefur komist upp um eða
hafa snúið baki við henni og tjáð
sig af fúsum og frjálsum vilja
um ýmislegt, sem áður hefur
verið sagt eða borið til baka af
stjórnmálamönnum og yfir-
mönnum leyniþjónustunnar.
Raktar verða aðgerðir leyni-
þjónustunnar. Má þar nefna að
þeir unnu að þvi að steypa lög-
lega kjörnum rikisstjórnum
einsog t.d. i tran og bresku GuÞ
ana i Suður-Ameriku. Einnig
verða rakin afskipti hennar af
innrásinni á Kúbu — Svinaflóa-
ævintýrið svonefnda. Þar næst
afskipti hennar af striðinu i
Laos og Vietnam og hvernig
henni hélst uppi að heyja þar
strið að miklu leyti án vitundar
bandariska þingsins.
Talað verður um ýmis fyrir-
tæki sem leyniþjónustan á og
rekur án þess að vera skrifuð
fyrir þeim. Kemur það fram að
hún á flúgfélög og ýmis fyrir-
tæki sem notuð eru i hennar
þágu. Æfingabúðir hefur hún i
Bandarikjunum og birgðastöðv-
ar m.a. i Bretlandi.
Afskipti hennar af Watergate
eru þarna rakin og þau umskipti
sem verða í bandarisku stjórn-
málalifi viö uppljóstrun þessa
máls. Þá kemur og i ljós að
Bandarikjamenn studdu and-
stæðinga Allendes i Chile i mörg
ár og áttu þátt i þvi að honum
vár steypt af stóii og ráðinn af
dögum.
Að endingu verður fjallað um
störf og starfshætti nýstofn-
settra nefnda, þingnefndarinnar
og forsetanefndarinnar, sem
rannsaka eiga öll málefni CIA.
Af þessu sést að myndin er
glæný og fersk.
—VS
Sjónvarp kl. 20.40:
Hagur þjóðarbúsins
Viðskipta ráðherra.
Við fáum að sjá og heyra þá
ráðherrana Matthias A. Mathie-
sen fjármálaráðherra og Ólaf Jó-
hannesson, viðskiptaráðherra,
gera almenna úttekt á hag þjóð-
arbúsins. Spyrjendur verða þeir
Eiður Guðnason, sem jafnframt
er stjórnandi þáttarins, og Ás-
mundur Stefánsson, hagíræðing-
ur hjá ASf.
Ekki er að efa að marga fýsir
að heyra þá ráðherrana fjalla um
þessi mál, mönnum hefur ekki
verið svo litið tiðrætt um að allt
væri á hraðri glötunarleið og litið
til varnar vorri þjóð. —VS
| lÍTVARP •
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
Við vinnuna. Tónleikar.
14.30 „Skrumskæling
konunnar” eftir Barbro
Bachberger. Guðrún Birna
Hannesdóttir byrjar að lesa
þýðingu sina.
15.00 Miödegistónleikar: ís-
lenzk tónlist.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir) Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatim inn.
Finnborg Scheving sér um
timann.
17.00 Lagið mitt
17.30 Framburðarkennsla i
spænsku og þýsku.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Daskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Eftirmæli eftirstriðs-
áranna. Björn Stefánsson
búnaðarhagfræðingur flytur
annað erindi sitt um efna-
hagsmál, stjórnmál og
félagsmál á Islandi eftir
strið.
20.00 Lög unga fólksins. Ragn-
heiður Drifa Steinþórs-
dóttir kynnir.
20.50 Frá ýmsum hliðum.
Guðmundur Arni Stefáns-
son sér um þátt fyrir
unglinga. Þorvaldur Jón
Viktorsson aðstoðar.
21.30 „Wesendonksöngvar”
eftir Richard Wagner.
Hanna Schwarts syngur,
Homero Francesch leikur á
pianó.
21.50 „Ræninginn” Ijóð eftir
Alfreð Noyes. Bragi Sigur-
jónsson þýddi. Gisli Hall-
dórsson leikari les.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Kvöld-
sagan: „Kjarval” • eftir
Thor Vilhjálmsson. Höfund-
ur les (23)
22.40 Harmonikulög. Stanley
og Anthony Darrow leika.
23.00 A hljóðbergi. — Á
hundrað ára afmæli Rainer
Maria Rilke. Flutt verður
stutt hugleiðing um skáldið
og lesið úr ljóðum þess, bæði
á frummálinu sem I is-
lenzkri þýðingu.
23.35 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
SJÓNVARP •
Þriðjudagur
9.desember
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.40 Hagur þjóðarbúsins.
Umræðuþáttur. Umsjón
Eiður Guðnason.
21.30 Axelford og engillinn.
Breskt gamanleikrit. Axel-
ford forstjóri hefur helgað
fyrirtæki sinu lif sitt, en nýr
einkaritari umhverfir lifs-
skoðun hans. Þýðandi Jón
O. Edwald.
22.25 Leyniþjónusta Banda-
ríkjanna. Bresk heimilda-
mynd. 1 myndinni er rakin
saga bandarisku leyniþjón-
ustunnar, CIA, i ljósi þeirr-
ar gagnrýni, sem hún hefur
sætt á undanförnum mánuð-
um. Þýðandi og þulur Gylfi
Pálsson.
23.40 Dagskrárlok
Cg vildi gjarnan fá bilinn lánaðan smástund i kvöld,
pahbi!-------