Vísir - 13.12.1975, Síða 5
VISIR Laugardagur 13. desember 1975.
5
OP/N-
BiRUN
Þegar Kristur vort lif
opinberast (KoL 3.4)
Opinberun er það kallað,
þegar eitthvað, sem hulið er,
verður sýnilegt og skiljanlegt.
En það er ekki nóg að viss
efni verði opinber. Það þarf að
verða kraftaverk i skynjun
okkar lika, til þess að taka á
móti opinberun Guðs.
Á hvitasunnunni, er
postularnir voru samankomnir i
musterinu i Jerúsalem, skeði
ekki aðeins það, að læri-
sveinarnir töluðu tungum,
heldur heyrði einn ogsérhver þá
tala á tungu sinni, svo að þeir
skildu og meðtóku það, sem þeir
sögðu.
Til er bæði rituð opinberun og
órituð, sú sem menn reyna i
hvert skipti i lifi sinu. Að kristn-
um skilningi er aðeins til ein
rituð opinberun. Það er orð
Guðsogkenningin um hjálpræði
hans i Bibliunni. En eyrun þurfa
að vera næm fyrir opinberun
hans þar. Annars gagnar ekk-
ert fyrir mann að lesa i henni
eða hlýða á messu. Menn eiga
heldur ekki að hlusta gagn-
rýnislaustá Guðsorð.Þará ég
við að við eigum að hugsa skyn-
samlega eins og postulinn
minnir svo sterklega á. Við
megum ekki vera svo upptekin
af trúarlegum efnum, að við
losnum úr tengslum við daglegt
lif og vandamál þess. En með
hjálp Guðs heilags anda, tökum
við það til okkar, sem mestu
varðar — bæði það sem varðar
andlega heill okkar og baráttu
við náttúruöflin.
Það segir i Guðsorði: Sælir
eru þeir,sem heyra Guðs orðog
varðveita það. Já, það er mikil-
vægast, að við látum
opinberunina um hjálpræðis-
verk Guðs i Jesú Kristi hafa
varanleg áhrif i lifi okkar. Það
hefur það gert i lifi liðinna
kynslóða. Það þarf að heyra
Guðs orð og varðveita það.
Eina sönnunin á tilveru Guðs
er opinberun hans sjálfs i spá-
dómum Gamla testamentisins, i
Jeús Kristi og i krafti heilags
anda. Heilagur andi starfar
stöðugt i heiminum i starfsemi
trúaðra, sem varðveita Guðs orð
I trúu og dyggu hjarta.
Við skulum biðja Guð að gefa
okkur skilning á orði sinu og
varðveita það. Þá er von til
þess að hann láti ekki opinber-
unum linna, svo a von okkar
styrkist um það að lifgjafi okkar
mannanna, Jesús Kristur
opinberist, verði öllum mönnum
sýnilegur. Til þess þarf skilning
á orði Guðs, þar sem okkur er
sagt frá frelsaranum okkar og
starfi hinna fyrstu votta hans.
Guð gefi okkur náð til þess að
vera einnig i þeirra hópi.
Þú heilög ritning, huggar mig,
mér heilög orðin lýsa þin.
Sé Guði lof, sem gaf mér þig,
þú gersemin hin dýrsta mín.
(Sálmab. 295)
FRÆKORN
Stýr mínu auga.
Sr. Gunnar Arnason segir frá
þvi i Kirkjuriti 1960, að hann
hafi heyrt, að séra Ólafur á
Stóra-Núpi hafi bætt einu erindi
við hinn kunna sálm föður sins:
,,Þú Guð sem stýrir stjarna-
her”. Það erindi er svona:
Stýr minu auga að eygja þig
og alla dásemd þina.
Og dæma sekan sjálfan mig,
en sýkna brður mina.
Margir altarisgestir
- Skólapresturinn, sr. Jón Dal-
bú Hróbjartsson, hafði 9 messur
i Hallgrimskirkju og 14 á ýms-
um stöðum á árinu 1974. Altaris-
gestir við þessar guðsþjónustur
voru alls 1228.
Ný skartgripabúð
í nóvember opnaði Magnús E. Baldvinsson nýja úra- og skart-
gripaverslun að Laugavegi 8. Þar er hann með ýmsar gerðir af úr-
um og klukkum i öllum stærðum. Einnig verslar hann með skart-
gripi og gjafavörur i miklu úrvali. Magnús var áður með sams kon-
ar verslun að Laugavegi 12 en kaupmennskuna hóf hann 1947.
Forsómun eða
eðlileg aðferð?
Eru til islenskir aðilar sem geta tekið að sér verkefni dýpkunar-
og dæluskipa Vita- og hafnarmálastofnunarinnar?
Nú sem stendur á þessi stofnun tvö skip sem hún starfrækir:
G-retti sem er dýpkunarskip keypt hingað til lands fyrir þrjátiu ár-
um. Dæluskipið Hák sem er allmiklu yngra skip. Bæðieru þessi skip
fjárfrek þar sem viðhaldskostnaður vegna þeirra er mikill.
í umræðum á Alþingi fyrir skömmu kom fram hjá Sigurlaugu
Bjarnadóttur að skiptar skoðanir eru um það hvort til séu skip á ts-
landi er geti tekið að sér verkefni Grettis.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu tollstjórans i Reykjavik fer fram opinbert
uppboð að Sólvallagötu 79, laugardag 20. desember 1975 og
hefst það kl. 13.30. Selt verður mikið magn af ótollaf-
greiddum vörum. Ennfremur eftir kröfu skiptaréttar
Reykjavikur, ýmissa lögmanna, banka, Gjaldheimtunnar
o.fl., sjónvörp, peningaskápar, rafmagnsbúðarkassi,
reiknivélar, isskápar, þvottavélar svo og ýmsir húsmunir
o.fl. Avisanir ekki teknar sem greiðsla nema með
samþykki uppboðshaldara eða gjaldkera. — Greiðsla við
hamarshögg.
HINN UNDRAHÁLI ÍS
BR OKKAR PARADÍS'
ÚRVALS SKAUTAR 06 SN3ÓÞ0TUR
Skiptum á notuðum og nýjum
skautum. Nýir skautar, verð frá
kr. 2.500.-
Listskautar allar stærðir verð frá
kr. 5.900.-
Snjóþotur kr. 1900.- og 2300.-
Magasleðar kr. 2.000.- og
skiðasleðar kr. 6.800.-
Skerpum skauta.
Kristjón Vilhelmsson
Simar 19080 — 24041 — við Óðinstorg
Uppboðshaldarinn i Reykjavik.
VISIR flytur helgar-
fréttirnar á mánu-
dögum. Degi fyrr en önnur dagblöð.
*—' (gerist áskrifendur)
TILKYNNING TIL
SÖLUSKATTSGREIÐENDA
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á
þvi, að gjalddagi söluskatts fyrir nóvem-
bermánuð er 15. desember. Ber þá að
skila skattinum til innheimtumanna rikis-
sjóðs ásamt söluskattsskýrslu i þririti.
Fjármálaráðuneytið 10. des. 1975.
Hið vinsœla
Framsóknarfélags Reykiavíkur
verður haldið
Á MORGUNN sunnudog í SIGTÚNI
Húsið opnar kl. 19,30 og bingóið hefst stundvíslega kl. 20,30
2^ Verðmœti vinningo co. kr. 800 þús.
Ma. bœkur í einum vinningi ca. kr. 70, þús. Grillofn ca. kr. 35 þús —
og margir verðmœtir vinningar og aukavinningar
ÍForðist biðröð og tryggið yður miða í tíma, forsala aðgöngumiða er
ú skrifstofu Framsóknarflokksins að Rauðarúrstíg 18 í dag
laugardaginn 13. desember kl. 10-12