Vísir - 13.12.1975, Síða 14
14
Laugardagur 13. desember 1975.' VISIR
TONHORNIÐ
Umsjón: Örn Petersen
Spilverk þjóðanna
Hið athyglisverðasta
var hálftímo virði
I — Frá hljómleikum Steina hf í Háskólabíói
Þaö var skitakuldi og mikil
hálka, þegar viö H.A. gengum
grdtsyfjuð út úr Háskdlabiói,
eftir þriggja tíma miönæturkon-
sert Steina h/f slðastl. miöviku-
dag.
Til allrar hamingju voru tvö
sæti laus I sitrónunni hans Arna
Johnsen, svo viö fengum aö
fljóta meö heimleiðis.
Já, þessi þriggja tlma
skemmtun var sosum ágæt, þó
aö hiö athyglisveröasta heföi
aðeins verið um hálftima viröi,
kom öllum saman um I bílnum á
leiö upp Miklubraut.
Þetta haföi allt saman byrjað
klukkan tólf, fyrir troðfullu húsi
(sem fæstir bjuggust við, sökum
timasetningar hljómleikanna),
og meðal áhorf- og heyrénda
rikti mikil stemmning.
Fyrir miðjum sal hafði Jónas
R. hljóöstjórnandi komiö sér
þokkalega fyrir meö alls kyns
takka, tæki labb-rabb tæki, og
•öðruvisi tæki.
í kringum hann sátu svo menn
einsog Baldur júdasari, Maggi,
sömuleiöis júdasari, Pétur
paradfsari og aðrir góðir menn,
sem vildu fylgjast með.
Allt klárt, Spilverk þjóöanna
birtist, lófaklapp.
Valgeir starir upp I loft, eKki
heyrist stuna úr salnum: ,,Já
mikiö er hátt til lofts hérna”,
(hlátur), dæmigerð Sp.il-
verks-byrjun.
Annars virðist þaö há Spil-
verkinu nokkuð hye víðáttu-
mikið sviðið var, Spilverkið
hvarf beinlinis i öllum þessum
gulbrúnu tjöldum, betur heföi
verið gert, að minnka ljósin dá-
litið, þannig að Spilverkið
stækkaði og sviðið minnkaði
(þar eö Spilverkið notaði ein-
ungis um 1/10 hluta þess).
Annars stóð Spilverkið fyrir
sinu að vanda, nema hvað Axel
einn mælskur maður mjög, fékk
tæplega fimmtán minútna sóló
konsert að gjöf frá Valgeir, sem
heföi satt að segja var algjör ó-
þarfi.
Hermóöur danski rauðbuxni
lék aukahlutverk með Spilverk-
inu i formi kynningar og
„ljóða”-upplesturs, og bættu
þessar rauðu buxur töluvert upp
á.
Eitt lag olli mér þó vonbrigð-
um, en það var „Six pence only”
sem Egill söng i stað Bjólunnar,
saknaði ég þar með hinnar ljúfu
raddar hins siðarnefnda.
Eftir aö Spilverkið hafði lokið
sér af, var gert smá hlé, og
klukkan orðin eitt.
Þokkabót var næst á dagskrá,
og var hún i upphafi tauga-
spennt i þokkabót.
En það lagaðist, sérstaklega
eftir aö Jónas hafði kippt ýms-
um tökkum og tækjum i lag,
svona svo að allir heyröu nú í
pianóinu t.d.
Þokkabót flutti nokkur lög af
„Upphafinu”, t.d. „Litla kassa ”
i „moll” (alveg þrælgott), og
„sólarhringinn” styttu þeir ör-
litið af „Bætiflákum”.
Kannski var dagskrá þeirra
full róleg, fyrir þennan tima
dags, ég meina, ég var næstum
að sofna, og þurfti að mæta i
vinnu daginn eftir?
Þetta sá Eggert Þ. og sprikl-
aði pinulitið fyrir mannskapinn,
honum að sjálfsögðu til mikillar
ánægju.
Eggert fékk að launum mikiö
lófaklapp, er hann hafði lokið
sóló leik sinum, „a la I. Ander-
son”, skrýtinn maður þessi
Eggert?
Þá var Þokkabót búin með
sitt, og klukkan að verða hálf
þrjú, heyrði ég einhvern hrjóta?
Einstaka áheyrandi fór nú að
týnast úr hópnum, á meðan
Kiddi rótari og aðrir grúskarar
settu leiðslur i samband,
kveiktu á rauðum ljósum og
svoleiöis fyrir Einar Vilberg og
Co.
Jæja, þá kom Einar með allt
sitt lið, Guðmund (jesus), Þórð
með gitar og rauðbrúna húfu,
Pálma með bassa og gul gler-
augu, Ásgeir trommara ný-
klipptan og Lárus eiklausan.
Einar byrjaði á rólegu lagi,
sem ég hef ekki hugmynd um ■
hvað heitir, en allavega var það
þrælgott.
1 stuttu máli var framkoma
Einars og Co ánægjuleg, grúpp-
anvirtistmjög vel æfð, enda ný-
komin úr stúdiói, og hljómburð-
ur var Jónasi R. til sóma.
Fimm lög tóku þeir félagar,
en þrátt fyrir lófaklapp i lokin
varð ekki úr aukalögum, enda
klukkan orðin þrjú, og margur
maðurinn genginn að dyrum.
Einhvern veginn fannst mér
þó eins og Einar gildi halda á-
fram, en eflaust hefur forráða-
maður hússins sett honum stól-
inn fyrir dyrnar.
Einar og Co komu sterkast frá
þessum hljómleikum, eini gall-
inn var sá, hversu seint þeir
komu fram.
Þórður sýndi frábæran gitar-
leik, öðrum að ólöstuðum, og
vissulega yrði það gleðilegt að
fá þessa menn saman i „fasta”
grúppu, en þvi er vist ekki að
fagna i bráð, a.m.k.
Nóa töflurnar voru búnar og
súkkulaðið með hnetunum hálf-
bráðið i höndum minum, þegar
ég loksins setti á mig græna
trefilinn, og gekk til dyra ásamt
H.A.
Já, sftrónan hans Arna var á
negldum??
örp.
Þokkabót
Trésmiðjan
VÍÐIR
auglýsir:
h.f.
Eigum mikið og fjölbreytt úrval af
skattholum, skrifborðum og skrifborðsstólum
Hentugt til jólagjafa
Mjðg góðir greiðsluskilmólar
Trésmiðjan VIÐIR h.f. Laugavegi 166 sími
22229