Vísir - 29.12.1975, Blaðsíða 12

Vísir - 29.12.1975, Blaðsíða 12
12 X '"""■..... r Mánudagur 29. desember 1975. VISIR j Jóhannes aldrei leikið betur — sagði fréttamaður BBC um leik Jóhannesar Eðvaldssonar ó laugardaginn „Fótbolti er ekki bara tómur sviti og púl, það sýndi islending- urinn Jóhannes Eðvaldsson á Parkhead á laugardaginn”, sagði þulur BBC er hann sagði frá leik Celtic og Ayr United i skosku úr- valsdeildinni á laugardaginn. „Jóhannes Eðvaldsson fékk að fara heim um jólin og kom hingað rétt i tæka tíð fyrir leikinn, vel hvildur — og ég hef ekki séð hann leika betur. Hann skoraði tvö glæsileg skailamörk og það er honum að þakka að Ceitic hefur nú þriggja stiga forystu,” sagði þulurinn. „Ég er þreyttur, en mjög ánægður,” sagði Jóhannes þegar við spjölluðum við hann i morgun. „Ég rétt náði á völlinn fyrir leik- inn, þvi að ég fór að heiman á laugardagsmorguninn og flugvél- inni seinkaði lítilsháttar, en þetta bjargaðist allt. Mér tókst að skora gott mark með skalla i fyrri hálfleik eftir sendingu frá Danny McGrain og þannig var staðan i hálfleik. t siðari hálfleik tókst Ayr að jafna, en mér tókst að skalla aftur i markið stuttu siðar eftir send- ingu frá Bobby Lenox. Einum leikmanni Ayr — John Doyle var visað af leikvelli, og i lokin skor- aði Kenny Dalglish þriðja mark okkar i leiknum. Orslit leikjanna hérna urðu: Aberdeen—Hibernian 2:2 Celtic—Ayr 3:1 Dundee Utd.—Rangers 0:0 Hearts—St.Johnstone 2:0 Motherwell—Dundee 3:2 Leikmenn Aberdeen voru klaufar að sigra ekki i leiknum við Hibs, Alex Edvards var visað af leikvelli i siðari hálfleik þegar staðan var 2:2 og stuttu sfðar var dæmd vitaspyrna á Hibs — en Williamson spyrnti hátt yfir markið. Rangers náði aðeins jafntefli i markalausum leik i Dundee en Motherwell og Hearts unnu sina leiki svo að munurinn á efstu lið- unum er ekki mikill. Næst verður leikið hérna á ný- ársdag og leikum við þá gegn Rangers á Ibrox og núna snýst allt um þennan leik — ef okkur tekst að vinna höfum við bætt stöðu okkar verulega. Þá leika Dundee — Aberdeen, Hibernian — Hearts, Motherwell — Ayr og St. Johnstone við Dundee Utd,” sagði Jóhannes að lokum. Þess má geta, að leik Rangers og Celtic verður útvarpað á BBC á nýársdag á stuttbylgju kl. 13:00. Staðan er nú þessi: Celtic 18 11 3 4 37:21 25 Rangers 18 9 4 5 29:18 22 Motherwell 18 8 6 4 34:26 22 Hibernian 18 8 6 4 28:23 22 Hearts 18 7 7 4 22:20 21 Aberdeen 18 6 5 7 24:25 17 Dundee 18 6 5 7 28:33 17 Ayr 18 6 4 8 24:32 16 DundeeUtd 18 4 5 9 20:26 13 St. Johnstone 18 2 115 19:41 5 —BB glímukónginn Jóhannes Eðvaldsson rétt náði i leikinn á laugardaginn og skoraði 2 af 3 mörkum Celtic. Tvö íslandsmet fuku ó þeirra sterku Tvö islandsmet voru sett á jóla- móti Armanns i lyftingum, sem háð var í æfingastöð lyftinga- manna i sænska frystihúsinu á laugardaginn. Kári Elísson setti þar nýtt islandsmet i snörun i fjaðurvigt og Hreinn Halldórsson setti einnig met i snörun í yfir- þungavigt. Kári snaraði 90 kg i sinum þyngdarflokki, en mistókst i öll- skiptin i jafnhendingu og var þat1 með úr keppni. Hreinn snaraðj aftur á móti 152,5 kg i yfirþunga- vigtinni — keppendur 110 kg eða meir — og var það 2,5 kg meir en gamla metið, sem hann átti sjálf- ur. Hann jafnhattaði 172,5 kg og lyfti þvi samtals 325 kilóum. í léttþungavigt sigraði Árni Þór Helgason KR, sem nú er staddur heima i jólaleyfi, en hann er við nám i Danmörku. Hann snaraði 105 kg og jafnhattaði 145 kg eða samtals 250 kg. Guðmundur Sigurðsson, Ár- manni reyndi við olympiulág- markið i milliþungavigt — sam- tals 332,5 kg — en tókst það ekki i þetta sinn. Hann lyfti samtals 305 kg — 135 i snörun og jafnhattaði 170 kg. Hann átti mjög góðar til- raunir við 142,5 kg i snörun og 190 kg i jafnhöttun, en ef hann hefði náð þvi upp væri hann öruggur með farseðilinn til Kanada. 1 þungavigt sigraði vestmanna- eyingurinn Friðrik Jósefsso'n. Hann snaraði 140 kg og jafnhatt- aði 170 eða samtals 310 kg. —klp— Övænt úrslit urðu i þyngsta flokki i Reykjavikurmótinu i glimu, sem háð var skömmu fyrir jól. Þar varð sigurvegari Guðni Sigfússon, Armanni, sem lagði alla sina andstæðinga — þar á meðat glimukóng tslands, Pétur Yngvason, Er þetta i fyrsta sinn, sem Guðni sigrar i glimumóti, og kom hann þarna svo sannarlega öllum á óvart. Margar skemmtilegar glimur voru i þessi móti, sem meðal glimumanna er nefnd Flokka- glima Reykjavikur. Sú sem var einna hörðust var i léttþungavigt, þar sem þeir Guðmundur Freyr Halldórsson, Ármanni og Rögn- valdur Ólafsson KR áttust við, stóð sú glima i átján minútur, og er það lengsta glima, sem vitað er um hér á landi i langan tima. Lauk henni með sigri Guðmundar. Þrir fyrstu menn i hverjum flokki urðu annars þess- ir: Yfirþungavigt: Guðni Sigfússon Á. Pétur Yngvason UV. Guðmundur Ólafsson A. Milliþungavigt: Hjálmur Sigurðsson UV. Þráinn Ragnarsson Á. Elias Árnason KR. Léttþungavigt: Guðm. Freyr Halldórsson Á. Rögnvaldur Ólafsson KR. Halldór Konráðsson UV. Reykjavikurmeistari i unglingaflokki varð Sigurjón Leifsson Armanni og i sveina- flokki Helgi Jóhannsson KR. — klp — Blökkumennirnir í bann Jimmy Rogers og Curtiss Carter fengu einn leik í keppnisbann og verða dœmdir í sex leikja bann ef þeir brjóta aftur af sér Blokhin bestur! OLEG BLOKHIN, miðherji Dynamo Kiev og sovéska landsliðsins, var kjörinn „KNATTSPYRNUM AÐUR ÁRSINS 1975” i Sovétrikjun- um. Það er stærsta iþróttablað Sovétrikjanna, sem stendur fyrir kjöri knattspyrnumanns ársins ár hvert i Sovétrikjun- um, og var þetta i þriðja sinn i röð, sem Blokhin hlýtur þetta sæmdarheiti. —klp— Blökkumennirnir Jiminy Rogers og Curtiss Carter, sem þekktur er hér undir nafninu „trukkurinn” voru i fyrradag dæmdir i eins leiks keppnisbann fyrir óprúðmannlega framkomu i leik KR og Ármanns i 1. deild- inni i körfuknattleik á dögunum. Það var Aganefnd KKi, sem kvað upp þennan dóm, en auk þess. segir i honum, að gerist þeir aftur brotlegir þannig að þeir verði kærðir til Aganefnd- ar, verði þeir dæmdir i sex lcikja keppnisbann. Þýddi það þá að þeir gætu pakkað niður og yfirgcfið islenskan körfuknatt- leik. Ármann á að leika við iR i 1. deildinni á laugardaginn kem- ur, og missa ármenningar þvi Rogers i þeim leik. En þeir fá i staðinn Simon ólafsson, sem er heima i jólaleyfi og mun hann leika þennan leik með þeim. KR-ingar eiga aftur á móti næsta leik við Njarðvik — i Njarðvikum — þann 10. janúar, en heyrst hefur að leikur KR og Fram, scm frestað var i haust, fari fram á undan, og geta þá Klt-ingar notað „Trukkinn” i leiknum i Njarðvíkum, og hann tekið út dóminn i leiknum við F.ram, sem KR ætti að geta haft án lians aðstoðar. Armenningar eru mjög óhressir yfir þcssum dómi — telja að þeirra maður hafi ekki átt skilið að fá sama dóm og „Trukkurinn”, sem hafi verið upphafsmaðurinn af slagsmál- unum. En i skýrslu dómaranna um málið var ekkert á það minnst — aðeins að þeim hafi háðum verið visað af leikvelli, og út frá þeirri skýrslu var dæmt. —klp— Siðar um kvöldiö Tommy Galt lenti i árekstri. Þaö var stúlka meö honum i bilnum. Þau eru bæöi á sjúkrahúsi. Komdu með frakkann minn Jeanie!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.