Vísir - 30.12.1975, Page 20
□Dmnu -ud§ ozo- mmi]DZ> ncrroni «ojn-K u-n ZÞNn>-i
20
Þriðjudagur 30. desember 1975. VISIH
Spáin gildir fyrir miðvikudaginn
31. desember:
Hrúturinn
21. mars—20. april:
Hafðu hugann við nám eða starf.
bú hefur ekki haft lengi samband
við vin sem býr fjarri. Atvik sem
gerast i kvöld hvetja þig eindreg-
ið til að bæta úr þvi.
Nautiö
21. april—21. mai:
Viðburðir liðins árs hafa reynt
mjög á þrekið. Fagnaðu nýju ári
létt(ur) i lund, erfiðleikarnir eru
yfirstaðnir.
m
Tviburarnir
22. mai—21. júni:
Það gætir tregablandinna tilfinn-
inga þegar gamla árið er að
kveðja. Dragðu fram i dagsljósið
hugmyndir sem þú hefur lengi
gruflað yfir og reyndu að hrinda
einhverjum þeirra i framkvæmd.
Nýtt ár lofar góðu.
Krabbinn
___21. júni—23. júll:
Athyglin beinist i sifellu að starf-
inu, ekki siður á fridögum en öðr-
um. Taktu eftir þvi sem er að
gerast i kringum þig og hafðu
bæði augu og eyru opin fyrir öll-
um fréttum af vinum og
kunningjum. Margt óvæntgerist.
Ljónift
24. júlí—23. ágústr
Þróunin er örari en þig óraði fyrir
á vinnustað. Haltu áfram rakleitt
á þinni braut og nýja árið færir
þér það sem þú hefur sóst eftir öll
þessi ár.
Meyj-'n
24. ágúst—23. sept.:
Þú hefur einsett þér að slappa vel
af yfir áramótin. Börnin langar
þó til að aðhafast eitthvað
skemmtilegt. Rifðu þig upp úr
sleninu og skemmtu þér með fjöl-
skyldunni.
Vogin
24. sept.—23. okt.:
Reyndu að vera á lausum kili i
kvöld. Farðu út að skemmta þér
og komdu þér i kynni við nýtt fólk.
Eldri meðlimir fjölskyldunnar
gætu stofnað til orðsennu.
Reyndu að leysa málið með
lempni.
Drekinn
_________ 24. okt.—22. nóv.:
Morgunninn er heppilegur til að
dunda út af fyrir sig. Seinni part-
inn væri tilvalið að blanda geði
við nágrannana og þá nánustu.
Stutt ferðalag eða heimsóknir
gætu orðið mjög ánægjulegar.
Bogmaöurinn
23. nóv.—21. des.:
Gerðu eitthvað til að lifga upp á
umhverfið. Það gæti verið nauð-
synlegt að átta sig á ástandi
fjármálanna áður en nýtt ár
gengur i garð.
u
Steingeitin
22. des.—20. jan.:
Tima til yfirvegunar og
umhugsunar er ekki eytt til ónýt-
is. Littu yfir atburði ársins sem er
að liða og gættu að, hvað hefur
áunnist.
Vatnsberinn
21. jan.—10. febr.:
Fyrri hluti dags ætti að vera þér
ánægjulegur. Þú kynnist_
skemmtilegu fólki. Littu yfir
farinn veg og athugaðu hvort þú
hefur á einhvern hátt misstigið
þig-
Fiskarnir
20. febr.—20. mars:
Sjáðu um að þörfum þinna nán
ustu sé fullnægt. Vertu á ferðinni
dag og littu inn til vina og kunn
ingja, en neyttu i hófi þess serr
boðið er.