Lesbók Morgunblaðsins - 19.01.1941, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 19.01.1941, Síða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS traustleik og glaðlyndi fremur en einstakar athafnir og geð- sveiflur. Þó að frú Ásthildur iðkaði aldrei heimsspeki nje siðfræði, var sem alt líf hennar væri sniðið eftir þessu boðorði eða lögmáli. En af því leiðir, að örðugt er að lýsa henni svo vel, að ókunnugir öðlist rjettan skiln- ing á því, hvílík kona hún var. Það er í fyrsta sinn á þrjátíu ára viðkynningu, sem frú Ást- hildur bakar mjer örðugleika, þá er jeg fer að rita um hana. En jeg skil það betur eftir þetta smávægilega ritstarf en áður, hvers vegna veslings söguskáldunum er tamara að lýsa vondum mönnum en góð- um. Pennanum er dælla að eiga við hið illa heldur en hið góða í skaphöfn og fari. En ekki er það mín skuld, heldur frú Ást- hildar, að skug^ana skortir i þessa skaplýsing mína. Hitt er mín sök, að hún er, ef til vill, fjölorð um of. Okkur kennur- unum hættir við að orðlengja, endurtaka, og höfum þar gilda afsökun. Mjer fanst þegar við fyrstu kynni mjög til um frú Ásthildi. Og virðing mín á henni óx við vaxandi kvnning, enda óx hún sjálf á vaxandi mótlæti og raunum. Það eykur ekki síst virðing mína á henni, er jeg ber sálarhreinleik henn- ar og skilningsglöggvan góð- vilja saman við alt það gróm og grugg, er vjer íslendingar eigum flestir að venjast, bæði í sjálfum oss og sveitungum vor- um, í viðureign og viðskiftum hver við annan, í landsmálum og mörgu bókmenta-íóstrinu. Mjer virðist lífsdæmi hennar og viðhorf, ræktað í íslenskri og kristinni menningu, næsta merkilegt, og nytsamt til skiln- ings. Hún svaraði þannig bana- tilræði illra norna við lífsgleði sína og lífslán, að svar henn- ar verður um allar aldir eftir- biæytnisvert, svar hennar er og verður ávalt heilbrigð- asta svarið og viturlegasta svarið, sem slíkum árásum verður veitt. Því hefi jeg af ráðnum hug verið langorður og endurtekið sem í kenslu- stund. Frú Ásthildur Thorsteinsson ljest rúmlega áttræð á útmán- uðum 1938. Sálartjald hennar — eins og Bólu-Hjálmar kall- ar likama sinn — var þá tekið að láta nokkuð á sjá, hárið tekið mjög að hvítna, bakið að bogna, hörundið að slitna. En ekki fekk jeg sjeð. að henni förlaðist nokkuð á andlega vísu. Hún nam enn og mundi vísur, sem henni þótt gaman að, jafnhratt og i æsku væri. Enn.var henni lagið handtakið hlýja, blíðl.vndið skein enn í svip og augum, lifandi hugar- ró, stæld og styrkt í jeljum og hreggviðrum, ljómaði enn sem fagur kvöldroði eða frið- arblítt sólarlag í kvenlegu brosinu. „Og þó húa kvala kendi af kvillum í elli, ’ brúna jafn-heiðskír himinn hugarró sýndi“, kvað Bjarni Thorarensen um aðra íslenska prestsdóttur, og var sama raunin á um frú Ást- hildi. Lengi fram eftir var oft gestkvæmt hjá henni. Jeg sagði eitt sinn í gamni við hana, að það væri ös hjá henni, sem hjá fjölsóttum lækni. — Komu til hennar hinir ólíkustu menn, ungir og gamlir, skyld- ir og óskyldir, alþýðumenn og mentamenn. Enn tók hún með samúð og skilningi þátt í kjör- um þeirra, margvíslegum á- hyggjum og hugai'sviða. Hún hafði óvenju næman skilning á því, hve margt getur amað að mönnum, þótt þeir búi við góð- an efnahag og álitleg kjör að utanverðu. Hún skildi flestum betur, að sumir eru einstæð- ingar, þótt þeir eigi fjölskyldu og hafist við í fjölmenni. Það var eins og henni fyndist, að vjer niðri í hjartadjúpinu vær- um öll systkin, að í oss öllum byggi undir niðri sama lífið. Rann ekki sálarskilningur henn- ar og hluttekning í annara kjör um af slíkri samleiks- og skyldleikskend? Það var ein- kennilegt, hversu saman fóru 23 í henni glöggleikur á mannlegt mótlæti og lífsgleði og bjart- sýni. Sömu einkennin birtast í skáldskap séra Matthíasar. —■ Þetta menningarvænlega lífs- viðhorf virðist vera ættarfylgja. Það er trú mín, að frú Ásthild- ur hefði orðið góð kona næst- um því við hvaða kjör sem hún hefði alist upp.En slíkt er vita- skuld ekki nema trú. Það sýn- ist gilda einu, hver aðstaða sumum veitist. Eigingirni þeirra virðist ólæknandi. Þeir hugsa aldrei um annað en sjálfa sig og eigin-hægindi, brjóta öll drengskaparboð, ef brotið að- eins hrindir þeim ekki í fang hegningarlaganna. — Sumum þeirra hlotnast þó furðu-mikill mannsómi. Aðrir eru eintóm góðvild og samúð, sí-hjálpandi, hversu kalt og biturt, sem á móti blæs. En sú fylking er, því miður, of fámenn á vorri jörð. Ef trúar- og blómadraumur l'rú Ásthildar rætist, verður oft sálkvæmt á blómsturvöllum hennar í rikinu fyrir austan tungl og sunnan sól. Það verð- ur áreiðanlega ein hin fyrsta ferð sumra, að leita á hennar fund, þá er þeir koma á þau ódáinslönd. Lesendur hafa, ef ti! vill, tekið eftir því, að jeg hefi oft vitnað í kvæðabrot í þessum eftirmælum. — Jeg hygg, að þetta stafi meðfram af því, að hún sjálf var eitt hinna hug- Ijúfu ljóða, sem hinn mjög- frjóvi og mikilvirki meginhöf- undur yrkir, er vel liggur á honum, á milli þess er hann kveður hinar ógnum tryltu hrynhendur sínar og blóði sollnu Darraðarljóð. « Sigurður Guðmundsson. Faðiriun: Jæja, Nonni minn. áttu marga vini í skólanum? Nönni: Nei. enga. Faðiriun: Hvernig stendur á því? Nouni: Mjer er illa við þá, sem lumbra á mjer, og þeim, sem jeg lumbra á, er illa við mig.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.