Lesbók Morgunblaðsins - 19.01.1941, Blaðsíða 16
32
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
SIGURVEGARAR
Ástralskir hermenn hafa getið sjer mikla frægð fyrir hreysti í
sókn Breta í vestursandauðninni. — Á myndinni sjást nokkrir ástr-
alskir hermenn í Egyptalandi í viðræðum við innfædda menn.
Um auglýsinga-
skrum.
Framh. af bls. 28.
barkakýlið lyftist upp þegar kingt
er, en tekur hvorki dýfur nje
hrapar). — „Stúlkan hafði alt í
einu skipt um registur‘‘ (registur
á líkl. að þýða raddblær eða tón-
tegund, en sú merking orðsins er
ekki til í íslensku — bls. 273)-. —
Á bls. 282 eru eftirmæli eftir Ei-
lífðardaða, sem skáldið kvað, er
hann hugði Daða inni brendan í
Höll sumarlandsins; er síðasta er-
indið svona — og þarf víst engar
undirstrikanir til þess að menn
skynji ilminn af skáldskapnum:
Á morgun ó og aska, hí og hæ
og ha og uss og pú og kanski og
sei-sei
og korríró og amen, bí og bæ
og bösl í hnasli og sýsl í rusli og
þey-þey. —
Þetta erindi gefur ekkert eftir
vísunni, sem kend er við Æru-
Tobba, og tel jeg vel til fundið
að láta það reka blómvandalest-
ina úr Höll sumarlandsins, þótt
enn sje margt af sama tagi og
tilvitnanirnar hjer á undan ótínt
úr þeim „ilmandi" sjrrúðgarði.
S k á k.
Skákþing íslendinga 1922.
Franski leikurinn.
Baráttan um fyrsta sætið.
Hvítt: Stefán Ólafsson.
Svart: Eggert Gilfer.
1. e4, e6; 2. d4, d5; 3. Rc3, Rf6;
4. Bg5, Bb4; (Venjulegra er Be7.)
5. e5, BxR; (Betra er 5.......h6;
en eftir 6. Bd2, stendur hvítt bet-
ur.) 6. pxB, h6; 7. Bcl, Rfd7; 8.
Dg4, g6; (Svart hefir þegar neyðst
til að veikja peðastöðuna kongs-
megin all tilfinnanlega. Það er
eftirtektarvert við skákir Stefáns
heitins að hann hefir teflt byrj-
anirnar betur en flestir eða allir
samtíðarmenn hans.) 9. Bd3!, Rf8;
(Ljótur leikur, en alt um það
nauðsynlegur. Hvítt hótaði 10.
B‘xg6, og ef pxB; þá 11. Dxp+,
Kf8; 12. Bxh6-f, og hvítt vinnur.
Ef 10.......Hg8; þá 11. Dxe6-(-,
De7; 12. Bxf7+, og svart tapar
hrók og 3 peðum.) 10. Rf3, h5;
11. Dg3, C5; 12. 0—0, c4; 13. Be2,
Rc6; 14. Bg5, Re7; 15. Bf6, Hg8;
16. Rg5, Dc7; 17. h3, Bd7; 1S.
Df4, Bc6; 19. g4, hxg; ^0. hxg,
Rc8f; 21. Kg2, Rb6; 22. Hhl,
Ba4; 23. Hacl, IIc8; 24. Hh3, Db8;
(Svart sjer enga leið út úr ógöng-
unum sem ekki er von.) 25. Hchl,
Bxp; 26. Hh8, HxH; 27. HxH,
Rbd7; 28. Rh7, (Bg7 var líka
gott.) 28.....g5!; 29. Rxg5, Bg5;
30. Bg7, Ke7; 31. Bf6+, Ke8; 32
Bg7, Ke7; 33. Bf6+, (Hvítt þrá-
leikur til þess að vinna umhugs-
unartíma.) 33.......Ke8;
34. BdlH, (Eina leiðin til að vinna
skákina í fljótum hasti. Hvítt hór,-
ar Bg7, Ke7; Bc2, og f7 reiturinn
verður varnarlaus.) 34.......b5;
35. Bg7, f6; 36. BxR, RxB; 37.
HxR+, KxII; 38. Dxf6+, Ke8; 39.
DxB+, gefið.