Lesbók Morgunblaðsins - 08.03.1942, Blaðsíða 6
38
LESBÖK MORQUNBLAÐSINS
Winston Churchill forsætisráðherra við stýrið á flugbátnum Berwick,
sem hann flaug í austur yfir Atlantshaf.
herrann til klefa síns og vann um
stund með ritara sínum. Jeg kom
skömmu síðar í klefa hans til að
spyrja hvort hann vildi sjá eyj-
arnar úr lofti um leið og við nálg-
uðumst þær. Hann sagði að sig
langaði mikið til þess og settist
í sæti aðstoðarflugmannsins, þar
sem hann gat sjeð vel. Forsætis-
ráðherrann sat þarna ú meðan jeg
lenti.vjelinni. Þetta eru sjerrjett-
indi, sem farþegum eru ekki veitt,
en lendingarskilyrði voru góð, svo
jeg gat lent einn.
Á meðan staðið var við í Ber-
muda voru gerðar þær ráðstafan-
ir, sem gera þurfti til undirbún-
ings Atlantshafsfluginu. Áhöfnin
á flugbátnum stóð aðf öllu leyti
vel í stöðu sinni. Þeim var öllum
Ijóst, hve mikil ábyrgð hvíldi á
okkur og hversu mikill heiður
okkur var veittur með því að
trúa okkur fyrir þeirri ábyrgð.
Það kom ekkert óvenjulegt fyr-
ir er við lögðum af stað. Flug-
vjelin var á flugi 57 sekúndum
eftir að sett hafði verið á fulla
ferð. Flugáætlun var gerð og var
áætlað -að við myndum verða 17
stundir og 25 mínútur á flugi,
frá því við hófum okkur til flugs
og þar til við settumst aftur.
Hádegisverður var framborinn
skömmu eftir að lagt var af stað.
Forsætisráðherrann mintist á, að
þar. sem hann hefði snætt morg-
unverð í klefa sínum, myndi sig
langa til að borða hádegisverð
með hinum farþegunum. Jeg
drakk kaffi með þeim eftir mat-
inn. Eftir þetta fór forsætisráð-
herrann til klefa síns og sagði
mjer síðar, að hann hefði lagt sig
til svefns og sofið prýðilega.
Sir Charles Portal og Beaver-
brook lávarður höfðu mikinn á-
huga fyrir stjórntækjum vjelar-
innar og útbúnaði öllum, einkum
því sem frábrugðið var því, sem
gerist á hernaðarflugvjelum.
Churchill öfundaði
flujímanninn.
Síðar um daginn hjelt forsætis-
ráðherrann áfram að vinna. Hann
hafði svo mikinn áhuga fyrir ferð
okkar, að jeg varð hvað eftir ann-
að að koma til klefa hans til að
skýra frá hvernig ferðin gengi og
skýra öll smáatriði. Síðar tók jeg
upp á því að senda honum frjetta-
pistla af ferðinni á tveggja stunda
fresti. í pistlunum voru upplýs-
ingar um hvar vjelin var stödd í
það og það skiftið, ásamt hraða
frá því lagt var af stað, hvað
mikið væri eftir af bensíni og
annað, sem máli skifti.
Um nóttina komu þeir forsætis-
ráðherrann og Beaverbrokk lá-
varður aftur í stjórnklefann. Við
flugum gegnum stjörnubjart liim-
inhvolfið og skýjarönd var rjett
aðeins sýnileg yst við sjóndeildar-
hringinn fyrir neðan okkur. Bæði
forsætisráðherrann og Beaver-
brook lávarður sögðu að þeir öf-
unduðu mig.
Við höfðum altaf nægilega olíu
til að komast til hvaða staðar
sem var í Bretlandi. f dagrenn-
ingu birti til og enn, einu sinni
kom forsætisráðherrann upp í
stjórnklefann til mín til að sjá
dag renna. Hann hafði sofið vel
alla nóttina. Þegar hann var að
kLæða sig hafði hann orð á því
við þjóninn, að skórnir hans væru
kaldir. Þjónninn bætti úr því og
hitaði skó forsætisráðherrans í
hitaofni.
★
Allir farþegar höfðu lagst. til
svefns um nóttina nema Beaver-
brook lávarður, sem sat og las í
bók alla nóttina. Skömmu eftir
dögun fór forsætisráðherrann n;ð-
ur og borðaði morgunverð með
hinum farþegunum, en kom síðan
aftur til að sjá, er við nálguðumst
bresku ströndina. Hann hafði borð
að með hinum farþegunum í öll
mál og kvöldverðurinn kvöldið
áður hafði verið hátíðamatur. Það
var köld súpa, rækju-„cocktail“,
nýr fiskur með grænmeti, sætur
ábætir og kaffi á eftir.
Nokkrum stundum fyrir dögun
höfðum við fengið veðurfregnir
frá ýmsum stöðum á Englandi og
um leið og dagur skein fengum
við fregnir frá Plymouth, þar sem
okkur var ráðlagt að lenda þar.
Jeg fjelst strax á það og breytti
þar af leiðandi um stefnu. Þrátt
fyrir lítinn fyrirvara var alt tiÞ
búið að taka á móti okkur, meira
að segja heiðursvörður.
I flugáætluninni hafði, eins og
jeg hefi verið sagt, verið gert ráð
fyrir um 17 klukkustunda og 2-á
mínútna flugi. Leiðin, sem við
höfðum faiúð, var 3.365 mílur og
við höfðum verið á flugi í 17 klst.
og 55 inínútur.
„Blóðhundur til sölu. Hver vill
eignast góðan varðhund, eins árs
gamlan. Besta skepna, þæg og
meinlaus. Jetur alt og er sjerstak-
lega mikið fyrir börn“. (Áug'
lýsing).