Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1943, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1943, Qupperneq 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 117 Safnaðarstjómin 1943. Talið frá vinstri: Standandi- Jón Einarsson verkstj., Jóhann Tómasson skipstj. Sitjandi: Gísli Sigurgeirsson verkstj., Guðjón Magn- ússon skósmíðameistari og Sigurður Guðmundsson kaupmaður. dal, verksmiðjueigandi á Set- bergi, Oddur póstafgreiðslu- maður ívarsson, Davíð Krist jánsson, trjesmíðameistari, Eg- ill kaupmaður Eyjólfsson og Jón Þórðarson, kaupmaður. all- ir í Hafnarfirði. Fyrsti stjórn- arformaður var Jóhannes J. Reykdal, en ári síðar tók við af honum Jón Þórðarson kaup- maður og hjelt hann formanns- stöðunni til ársins 1933. Þá varð hann að láta af henni sökum aldurs og sjóndepru. — Var þá formannsstarfið falið Finnboga J. Arndal, þáverandi bæjarfógetafulltrúa í Hafnar- firði. Hafði hann verið kosinn í stjórn safnaðarins 1929. Ár- ið 1938 varð Loftur Bjarnason útgerðarmaður, formaður safn aðarstjórnar. — Var hann kos- inn í stjórnina 1936. Guðjón Magnússon, skósmíðameistari, var kosinn í i stjórnina 1938 og varð hann formaður hennar árið 1939 og hefir ver- ið það síðan. Auk hinna framantöldu manna hafa setið í stjórn safn aðarins, á þessu 30 ára tíma- bili, þeir: Sigfús Bergmann, kaupmað- ur 1914—1915 og 1917—19. Guðmundur Helgason, bæjar- gjaldkeri, 1914—17 og 1919— 29. Þórarinn Böðvarsson, fram- kvstj. 1914—21. ólafur V. Davíðsson, framkv.stj. 1915— 26. Þórðar Einarsson, bókhald- ari, 1917—19. Pjetur V. Snæ- land, afgrm. 1919—24. Guðm. Einarsson, trjesm.meistari 1921 —36 og 1938—40. ólafur Böð- varsson, sparisjóðsbókari, 1924 —35. Sigurður Þórólfsson, verkstj., 1926—37. Helgi ól- afsson, trjesm.. 1937. Jóhann Tómasson, fyrv. skipstjóri 1933 og síðan. Sigurður Guðmunds- son, kaupm. 1940 og síðan. Gísli Sigurgeirsson, verkstjóri, 1938 og síðan og Jón Einarsson verstj., 1938 og síðan. Skipa því hinir fjórir síðast- nefndu menn, ásamt stjórnar- formanni, Guðjóni Magnússyni skósmíðameistara, hina núver- andi stjórn safnaðarins. Safnaðarráðsmenn hafa ver- ið þessir: Finnbogi J. Arndal 1913— 17 og 1921—29. Magnús Krist- jánsson 1913—14. Þórður Ein- arsson 1914—17 og 1920—21. Gísli Gunnarsson 1917—20. Sí- mon Kristjánsson 1917—20 og 1922 og síðan. Helgi ólafsson, 1920—22. Jóhann Kr. Helga- son 1928 og síðan. Magnús Guðmundsson 1928—29. Eyj- ólfur Stefánsson 1931—32. Jón Einarsson 1931—33. Kristinn J. Magnússon 1934 og síðan. Jón Hjörtur Jónsson 1934 og síðan. Meðhjálparar hafa verið þeir: Jón Þórðarson, kaupm., frá stofnun safnaðarins til 1933. — Tól{ þá við starfinu Sigurður Þórólfsson og hafði það á hendi til ársins 1937. En það ár and- aðist hann. Eftir þann tíma og fram til þessa hefir Kristinn J. Magnússon haft meðhjálp- arastarfið á hendi. Hringjarastarfið við kirkj- una hafði á hendi fyrstu árin Bjarni verkstjóri Erlendsson, þá tók við því Eyjólfur Uluga- son málari og hjelt því til árs- ins 1928. En þá andaðist hann. Var starfið þá falið ólafi söðla smið Thordarsen og hefir hann haft það á hendi síðan. Umsjón með kirkjunni höfðu fyrstu 15 árin, þau hjónin, Jón Þórðarson kaupm. og kona hana Guðrún Magnúsdóttir, en þá tóku við því hjónin Jóhann K. Helgason og Guðrún Helga dóttir og hafa þau haft það starf á hendi síðan. Við fyrstu guðsþjónustur safnaðarins var organisti Frið- rik tónskáld Bjarnason í Hafn- arfirði, en eftir tæplega 1 ár varð hann að láta af því starfi vegna heilsubilunar, sem hann fekk þó bót á síðar. Við org- anista starfinu tók þá Salómon Heiðar bókhaldari og hafði hann það á hendi til ársins 1921. Á eftir honum gegndu starfinu um nokkurt skeið Pjetur Lárusson, nótnasetjari og Kjartan Jóhannesson org- anleikari, báðir úr Reykjavík. Síðan tók Salómon Heiðar við því á ný og gegndi því til ’26. er hann fór af landi burt, en þá tók við því aftur Kjartan Jóhannesson og hafði það á hendi til ársins 1930, en síðan gegndu því Lárus Jónsso'n, söngkennari, Gísli Sigurgeirs- son og Kristinn Ingvarsson, org anleikari úr Reykjavík. Ljet hann af starfinu í ág. 1939. Tók þá aftur við því Gísli Sigur- geirsson um skeið. Nú er ogan- isti við kirkjuna Guðjón Sigur- jónsson, Hafnarfirði. Safnaðarmaðurinn Sigurjón Arnlaugsson æfði um 4 ára skeið unglingasöngflokk er hann’ Ijet syngja við barnaguðsþjón- ustur í kirkjunni. Kirkjan hefir jafnan haft góðan söngflokk og hefir hann

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.