Lesbók Morgunblaðsins - 26.03.1944, Side 14

Lesbók Morgunblaðsins - 26.03.1944, Side 14
134 LESBÖK MORGUNBLAf)SlNS Hughraustur fram í andlátið Brjef frá dauðadæmdum ninn. 18. sjeptemher s. L dirnidi þýski heiTjctturinn í Bosancon (Frakklandi) sextán unga menn til dauða. og voru þeir sakaðir um „hermdiUTork“ * Að morgui hins 26. sept. voru þessir uagu menn líflátnir. ITjer birtist brjcf, sem hinn yngst i þcssara manna, irenri FcrtoJ, 1G ára gamall, skrii'aði l'oreldrum sínum, rjett áður en hatm var skotinn. Brjcf þetta birtist í franska Ieyni- blaðinu „Libération'‘ 19. okt. Kæru foreldrar! Brjef mitt mun valda ykkur mikilli sorg, en jeg hefi sjeð ykk- ur svo hugrökk að jeg efast ekki um það, að þið haldið hugrckki ykkar, þó að ekki væri vegna ann- ars en ástar ykkar á mjer. Þið vitið ekki hvað mikið jcg hefi þjáðst af því, að sjá ykkur ekki Iengur, að finna ekki lcngnr viðkvæma umhyggju ykkar vaka yfir mjer úr fjarlægð. I þessa 87 daga, sem jeg hefi verið í fajiga- klefanum, hefir mig vantað ást ykkar miklu fremur en böglasend- ingar ykkar, og oft hefi jcg beðið ykkur að fyrirgefa mjer það böl, sem jeg hefi valdið ykkur. I>ið get- ið ekki cfast um það, að jeg eiska ykkur núna, en áður var það miklu fremur af vana. Xú skil jcg alt, sem þið hafið gert fyrir mig. .]eg licld, að jeg beri núna reglulega sonarást til j’kkar, sanna sonar- ást. Et’ til vill talar einhver fjelagi við ykkur um mig et'tir stríðið og um ]iessa ást, scni jcg hefi sagt honum frá. .log vona, að hann bregðist ekki þessari skyldu, sent er heilög hjeðan í frá. Þakkið öllum, seiri látið hafa sjer ant um mig, sjerstaklcga nánustu frændum og vinuni, Segið þeiin frá trú minni á hið eilífa Frakkland. Kyssið innilega afa minn. og ömmu, frændur rnina og frænkur og Henriettc (vnikona fjölskylduun- ar). Jeg þakka drottni þann keiður, sem hann hefir sýnt mjor og jeg held, að jeg hafi varðskuldað. Ennfremur kveð jcg nú fcigur alla fjelaga inina frá mentaskólamun. Er jeg minnist þeirra, man jcg cft- ir því, að A... skuldar mjer vindl- ingapakka, J. .. hefir að láni frá mjer bók um frummanninn, skilið „Greifanum af Monte Christo“ til E..., afhendið Maurice A... 40 grömm af tóbaki, sem jeg skuída honum........ Jeg dey fyrir föðurland mitt. •Jeg vil frjálst Frakkland og ham- ingjusama Frakka. Ekki þóttafýlt Frakkland eða fremstu þjóð' í heimi, heldur Iítið vinnusamt og heiðar- lcgt Frakkland. Aðalatriðið er, að Fnikkar sjeu hamingjusamir. Það, sem mestu niáli skiftir, er að kunna að finna gæíuna í llfinu. Jlafið cngar ;|hyggjur út af mjcr. .Jog hold hugrokki mínu og góðn skapi alt til enda og jcg syng „Sambre ot Meuse“, af því það ert þú, elsku mamma mín, sem hcfír kcnt mjor það. Ilermennirnir koma að sækja mig. Jeg hraða mjer. Ilithönd mín oi' ef til vill dálítið skjálfandi. on það cr bara af því, að jeg hefi svo stuttan blýantsstúf. Jeg or okki hræddur við dauðann. Jog hefi svo rólega samviskú. Pabbi, elsku pabbi, ininstu þi’ss. að þegar jeg dey, þá er það mjor til góðs. Hvaða dauðdagi gæti verið mjer til meira hciðurs? Jeg dey af frjálsum vilja fyrir föður- land mitt. Við hittumst bráðlcga öll fjögur á himnum. Verið þið sæl dauðiini Icallar á mig. Jeg vil l\orki láta bindá fyr- ir augu mjer nje binda hendúr mínar. Jeg kyssi ykkur ölL En það er samt fiart að devja. Þús- und kossar. ..Lifi Frakkland!" Dauðadæmdur unglingur, 16 ára. Henri Fertet. - Ifnda blandan Framhald af bls. 133. Þegar hann kom aftur fram í forstofuna, var Katherine að fara upp stigann. „Er nokkuð að frjetta núna, herra Lantry?“ sagði hún og hló glettnislega. Con lyfti henni hátt í loít upp. „Frjettirnar oru þær“, sagði hann, „að við giftum okkur“. „Sleppið mjer, herra minn!" hrópaði hún reiðilega'*, oða jeg skal. —0, Con hvernig fjekstu kjark til að segja þetta?“ Xcnna inn: — Jeg vona ai> jeg hafi ekki sjcð, að þú litir á bók- ina hjá Frissa, Tomnn minn. Tommi: — Jeg vona það líka. ★ Matreiðslukonan: — Jeg þarf ao skrcppa frá, frú. Verð nákvæmlegá þrjár inínútur. Frúin: — Jæja. en láttu eggin sjóða á meðan, svo við fáum einu sinni mátulega soðin egg.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.