Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1946, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1946, Page 1
t 15. tölublað. Sunnudagur 12. maí 1946 XXI. árg. laafoldarpratMtff)* M Asmundur Helgason: EIRÍKUR Á KARLSKÁLA Höfundur þessarar frásagnar, Ásmundur Helgason frá Bjargi, var um 10 ár vinnumaður hjá Eiríki á Karlskála, og er honum því manna best trúandi að lýsa rjett þeim merka bónda og rausnarheimili hans. Ásmundur á nú heima hjer í Reykjavík og hefir það sjer til dægrastyttingar í ellinni oð rita endurminningar frá fyrri dögum. EIRÍKUR var fæddur 20. ágúst 1830 á Kirkjubóli í Vaðlavík. For eldrar hans voru Björn bóndi á Kirkjubóli fæddur 1793 í Teiga- gerði, og Guðlaug Pjetursdóttir bónda á Karlsskála. Þau eignuð- ust 10 börn, sem náðu fullorðins- aldri. Var þarna því þungt heimili og vöndust systkinin snemma á það að vinna. Til þess að framfleyta þessum stóra barnahópi þurfti að hafa all- marga gripi, enda var jörðin stór og' góð frá náttúrunnar hendi til að framfleyta góðum bústofni, ef vinnukraffur var nægur. Kom það ekki síst í hlut Eiríks að annast fjárgeymslu alla tíma árs, því að hann var óvenjulega ljettur á fæti og hið mesta fjárauga, mátti svo kalla að hann lifði sig inn í þarfir, þol og líðan skepnanna, sjerstak- lega þó sauðfjársins. Hann vandist ‘ungur á að hirða lambær um sauð- burðinn og varð líka sannur snill- dngur í því að meðhöndla veik ung- lömb svo að þau lifnuðu við. Þá stóð hann að vetrarlagi yfir fje, er þess þurfti með, en það var þá al- mennur vani. Fór honum þá sem fleirum að hann gerði sjer margt til dægradvalar og til að halda á sjer hita* Vandist hann þannig á ýmsar íþróttir, svo sem að stökkva á staf, hlaupa og halda sjer uppi á staf. Sagði hann mjer svo frá, að með þeirri æfingu hefði hann einu sinni bjargað lífi sínu, og bar það þannig til. • Þetta var á þorra árið 1854. Ei- ríkuy var þá hjá föður sínum á Kirkjubóli. Þar var það venja að láta hestana hafa ofan af fyrir sjer uppi á fjalli á meðan þess var nokk ur kostur. En þegar snjóbylji eða stórviðri hafði gert, var altaf geng- ið til hrossanna til þess að vita hvernig þeim liði. Að þessu sinni hafði gert norðaustan snjóbyl, en harðfenni var undir í giljum. Morg Eiríkur Björnsson uninn eftir bylinn lagði Eiríkur á stað að vitja hestanna. Fann hann þá suma á allstórum grasbletti sem nefnist Sauðavellir, en 3 vantaði. Sá hann þá uppi í grasbotni, sem kallaður er Efri-Sauðavellir, sunn an í fjallinu Sauðatind. Þar á milli er allbrattur melur, en vestast í honum smá gil, sem náði niður alla kletta og brekkur vestan við bæinn Krossanes. Eiríkur tróð nú slóð skáhalt upp melinn, þar sem hann hugðist reka hestana niður ofan við gilið, en vanalega var far- / \ 0

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.