Lesbók Morgunblaðsins - 08.02.1948, Side 1
5. tölublað
XXIII. árgangur
0ti0tltlirlabtfítMi
Sunnudagur 8. febrúar 1948
Árni Óla: Arnarhóll I.
VÍGGIRÐINGAR REYKJAVÍKUR
-> •
Reykjavík um 1780. ArnarhóII skagar lengst fram.
SVO segir í Landnámabók:
„Þá er Ingolfur sá ísland, skaut
hann fyrir borð öndvegissálum sínum
til heilla; hann mælti svo fyrir, að
hann skyldi þar byggja, er súlurnar
kæmi á land. Ingolfúr tók þar land
er nú heitir Ingolfshöfði . . . Vífill og
Karli hjetu þrælar Ingolfs; þá sendi
hann vestur með sjó að leita öndvegis
súlna sinna . . . Fundu þeir öndvegis-
súlur hans við Arnarhvál fyrir neðan
heiði . . . Ingolfur tók sjer bústað þar
sem öndvegissúlur hans höfðu á land
komið. Hann bjó í Reykjarvík“.
Arnarhóll hjet seinna bær hjer og
stóð þar sem nú er líkneski Ingolfs
Arnarsonar. Hefur nafnið fest við
hólinn, þar sem líkneskið stendur og
er hann nú í daglegu tali nefndur
Arnarhóli. En eigi er alveg víst að
það sje sá Arnarhóll, sem Landnáma
talar um. Norðan við þennan hól var
áður annar hóll, sem skagaði eins og
höfði út í sjóinn, og var mýrarslakki
á milli þeirra. Þessi hóll eða höfði
var einnig nefndur Arnarhóll, og höf-
um vjer fyrir satt að það hafi verið
sá Arnarhóll er Landnáma nefnir og
þar hafi öndvegissúlur Ingolfs borið
að landi. En þegar bærinn, sem við
hann var kendur, var byggður á hóln-
um fyrir sunnan, þá hafi nöfnin oft
ruglast og að minnsta kosti hefur
höfðinn stundum verið nefndur Arnar
hólsklettur.
Það eru líkur til þess að Arnarhóll
hafi nokkuð snemma orðið sjálfstæð
jörð. Er hennar fyrst getið 1534 og er
það ár gefin Viðeyjarkláustri (af
Hrafni Guðmundssyni). Kemst hún
svo undir konung ásamt öðrum eign-
um klaustursins.
Árið 1764 var bygt tukthús í Arn-
arhólslandi (nú Stjórnarráðshúsið)
og var afgjald jarðarinnar í fyrstu
lagi til þess. Seinna fekk ráðsmaður
tukthússins leigulausa ábúð á jörð-
inni og enn seinna var jörðin fengin
stiptamtmanni til# afnota og síðar
landshöfðingja.
Þegar fyrsta útmapling kaupstaðar-
lóðar Reykjavíkur fór fram (1787)
er þar með talin „spilda af Arnar-
hólslandi fyrir norðan og norðaustan