Lesbók Morgunblaðsins - 08.02.1948, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 08.02.1948, Page 1
5. tölublað XXIII. árgangur 0ti0tltlirlabtfítMi Sunnudagur 8. febrúar 1948 Árni Óla: Arnarhóll I. VÍGGIRÐINGAR REYKJAVÍKUR -> • Reykjavík um 1780. ArnarhóII skagar lengst fram. SVO segir í Landnámabók: „Þá er Ingolfur sá ísland, skaut hann fyrir borð öndvegissálum sínum til heilla; hann mælti svo fyrir, að hann skyldi þar byggja, er súlurnar kæmi á land. Ingolfúr tók þar land er nú heitir Ingolfshöfði . . . Vífill og Karli hjetu þrælar Ingolfs; þá sendi hann vestur með sjó að leita öndvegis súlna sinna . . . Fundu þeir öndvegis- súlur hans við Arnarhvál fyrir neðan heiði . . . Ingolfur tók sjer bústað þar sem öndvegissúlur hans höfðu á land komið. Hann bjó í Reykjarvík“. Arnarhóll hjet seinna bær hjer og stóð þar sem nú er líkneski Ingolfs Arnarsonar. Hefur nafnið fest við hólinn, þar sem líkneskið stendur og er hann nú í daglegu tali nefndur Arnarhóli. En eigi er alveg víst að það sje sá Arnarhóll, sem Landnáma talar um. Norðan við þennan hól var áður annar hóll, sem skagaði eins og höfði út í sjóinn, og var mýrarslakki á milli þeirra. Þessi hóll eða höfði var einnig nefndur Arnarhóll, og höf- um vjer fyrir satt að það hafi verið sá Arnarhóll er Landnáma nefnir og þar hafi öndvegissúlur Ingolfs borið að landi. En þegar bærinn, sem við hann var kendur, var byggður á hóln- um fyrir sunnan, þá hafi nöfnin oft ruglast og að minnsta kosti hefur höfðinn stundum verið nefndur Arnar hólsklettur. Það eru líkur til þess að Arnarhóll hafi nokkuð snemma orðið sjálfstæð jörð. Er hennar fyrst getið 1534 og er það ár gefin Viðeyjarkláustri (af Hrafni Guðmundssyni). Kemst hún svo undir konung ásamt öðrum eign- um klaustursins. Árið 1764 var bygt tukthús í Arn- arhólslandi (nú Stjórnarráðshúsið) og var afgjald jarðarinnar í fyrstu lagi til þess. Seinna fekk ráðsmaður tukthússins leigulausa ábúð á jörð- inni og enn seinna var jörðin fengin stiptamtmanni til# afnota og síðar landshöfðingja. Þegar fyrsta útmapling kaupstaðar- lóðar Reykjavíkur fór fram (1787) er þar með talin „spilda af Arnar- hólslandi fyrir norðan og norðaustan

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.