Lesbók Morgunblaðsins - 15.02.1948, Blaðsíða 2
78
LESBÖK MORGUNBL'AÐSINS
%<
»
tv
Thor Thors heldur rœðu á þingi Sameinuðu þjóðanna.
var hjá okkar duglega formanni. Því
miður hefur Dr. Evatt orðið að fara
heim til sín til Ástralíu. Jeg get ekki
látið hjá líða að geta þess, að at-
hugasemdirnar út af því, að sátta-
tilraunimar hefðu ekki verið nægilega
reyndar, hefðu verið tilhlýðilegri ef
Dr. Evatt hefði verið viðstaddur hjer.
Það var hægt á öllum tímum að koma
fram þessum athugasemdum í Pal-
estínunefndinni.
Má jeg nú gefa skýrslu um það,
sem Dr. Evatt sagði í Palestínunefnd-
inni. 19. nóvember, 1947? Á 23. fundi
nefndarinnar spurði fulltrúi frá Vene-
zuela: •
„Nefndin kaus hjer þrjár undir-
neíndir, ekki aðeins tvær heldur var
sú 3ja skipuð til að koma á sáttum.
Þessi 3ja nefnd var skipuð samkvæmt
tillögu frá fulltrúa Venezuela, og var
ætlast til þess að hún talaði við báða
þessa aðila í deilunni. Jeg leyfi mjer
allra virðingarfylst að spyrja for-
manninn hvað nefndin hafi gjört í
þessu máli og jeg er honum þakklátur
fyrir ef hann vildi skýra frá árangr-
inum.“
Formaðurinn sagði: „Það eina, sem
jeg get sagt nú er það, að jeg og f je-
lagar mínir, varaformaður nefndar-
innar, fulltrúi Síam, og framsögumað
urinn, fuiltrúi íslands, hafa ekki
gleymt okkar skyldu. Við reyndum að
fá aðilana til að talast við, en eðli
okkar tilrautia var slíkt, að jeg má
ekki gjöra opinber svörin, sem við
fengum, eða þau tilmæli, sem okkur
bárust, og þessu fór fram allan tím-
ann. En í sannleika sagt eftir þeim
svörum að dæma, sem við íengum, var
.mjer það augljóst, að það mátti heita
útilokað, að málinu yrði ráðið til far-
sælla lykta. En það er víst að fram
"^l
að þessari stundu höfum við haft í
frammi alla viðleitni, sem hugsast gat.
Við skrifuðum nokkur brjef í sam-
ræmi við óskir allsherjarnefndarinn-
ar, en jeg áleit að það mundi aðeins
gjöra málið erfiðara.ef jeg færi lengra
en að skýra frá því, að okkur fanst
verkefni okkar vera örlagaríkt, og að
við hefðum ekki vanrækt það.“
Hinn 22. nóvember, á 28. fundi
nefndarinnar, gaf Dr. Evatt aðra
skýrslu til svars við athugasemdum
frá fulltrúa E1 Salvador: „Jeg hygg
að Mr. Castro hafi ekki verið viðstadd
ur á fundi nefndarinnar þegar jeg
skýrði henni frá því, sem gjörst hafði
í sambandi við tilraunir okkar til að
sætta aðila þessa máls. Varaformaður
nefndarinnar, framsögumaður og for-
maður hennar rannsökuðu máliö frá
öllum sjónarmiðum. Við komumst að
þeirri niðurstöðu að fram til þessarar