Lesbók Morgunblaðsins - 24.10.1948, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 24.10.1948, Page 1
XXUl. árgangui 38. tölublað Sunnudagur 24. október 1943 Árni Óla: ÁRBÆJARM ÁRIÐ 1704 var tvíbýli á Árbæ í Mosfellssveit. Á hálflendunni bjó Sæmundur Þórarinsson, ættaður frá Grímsnesi, og kona hans Stein- unn Guðmundsdóttir. Hún hafði verið tvígift áður, og var Sæmund- ur þriðji maður hennar. Fyrsti mað ur Steinunnar hjet Bergur og með honum átti hún tvö börn, Guðmund og Guðrúnu. Miðmaður hennar hjet Erlendur og m'eð honum hafði hún átt einn son Berg að naíni. Voru þessi þrjú börn hennar á heimilinu, en þeim Sæmundi hafði ekki orðið barna auðið. Samkvæmt manntalinu 1703 var Sæmundur nú fertugur að aldri, en Steinunn 43 ára. Börn hennar af fyrsta hjónabandi voru upp kom- in, Guðmundur tvítugur og Guðrún 19 ára. En yngsta barnið, Bergur, var 7 ára. Á hinni hálflendunni bjó maður að nafni Sigurður Arason. Hann var 26 ára að aldri og ókvæntur. Hjá honum var móðir hans. Guð- rún Grímsdóttir, rúmlega hálfsjö- tug að aldri, og unglingspiltur sem Oddur hjet Böðvarsson. — Nú bar svo til, mánudagsmorg- un 22. september, að Sigurður kem- ur á Bútstaði og Breiðholt og er að leita að Sæmundi. Sagði hann að Sæmundur hefði farið að heiman daginn áður, suðúr yfir ár og ætlað að Hraunsholti, en væri ekki kom- inn aftur. Fekk hann svó menn af þessum bæuný í lið við sig að leita dauðaleit að Sæmundi, og taldi lík- legast að hann mundi hafa drukkn- að í Elliðaánum. Urðu þeir fimm saman í leitinni og bar hún þann árangur, að þeir fundu Sæmund örendan undir fossi þeim í syðri ánni, sem Skötufoss heitir. Lá hann þar á grúfu, og er þeir tóku hann upp „var hann náfölur 1 andliti, sem þeir menn er á þurru deya, en eigi bólginn, sem druknaðir menn, og ekki rann heldur vatn úr munni honum“. Sigurður sagði förunautum sín- um að Steinunn hefði beðið sig þess lengst allra orða, ef þeir fyndi Sæ- mund látinn, að koma ekki með lík- ið heim að Árbæ, heldur flytja það þegar til kirkju. En þá var kirkja í Gufunesi og þangað átti heimilis- fólk á Árbæ kirkjusókn. Varð það svo úr, að þeir fóru með líkið að Gufunesi. Þá var prestur að Mosfelli síra Þórður Konráðsson, og þjónaði hann Gufunesi. Sigurður sendi nú Á L piltinn Odd þangað að tilkynna presti lát Sæmundar, og ljet spyrja frá Steinunni hvort Sæmundur mundi ekki fá kirkjuleg. Prestur svaraði því, að ef það væri víst. að Sæmundur hefði ekki ráðið sjer bana sjálfur, þá mundi hann fá kirkjuleg, og bað sveininn að skila því til Steinunnar, að hún skyldi gera útför hans sem virðulegasta. Síðan var lík Sæmundar búið til greftrunar og hann kistulagður. — Fór svo útförin fram og var Stein- unn þar við, og var „hann skikkan- lega til moldar borinn“. Að því loknu fór prestur heim að Árbæ til þess að skrifa upp þá f jármuni, sem voru í búi þeirra Sæmundar og Steinunnar. En þá þegar mun fólk hafa verið farið að dylgja um það, að ekki mundi einleikið um fráfall Sæ- mundar. Sjest það á frásögn síra Þórðar: „Þegar búið var að skrifa upp fjemuni á Árbæ, bað jeg að Sigurður Arason fylgdi mjer upp á veginn, því jeg var einsamall. En um það leyti að búið var að leggja á hest minn og jeg var korrunn á hestbak, spurði Jón Þórarinsson opinberlega, hvort nokkur hefði fylgt Sæmundi heitnum frá bæn-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.