Lesbók Morgunblaðsins - 10.04.1949, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
203
AMERÍSKAR
Einu sinni var teiknari í New
York. Hann þóttist vera mjög leik-
inn í list sinni. En þetta er sagan
af því hvers vegna hann.hætti aö
teikna.
Hann var einu sinni á ferðalagi
um Spán ásamt amerískum blaða-
manni. Þegar þeir komu til Mal-
aga fóru þeir inn í veitingahús að
fá sjer hressingu. Þeir kunnu ekki
orð í spönsku og þjónninn kunni
ekki orð í ensku. Samt sem áður
tókst þeim að koma honum í skiln-
ing um það, að teiknarinn vildi fá
kaffi og kökur. En þegar blaða-
maðurinn vildi íá mjólk, þá byrj-
uðu vandræðin fyrir alvöru. Þeir
sögðu báðir mjólk og þeir stöfuðu
það báðir, en þjónninn skildi ekk-
ert. Þeir endurtóku „mjólk“ hvað
eftir annað og hækkuðu altaf róm-
inn, eins og mönnum hættir til þeg-
ar þeir ætla að berja eitthvað inn
í þöngulhöíuð. En alt kom fyrir
ekki, þjónninn skildi ekki neitt.
Blaðamaðurinn greip þá til þess
ráðs að baula ákaflega. Svo ljet
hann sem hann væri að mjólka
kú, og seinast ljest hann drekka úr
glasi. En það var sama, þjónninn
hristi aðeins höfuðið.
Þá kom teiknaranum þjóðráð 1
hug.
„Ljáðu mjer blýant. Jeg skal
fljótlega koma þrælnum í skilning
um það hvað við viljum“, sagði
liann.
Og svo teiknaði hann a dúkinn,
eftir bestu getu, mynd af kú og
stúlku, sem var að mjólka hana.
Þegar þjónninn sá þetta, brosti
liann út undir eyru og sagði: „Sí,
sí, Senor!“ og rauk svo á stað og
þvert yfir götuna út i tóbaksbuð.
„Þarna &jerðu". sagði teiknannn,
„hvað bað kemur sjer vel að kunna
að teikna, þegar maður er í fram-
KÍMNISÖGUR
andi landi Jeg þori að veðja um,
að jeg get farið um allan heim
og allsstaðar gert mig skiljanleg-
an með teikningum mínum“.
„Ekki er jeg nú viss um það“.
sagði blaðamaðurinn. „Hvers
vegna heldurðu að þjónninn hafi
farið út í tóbaksbúð. Ekki fær hann
mjólk þar“.
„Það er sennilega siður hjer að
selja mjólk í tóbaksbúðum“, sagði
teiknarinn. „Þú sást að hann
skildi myndina undir eins. Hann
kemur með mjólk, því máttu
trúa“.
Svo kom þjónninn. En hann kom
ekki ineð injólk. Sigri hrósandi
á svip afhenti hann þeim tvo að-
göngumiða að nautaati.
---o----
Svertingi nokkur, sem hafði
lent i járnbrautarslysi og var ör-
kumla maður, hafði um nokkur ár
verið brautarvörður skamt frá
Alabama. Starf hans var að veifa
rauðri dulu á daginn, en Ijóskeri á
kvöldin.
Nú var það eitt dimt kvöld að
Svertingi kom akandi og flanaði út
á járnbrautarteinana rjett fyrir
framan hraðlestina. Hann varð
undir lestinni og þurfti auðvitað
ekki meira. Ekkja lians heimtaði
skaðabætui og fór i mál við járn-
brautarfjelagið. Og gamli Gabe,
brautarvörðurinn, var auðvitað að-
al vitnið.
Gabe gamli byrjaði á því að
sverja að segja sannleikann,
allan sannleikann og ekkert nema
sannleikann. Og svo skýrði hann
frá því aö hann hefði sjeð til ferða
Svertingjans og' veifaö ljóskeri
sinu sem óður til að vara harin
vr$. ]£it jjrátt fyrír bað hsfði Svér t-
meinr. shió út é. iá.mbr2.n.tin3
Hann var spuríux í þaula og
hann svaraði hverri spurningu
hiklaust og að því er virtist með
bestu samvisku. Hann sýndi dóm-
aranum hvernig hann hefði haldið
á ljóskerinu og hvernig hann hefði
veifað því fram og aftur.
Þegar yfirheyrslu var lokið
þakkaði lögfræðingur járnbrautar-
fjelagsins Gabe fyrir frammistöð-
una.
„Þú stóðst þig ágætlega“, sagði
hann. „En leið þjer ekki illa með-
an á yfirheyrslunni stóð?“
„Jú, mjei leið illa“, sagði Gabe.
„Jeg var altaf á nálum um það að
dómarinn mundi spyrja mig um
það hvort logað hefði á ljósker-
inu“.
----o-----
John Alltn frá Mississippi kunni
margar sögur um stjórnmálabar-
áttuna heima hjá sjer. Ein var
þessi:
Einu sinni var þar maður, sem
langaði mjög til þess að komast
í embætti. Eftir hvern kosninga-
sigur demokrata sótti hann um
eitthvert embætti — en var altaf
synjað.
Að lokum varð hann þessu svo
gramur, að hann sagði sig úr
demokrataflokknum. Hann sagði
að demokratar hefði ekki vit á
því hvað hæfileikar væri, og kynrii
ekki að nota hæfileikamenn. Þess-
vegna gerðiet hann republikani.
Við næstu fylkisstjórakosningar
bauð hann sig fram. Og hann hóf
snarþa kosningabaráttu. Ef nokk-
ur maður hefir nokkurn tíma bar -
ist hraustlega fyrir republikana-
flokkinn, þá var það hann. Hann
ferðaðist um fylkið þvert og end-
langt og hann helt þrumandi ræð
ur á strætum og gatnamótum og
í hverjum einastíf skóla.
í kosnihgumun hlaut hann tvö
atkvæði. «
Og dagmn eftir haiín tek-
inh fastur o£ áksréur íyrir að
hafa greitt atkvæð: tvisvar.