Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.1949, Side 1
ALÞIMGISHÖSIÐ
AGRIP
AF
BYGG-
INGAR-
SÖGU
ÞESS
SUMARIÐ 1798 var þing haldið
seinast á Þingvöllum. Veðrátta var
þá stirð, köld og rniklar úrkomur,
en lögrjettuhúsið á Þingvöllum
orðið mesta skrifli. Á miðju þingi
tók Magnús Stephensen lögmaður
vitnisburð Wibe amtmanns, Magn-
úss lögmanns Ólafssonar, Stephans
varalögmanns Stephensen, Finne
landfógeta og sýslumanna er þar
voru: Vigfúsar Þórarinssonar, Jóns
Espholins og Jóns Þorleifssonar,
svo og íögrjettumanna um það að
„húsið væri óheilnæmara og verra
hverjum vindhjalli, og líf þeirra í
háska, sem þar neyddust til inni að
sitja.“ Sjálfur lýsti lögmaður yfir
því að „sökum heilsuspillandi drag-
súgs í gegn um gluggabrotið og op-
ið lögrjettuhús, við rjettarhöld í
þessum vindhjalli“ væri hann orð-
inn heilsulaus og veikburða. Vildi
hann helst slíta þinginu í miðju
kafi, en þó varð ekki úr því, og
dæmdi þá Magnús lögmaður Ólafs-
son í þeim málum, er eftir voru.
Þannig var þá þinghúsið á Þing-
völlum orðið og er lýsingin ekki
fögur. Verður þingmönnum ekki
álasað fyrir það þótt þeir yrði því
allir samþykkir að senda beiðni til
kansellísins um að þinghaldið
mætti framvegis fara fram í Reykja
vík.
Stiftamtmaður skrifaði kansellí-
inu um þetta mál þá um haustið
og var því meðmæltur að þingstað-
urinn væri fluttur til Reykjavíkur.
Lagði hann og til, að jafnframt
yrði bygt sjerstakt samkomuhús
handa alþingi í Reykjavík.
★