Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1950, Qupperneq 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
85
t
Af Kccuiver hinni fornu xtcndur nú aðeins kirkjan.
sigur á franska flotanum hjá South
ForeJand 1217.
Með tilliti til þess að þessi kvöð
hvíldi á hafnarborgunum, var þeim
með lögum heimilað að leggja á
tolla og skatta. Þær höfðu svo mik-
ið sjálfsforræði, að furðulegt má
þykja nú á dögum. Þær voru
nokkurs konar ríki í ríkinu.
Allir forráðamenn hinna fimm
hafna voru kallaðir barúnar, en sá
titill var þá ekki nema einstaka
sinnum gefinn forráðamönnum
Lundúnaborgar. Barúnarnir höfðu
cinkarjett á því að bera slóða kon-
ungs við krýningarathöfn, en þau
rjettindi fellu seinna niður.
EKKI LEIKUR það a tvenn tung-
um að uppgang sinn og veldi á
England flota sínum að þakka.
Stofninn í þeim flota var íloti hinna
fimm hafnarborga. Þær sýndu, svo
ckki varð um vilst, að forvirki
Englands eru á sjónum.
Ymsax af þeiui hafuarborguiu,
sem voru í The Cinque Ports banda
laginu, er ekki hafnarborgir leng-
ur en þær búa þó enn að fornri
frægð frá þeim tímum. Þær voru
fyrsti skóli enskra sjómanna og'
vagga enska flofans. Það var ekki
fyr en á dögum Játvarðar III. að
vegur þeirra og gengi tók að
dvina.
Það var Játvarður góði sem bætti
Sandwich í hafnarborgabandalag-
ið. Sandwich er tólf mílur austur
af Canterbury. Hún varð um skeið
merkust af hafnafborgum Eng-
lands. Á dögum Játvarðar IV. lagði
hún fram 95 skip og 1500 sjóliða.
Nú er Sandwich ómerkileg höfn.
Bærinn er nú tvær mílur frá sjó,
eða öllu heldur fjórar mílur, því að
svo löng er sigling þangað upp eft-
ir ánni Stour, sem hann stendur
við. Höfnin var nokkuð endurbætt
árið 1847, en hún verður aidrei
jafn glæsileg og hún var á 16.
cld.
Richborough er hálfri annari
mílu norðar. Hún var einu sinni
hafnarborg Lundúna, eða á meðan
siglingaleiðin þangað var eftir
Wantsum kvíslinni. Rómverjar köll
uðu þessa hafnarborg Rutupiae.
Þangað komu skilaboðin árið 410
að herinn í Englandi ætti að hverfa
heim til Rómaborgar til þess að
verja ríkið fyrir ágangi Gota. Um
leið og rómverski herinn fór úr
landi, stóðu Englendingar ber-
skjaldeðir fyrir yfirgangi Saxa, sem
nú ruddust inn í landið, vegna þess
að engar varnir voru fyrir. Rich-
borough var á dögum Rómverja
þýðingarmesta hafnarborgin í