Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1950, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐS.INS
91
starfi sínu á hinu endurreista Al-
þingi verður hann sjálfkjörinn for-
ingi þjóðarinnar á dögum sínum
og ber nú hið glæsta heiti: frelsis-
hetja vor. Þarf þá eigi að í'ara
lengra i því efni. En fyrir baráttu-
tíma hans störfuðu í embætti nokkr
-ir óeigingjarnir og ágætir menn,
sem síst má hylja í gröf gleymsk-
unnar. Áður var getið Magnúsar
Stephensens. Hann var um langa
hríð dómstjóri landsyfirrjettarins
og ruddi á þeim vettvangi hinni
mildari refsingastefnu braut í anda
framtíðarinnar. Við þann dómstól
störfuðu og á þessu tímabili ís-
leifur Einarsson, dómstjóri, Bene-
dikt Gröndal, meðdómandi, Bjarni
Thorarensen, meðdómandi, Ólafur
Finsen, meðdómandi, Þórður Svein
-björnsson, dómstjóri, sem æðsta
dómsvaldið innanlands hvílir á
herðunum á um rúma tvo áratugi
og taUnn verður meðal mætustu
sona þjóðarinnar, og Jón Johnsen
frá Stóra-Ármóti, meðdómandi. —
Allir þessir menn leggja íram
starfskrafta sína til að halda uppi
lögum og rjetti í þessu strjálbýla
landi. Þá má geta Stefáns Þórarins-
sonar, amtmanns á Möðruvóllum í
Hörgárdal. Hann var vitur maður
og hinn öruggasti embættismaður,
mikill höfðingi og gekkst fyrir
búnaðarframförum í umdæmi
sínu, enda ástsælt yí'irvald.
Enn er óminst á marga góða
drengi og duglega, sem unnu af
kappi í anda hinna vaknandi tíma,
t. d. Sveinbjörn Egilsson, kennara
á Bessastöðum, síðar rektor. og
Finn Magnússon, vísindamanninn
mikla, er komst til mikiilar virð-
ingar í Kaupmannahöfn, alt upp
að hásæti konungs, og á hlóðust æ
meiri sæmdir og heiður, víðs vegar
að úr hinum mentaða heimi.
Hversu fagrar og raunhæfar sem
þær hugsjónir kunna að vcra, sem
með bjóðinni kunua að búa, verða
þt£r aldrei annað en „hljomandi
málmur eða hvellandi bjalla" — án
þeirra manna, er með þær kunna
að fara, undirbúa jarðveginn og
bera þær fram til sigurs. Alþingi
var komið að fótum fram, þegar
það var lagt niður. Þvi skyldi eigi
gleymt. En meðal þjóðarinnar og í
útvirkjum hennar voru að starfi
þeir ágætismenn, er fundu annan
vettvang fyrir þjóðþrifastarísemi
sína. Þegar landsmönnum er svo
fengið ráðgjafarþing í hendur, eru
þeir margvíslega búnir undir að
færa sjer í nyt hina dýru gjöf hins
framsýna konungs. Þá er einnig sá
til taks, sem fær er um að taka
forystu stórhuga lýðs. Foringinn
mikli kemur til sögunnar og byggir
á grundvelh sógunnar — og þó
allra helst hinu nýliðna skeiði,
tímabilinu milli Alþinga, árunum
1800—1845.
Þr-18. jan. 1950.
Þórður Jónsson.
^ ^ ^ ^ ^y
J-Srjií ná „unamluf
Á SEINUSTU árum haí'a fundist
mörg ný lyf, sem sannarlega má
kalla undralyf. Þar til teljast peni-
cillin, sulfa og streptömycin. Nú
eru nýlega fundin önnur þrjú
meðul, sem einnig má nefna undra-
lyf-
Chloromycetin er sjerstaklega
gott við taugaveiki. Venjulegt var,
að taugaveikissjúklingur væri veik-
ur í 35 daga, en sá tími hefur styst
niður í 12 daga síðan farið var að
nota chloromycetin. Meðalið er
gagnslaust gegn lungnabólgu og
virussj úkdómum.
Aureomycin hefur einnig reynst
ágætlega við taugaveiki. Það hefur
einnig reynst svo áhrifamikið gegn
virus-lungnabólgu, sem köliuð er,
að ýmsir eru nú farnir að efast uin
að lungnabolga geti staiað af virus,
því að meðalið hefur reynst gagns-
laust gegn öðrum virussjúkdómum.
Bacitracin hefur reynst vel í upp-
lausn eða áburði við sár og augn-
bólgu, þar sem penicillin dugir
ekki. Það mundi og vera gott til
inntöku ef ekki væri í því sfni, sem
getur skaðað nýrun.
^ ^ V ^ ^
^kapadæanó
kkl komló
uar e
NÚNA í HAUST vildi til einkenni-
legt bílslys í Stokkhólmi og furðu-
legt að það kostaði ekki mannslíf.
Kona, sem Sirene Berglund heit-
ir og á heima í Luleá, var að aka
á götum höf uðborgarinnar í bíl sín-
um. Bíll kom á móti henni og rjett
um leið og bílariir mættust losnaði
stálþynna af aurbretti þess bílsins
og slöngvaðist inn í bil í'rú Berg-
lunds með svo miklu afli að járnið
stakst í gegnum hægra lærið á
henni, þvert í gegnum kviðinn,
rjett fyrir framan lífhimnuna og
rakst seinast á kaf í vinstra hand-
legginn.
Lagið var svo snöggt að frú Berg-
lund fann ekkert til fyrst í stað.
En þegar hún ætlaði að hreyfa sig
gat hún það ekki og fjekk þá óþol-
andi kvalir. Það varð að saga sund-
ur stálþynnuna til þess að ná frú
Berglund út úr bílnum. Svo var
farið með hana raldeitt til sjúkra-
húss og þar varð að gera á henni
stórkostlega skurði til þess að na
stálbrotunum úr holdinu.
Lífi frúarinnar var borgið en
stálþynnan verður geymd í sjúkra-
húsinu til minnis um þennan at-
burð. Segja læknarnir að, þáð sje
alveg furðuleg tilviljun að 'rúin
ykyldi ekki biða bráðaji bana í - •
þessu slysi. - ----:.-;.