Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 01.04.1951, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 01.04.1951, Qupperneq 9
L.ESBÖK MORGUNBLAÐSIN?! 181 DRAUGSMÁL SIGURDAR RREIBFJÖRÐS ÞAR SEM nú er Steindórsprent í Tjarnargötu ljet Skúii Magnússon reisa mikinn og vandaðan bæ handa verksmiðjunum einhvern- tíma á árunum 1752—60. — I bókum verksmiðjanna er bær þessi ýmist. eða samtimis nefndur „Böd- kerværelserne“ eða „Viktualie- hús“. Benda þau nöfn til þess að þarna hafi verið beykisíbúð og matvælageymsla verksmiðjanna. Þegar verksmiðjuhúsin voru seld, keypti Kristine Bruun þennan bæ (1791). Hún var ekkja Sigvard Bruun, er fyrstur varð „tugtmeist- ari“ hjer við hegningarhúsið og varð frægur að endemum fyrir það hvílíka hörku hann sýndi föngun- um. Upp frá þessu var bærinn jafnan kendur við ekkjuna og kallaður Brúnsbær. Stóð hann í rúmlega 70 ár og má á því sjá. að vel heftr verið til hans vandað í upphafi. Umhverfis þennan bæ var þyrp- ing lágreistra húsa, cr flest voru torfhús. Fyrir norðan yar Scheels- hús, cða gamli klúbburinn og sneri frá austri til vesturs þvert íyrir Aðalstræti, en skáhalt, andspænis þar sem Uppsalir standa nú. var Ullarstofan. Fvrir austan var fyrst stór torfbær, þar sem áður hafði verið smiðja verksmiðjanna, og var nú kallaður Zuggersbær eftir Jóhannesi Zoéga, afa Geirs kaup- manns, er þar hafði búið, cn var nú nýlega látinn. Sunnan við þenn- an bæ var litið timburliús. sein Farker konsull hafði bygt (Tjarn- argata 5). En nasst Brúnsbæ að sunnaii var Teitsfcær (seinna neíndur Malinufcær), kendur við Teit Sveinsson vefara, sem hafði bvgt hann 1797. Þar fvrir sunnan voru svo Suðurbæir tveír. Annar þeírra var upp'haflega hjáleiga frá Reykjavík. í Jarðabókinni er hún ekki nefnd með nafni, en á máli Revkvíkinga var hún kölluð Suð- urbær. Svo mun þar hafa verið bygður annar bær handa lósker- um verksmiðjanna, því að þegar hjer er komið, og jafnvel mörgum árum áður, er farið að tala um Suðurbæina tvo. Milli allra þessara húsa voru aðeins gangstígar eða þröng sund. Þá voru engin götuljós, og þegar ekki var tungsljós, var engin önn- ur skima í þessum sundum en flöktandi glæta af kertaljósum, er lagði út um gluggána, er bæði hafa verið fáir og smáir. Kirkjugarð- urinn var þarna rjett hjá. Hefir því án efa verið draugalegt þarna í svartasta skammdeginu. Þannig er þá umhorfs á þessum stað, þegar saga þessi gerist. BRÚNSBÆR er frægur í sögu Reykjavikur vegna þess að þar bjó’ Jörundur hundadagakóugur. Þá var þar húsráðandi Málmquist beykir, einn af stuðningsmönnum hans, og hjá honum bjuggu þeir Jörundur og Savignac áður en byltingin hófst. Má því vera að einmitt í þessum bæ haíi bylting- in verið undirbúin. Seinna bjuggu þeir þarna hvor íram aí' öðrum Bjarni Thorarensen assesor og James Robb kaupmað- ur. Má a því sjá, að húsakynni hafa verið bar góð, eftír því sem um var að gera í torífcæum. Um 1322 Sigurður Breiðfjörð. eignaðist Hannes Erlendsson skó- ari bæinn, keypti hann af Guð- mundi Pjeturssyni frá Galtastöð- um, mági Helga biskups. Hannes var bróðir sjera Runólfs á Brjánslæk. Hann var þá enn ungur maður. Ó1 hann síðan ald- ur sinn hjer í bæ (d, 14. júlí 1869) og var við margt brugðinn. Einu sinni fór hann t. d. ásamt þremur mönnum i leiðangur upp i Borgar- fjörð, og var ætlan þeirra að sækja þangað gull, er fornmenn hefði fólgið í jörð. Grófu þeir í Krums- keldu, til þess að ná í kistu og ketil Skallagríms, og enn víðar grófu þeir, en komu heim jafn tómhcnd- ir og þeir fóru. Haustið 1828 telur kirkjubókin að þetta fólk eigi heima i Brúns- bæ: Sigmundur Johnsen (Jónsson) smiður, 44 ára. kona hans Birgitta Halldórsdóttir 28 ára og tvö börn þeirra, Lárus 4 ára og Jóhanna 2 ára. Ingigerður Magnúsdóttir vinnu- kona úr Njarðvík, 20 ara, Einar Jónasson lausamaður 25 ara. Ilrístján Jakobsson verslunar- maðuí 2ö ara.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.