Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1952, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1952, Síða 7
* LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 19 FORSETA RÆNT SAGA AF AMERÍSKRI SAMKEPNI Á ÖLDINNI SEM LEIÐ UM MIÐJA*19. öld áttu fljótabát- arnir 1 Ameríku í harðri samkepni við járnbrautirnar. Víðast hvar höfðu þeir farið halloka, en heldu þó enn hlut sínum á Mississippi og Ohio fljótunum. Fallegasta, besta og hraðskreiðasta skipið þar hjet „Saladin11. Á siglingaleið skipsins í Louisi- ana, eða skamt frá Baton Rouge, átti frægur hershöfðingi mikinn og fagran búgarð. Hershöfðingi þessi var Zachary Taylor og hafði unnið marga sigra í þrælastríðinu 1848 var hann kosinn forseti Banda ríkjanna. Hann var frá Kentucky og þaðan var' einnig Thomas G. Coleman skipstjóri á „Saladin“. Lengi hafði verið vinátta með Taylor og Cole- man fjölskyldunni og þess vegna var það talið alveg sjálfsagt að hinn nýi forseti mundi ferðast fyrsta áfangann á leiðinni til Was- hington með „Saladin“. En þegar að því kom að forseta- efni skyldi leggja á stað norður þangað til þess að taka við embætti var það falið sjerstakri nefnd manna að ákveða alt um ferðalag- ið. í þessari nefnd voru nær ein- göngu menn frá New Orleans. Þeir ákváðu að forsetaefni skyldi ferð- ast fyrsta áfangann með gufuskipi, frá búgarði sínum til Vicksburg. En þeir völdu ekki „Saladin“ til ferða- lagsins, heldur skæðasta keppi- naut þess. Þegar Thomas Coleman frjetti þetta varð hann mjög gramur. — Hann hafði þá alveg nýlega tekið við skipstjórn. Hann beit á jaxlinn og sagði mönnum sínum að hann ætlaði ekki að láta fara svona með sig. í rökkrinu kvöldið áður en Tay- lor átti að leggja á stað, lagði „Sala- din“ á stað frá New Orleans. Hitt skipið, sem átti að flytja forseta- efni, lá þar þá enn við bryggju. Skipstjóri þess sá þegar Conolly lagði úr höfn, en grunaði ekki neitt, helt að hann væri að fara í áætl- unarferð. Nokkru seinna um kvold- ið lagði svo þetta skip á stað. Coleman Ijet „Saladin“ fara fulla ferð og kom til Baton Rouge snemma morguns, áður en bjart var orðið. Hann vissi vel hvar var landgöngubrúin hjá búgarði Tay- lors og lagðist þar og þeytti eim- pípuna eins og hún þoldi, hvað eftir annað. Forsetaefni ásamt fylgdar- liði, kom niður á bryggjuna. Allir voru grútsyfjaðir og gengu þegar um borð í myrkrinu. Og þegar sá seinasti var kominn um borð, heyrð ist í hjólum hins skipsins, sem kom öslandi upp eftir fljótinu. Farþegarnir gengu þegar til hvílu, og „Saladin" beið ekki boð- anna en sigldi með fullri ferð í átt- ina til Vicksburg. Þegar það var komið fram á fljótið heyrði skip- stjóri að hitt skipið þeytti eimpípu sína lengi. En það er af því að segja að enginn kom um borð og að lok- um sneri það aftur sömu leið til New Orleans. Það var ekki fyr en í dögun að fararstjóri forsetaefnis uppgötvaði misgripin. Einn af nefndarmönnum bað stýrimann að ná í skipstjóra. „Já, jeg skal kalla á Coleman skipstjóra,“ svaraði stýrimaður. „Coleman?“ át hinn eftir undr- andi. „Hvaða skip er þetta?“ Þegar honum var sagt að það væri „Saladin“, varð hann ær og hrópaði: „Það er laglegt! Snúið skipinu undir eins við! Hæ, þið þarna, við erum komnir um borð í vitlaust skip.“ Hinir nefndarmennirnir komu þjótandi, varla meira en hálfklædd ir. Og svo ruddust þeir allir inn til Colemans skipstjóra. „Get jeg gert nokkuð fyrir ykk- ur?“ spurði hann blátt áfram. Þeir þrengdust um hann og það heyrðist ekki mannsins mál í káet- unni fyrir brigslum og hótunum. Coleman ljet sjer hvergi bregða. Þá ærðust nefndarmenn, brugðu upp marghleypum og ógnuðu lion- um. Einn þeirra skók marghlcypu rjett við nefið á honum og grenjaði: „Er þjer það ljóst hvað þú hefur gert? Þú hefur rænt forseta Banda- ríkjanna." Coleman brosti og svaraði: „Er yður þá Ijóst að forseti Bandaríkjanna er kominn um borð í skip mitt án míns leyfis?“ Hinir höfðu ekki búist við þessu svari og gátu ekkert sagt. „Hann kom hjer um borð sjálf- krafa og af frjálsum vilja,“ mælti Coleman enn, „og auðvitað dettur mjer ekki í hug að reka forseta Bandaríkjanna af skipi mínu nema hann óski sjálfur að fara. Og nú læt jeg ykkur vita það, herrar mín- ir, að það eru aðeins tveir menn í heiminum, sem geta stöðvað skipið. Annar er jeg og hitt er forseti Bandaríkjanna. Jeg vil ekki stöðva skipið. Hann ræður hvað hann gerir.“ Þá var sendur maður á fund for- setans. Litlu seinna kom hann inn í káetu Colemans og var mjög al- varlegur á svip. „Tom, hrekkjalómurinn þinn,“ sagði hann og skók að honum vísi- fingur. „Hvernig stendur. á því að þú hefur komið mjer í þessi vand- ræði?“ Svo sneri hann sjer að fylgdar- liði sínu og mælti:

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.