Lesbók Morgunblaðsins - 08.02.1953, Side 16

Lesbók Morgunblaðsins - 08.02.1953, Side 16
76 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS * HERÐIR AÐ. — Þessi mynd er tekin þegar 14 vikur voru af vetri. Fram að þeim tíma höfðu andirnar á tjörninni í Reykjavík átt góða daga, en nú tók að harðna um eins og sjá má, kominn ís á tjörnina og snjóskaflar með löndum. Þó er þar enn auð vök. Kjósa þó endurnar heldur að hópast á svellinu en synda í vökinni, enda kastar margur brauðmola til þeirra út á ísinn. — Ljósm.: Ól. K. M. tim 60 pund að þyngd. F.n óskemmtileg þótti okkur sú tilhugsun að verða að ganga með þessa bagga inn fyrir botn Seyðisfjarðar að sunnan og síðan norð- Ur með honum aftur út að Dverga- steini, þar sem við gátum lagt á Hjálm- árdalsheiði, Við lögðum nú á stað og komum fyrst við á Skálanesgrund. Þar bjó þá Guðmundur Jónasson faðir Jónasar Guðmundssonar ritstjóra „Dagrenn- in"ar“. Þágum við þar góðgerðir og heldum svo rakleitt að Þórarinsstöð- um. Við höfðum jafnvel vænzt þess að g ta komizt þar yfir fjörðinn á ísnum og leit ekki illa út með það, því að hvorgi var að sjá vök þar úti á firð- inum. En er við komum niður á Þór- arinsstaðaeyrar, voru þar vakir með löndum, svo að hvergi var hægt að komast út á ísinn. Heldum við svo lonr ra og inn allar Hánefsstaðaeyrar, en alls staðar var ótryggur ís með landi. En er við komum inn á móts við Sörlastaði komumst við út á ísinn o" gengum svo hindrunarlaust yfir fiörðinn að Dvergasteini. Þar var þá séra Björn Þorláksson og tók okkur vel. Fengum við þar bæði mat og k ffi. Spurði prestur hvort við ætluð- um að halda lengra og er við kváðum já við því, reyndi hann að telja okkur hughvarf, sagði að lítið vit væri í því að ieggja á fjallið undir kvöld í versta veðri og vera með þungar byrðar; mættum við búast við því að fá versta veður á fjallinu. Við létum þó ekki letjast og lögð- um á stað. Gerði brátt verstu færð þegar upp á hjallana kom, snjór víða hnédjúpur. Vorum við víst á fjórðu klukkustund að komast upp á brún Hjálmárdalsheiðar. Var þá langt liðið á dag og versta ófærð. Helzt svo alla leið niður allan Hjálmárdal og inn alla ströndina að Sævarlandi í Loðmundar- íirði. Vorum við þá orðnir þrevttir og- hvíldar þurfandi. Hafði þorsti ætlað að gera út af við okkur á leiðinni, en við þorðum ekki að svala okkur á snjó. Ef þreyttur maður fer að eta snjó missir hann allan mátt og er þó jafn þyrstur eftir sem áður. Aftur á móti cr ágætt ráð við þorsta að eta kjöt, heizt freðið, og hakka, í sig klaka eða hjarn með því. Þetta hafði ég reynt einu sinni áður og varð eins og nýr maður á eftir og þyrsti ekki eftir það. En nú vorum við nestislausir og höfð- um því ekkert að eta með snjónum. Um nóttina gistum við svo á Sævar- landi. Þaðan lögðum við snemma á stað næsta dag. Gengum við þá yfir Loðmundarfjörð og Kækjuskörð að Gilsárvöllum í Borearfirði og gistum þar. Næsta dag náðum við svo heim til Brúnavíkur. Var okkur þar vel fagnað, enda komum við færandi hendi, með kornmat, kaffi, sykur og tóbak. Það leið all-langur timi þangað til ísinn lóneði frá iandi. En einn góðan veðurdag koma þeir bræður róandi inn Brúnavík. Var þar þá ill-lendandi, því að brimsúgur var nokkur og jakahrönn í fjörunni. Urðu þeir að lenda við klöpp nokkra innan við lendinguna. Þar náð- um við vörunum upp úr bátnum og urðum svo að draga hann upp á klöpp- ina, þótt erfitt væri. Lýkur svo hér sögunni af þesssari kaupstaðarferð. Stefán Filippusson. (Árni Óla skráði). Ef konan þegir í fimm mínútur, þá er maðurinn allan daginn að grufla út af því hvað hann hafi nú sagt eða gert. GARÐYRKJUSKYLDA Á Stokkseyrarþingi 17. maí 1762 birt- ir Brynjólfur sýslumaður þessa fyrir- skipan yfirvalda: „Befalað er að byggja í þessari þingsókn 4 kálgarða, nefni- lega á Háeyri, Stokkseyri, Hærings- stöðum og Skipum, undir straff, 5 alnir af þeim bónda sem tiundar 5 hundruð, 10 alnir af þeim sem tiunda 10 hundr. og þar yfir, fyrir forsómun og óhlýðni, ef ekki geta framvísað plægðum og sáðum kálgarði innan árs og dags á sínu heimili." — 25 árum síðar, 1788, eru ekki nema 5 kálgarðar í Stokks- eyrarhreppi, og enginn þeirra á fyrir- skipuðu jörðunum. (Saga Eyrarbakka III.) LISTASAFN RÍKISINS Listasafnið var stofnað af cand. jur. Birni Bjarnasyni, síðar sýslumanni í Dalasýslu, 1885. Safnaði hann saman í Kaupmannahöfn um 40 málverkum á árunum 1885—87 og voru þau jafnóðum send til landshöfðingja, sem kom þeim fyrir til geymslu í Alþingishúsinu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.