Lesbók Morgunblaðsins - 21.06.1953, Blaðsíða 1
Magnús Jensson
Frá ferðum Kotlu
Borgin
Sé komið að Napoliflóa úr
vestri, til dæmis frá Gibraltar og
sunnan Sardiniu, blasa fyrst við
manni eyjar tvær, sem eru út af
flóanum norðan og sunnanverðum.
Sú nyrðri Ischia er stærri, en hana
munu fáir kannazt við, því henn-
ar er aldrei getið að neinu, en
hina syðri, Capri, þekkja flestir eða
allir að minnsta kosti að afspurn,
en þangað koma þúsundir ferða-
mann^ árlega til að skoða hinn
fræga og einkennilega Bláa helli.
Þá hefur eyjarinnar oft verið get-
ið að undanförnu í heimsfréttum,
því þangað flýði hinn afdankaði
Egyptalands konungur Faruk, er
Naguib hrifsaði völdin í landinu.
Fyrir miðjum flóanum stendur
svo hið fræga eldfjall Vesuvius,
sem í nokkur ár hefur ekkert á
sér bært. Eldgígurinn er afar stór
og vel sýnilegur sjófarendum í
flóanum, því skálin hallast aðeins
til vesturs. Auk stórborgarinnar
Napoli, sem stendur við norðan-
verðann flóann, eru þarna nokkrir
smábæir og þorp, sem flest eru
Vesúvius gnæfir yfir Napoli
staðsett við rætur eldfjallsins og
allt í kringum það, þótt undarlegt
megi virðast, því þar eru einnig
rústirnar af hinni fornu borg
Pompei, sem þögult vitni um
hvernig farið getur á hverri stundu,
ef fjallið vaknar af dvalanum. Ak-
vegur hefur verið lagður allt í
kringum Vesuvius og einnig upp-
eftir fjallshlíðinni, alla leið að
gígnum og margir ferðamenn
leggja leið sína um þessar sögu-
frægu slóðir.
í Napoliflóa er fjörugt athafna-
líf og hörð barátta fyrir daglegu
brauði. Fjöldi fiskibáta með kast-
net æða þar um sjóinn og kepp-
ast um að verða fyrstir að fisk-