Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1954, Síða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1954, Síða 12
264 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Nokkrir bréfkafisr FRA ÁSTRALÍU Frá Tasmaníu höfðu flutt með sér nokkrar kind- ur og þrifust þær ágætlega. En þegar kindunum f jölgaði, voru sett lög um það hve margar kindur hver mætti eiga. Það var gert vegna þess, að beitarland var lítið þar sem fyrstu nýlendurnar voru stofnaðar. Sauðfjáreigendur vildu ekki sætta sig við þetta. Þeir þrjózk- uðust við að hlýða lögunum, en það varð ekki fært til lengdar. Þeir voru þó vissir um að vel mundi borga sig að reka sauðfjárrækt í stórum stíl. Og hvað gerðu þeir þá? Þeir lögðu á stað með íjárhópa sína inn yfir strandfjöllin, í von um að finna beitarlönd í hinu ókannaða landi, sem lá utan við nýlendurnar. Þetta var dirfskuför. Þeir fóru ríð- andi og höiðu nesti sitt og íarangur VE stór er Ástralía? Það mun ef til vill koma flatt upp á suma að heyrs, að hún er 33 sinnum stærri heldur en Bretland og 14 sinnum stærri en Frakkland. Hún er álíka stór og Brazilía, en heldur minni en Bandarikin. Ástra- lía er stærsta eyland í heimi, og jafnframt minnsta heimsálfan, og þar búa ekki fleiri menn heldur en í London. Um 1880, þegar kapphlaup hófst milli Þjóðverja og Frakka um að ná undir sig löndum í Kyrrahafi, þá var Ástralía skift í fimm sér- stakar nýlendur. Menn óttuðust ágengni stórveldanna og vissu að lítið mundi verða um varnir hjá hverri einstakri nýlendu, ef í óefni kæmi. Það var miklu betra að þær sameinuðust. Og svo var það árið 1901, að sambandsríki Ástralíu var stofnað. Tólf árum seinna var byrj- að að reisa Canberra, höfuðborg hi :s nýa ríkis, sem nú er einhver íegursta borgin þar. ÁSTK.\LÍA er mikið hveitirækt- 1 arland, og er það þó ekki vegna þess að jarðvegur sé þar góður né hentugur til slíkrar akuryrkju. Hún gekk líka illa fyrst í stað, og það kostaði mikla þolinmæði og fyrirhöfn að íinna hið hentugasta útsæði, er hæfði bæði jarðvegi og veðráttu. Væri langa og merkilega sögu af því að segja. Nú er hveiti önnur aðal útflutningsvara Ástra- líu, og hún er hið þriðja mesta hveitiland í heimi. Sýnir það mik- inn dugnað og hæfileika íbúanna. Mesta útflutningsvara Ástralíu er ull, enda er sauðfjárrækt hvergi meiri. Og það er dálítið einkenni- leg sagan um það, hvernig sauð- fjárræktin varð svo stór atvinnu- vegur þar í landi. Landnemarnir JlL-ÍL____ Borgin Perth á vesturstrondúmi »

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.