Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1954, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1954, Qupperneq 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS T 281 sonur Bauka-Jóns biskups, var nú sýslumaður í Rangárvallasýslu. Honum er svo lýst að hann hafi verið höfðingi, auðugur, lagamað- ur mikill, þurlyndur, féfastur, yfir- mannlegur en ekki fríður. Búhöld- ur mikill og héraðsríkur embættis- maður. Var hann talinn í hvívetna einhver mesti sýslumaður á sinni tíð. Þótti stórlátur, sem þá var títt yfirmönnum. Hans undirmenn höfðu fremur ótta fyrir honum en clsku á honum. (Smæv. IV). Hann stefndi nú þing í málum þessum á Holti og var það þing haldið dagana 11. og 12. október 1756. Var þangað stefnt nær 20 vitnum. Var þaá að miklu levti sameiginlegur vitnisburður þeirra, að Magnús hefði verið ofurölvi þegar hann kom að Holti hinn 1. sept. og lenti í áflogunum við Ein- ar Oddsson. Mörg vitnin báru það að Magnús hefði síðan sagt við sig, að Einar hefði vaðið með fingur- inn upp í sig og sér hefði verið sár munnurinn lengi á eftir. En hann hefði jafnan tekið fyrir að hann hafi bitið Einar viljandi, enda bauðst hann til að sanna það með eiði þarna á þinginu. Til afsökunar fyrir þjófnaðar- áburðinum hafði hann ekki annað fram að færa, en hann hefði mælt þetta í drykkjulátum, enda hefði hann síðan boðið þeim Einari og Jóni sætt og bætur fyrir illmælið. Sýslumaður kvað upp dóm í ærumeiðingarmálinu. Voru öll orð Magnúss dæmd dauð og ómerk og skyldi hann greiða Jóni ísleifssyni 5 merkur, Einari Oddssyni 4 merk- ur, konungi 8 merkur og í máls- kostnað eitt hundrað á landsvísu. En eftir ósk Magnúsar var bits- málinu frestað til vors, svo að hann gæti leitt ný vitni í því máli. Það var svo tekið fyrir hinn 21. maí um vorið. Gögnuðust Magnúsi þar ekki þau vitni er hann treysti á, og var það dómur sýslumanns, að Einar skyldi vinna eið að því að Magnús hefði bitið sig og hann hefði ekki hlotið áverkann af neinu öðru. Magnús bauð fram synjun- areið að hann hefði ekki bitið Ein- ar, en það var ekki tekið til greina. Upp frá þessu var hann kallaður Magnús bítur. ----★---- Um veturinn hafði Magnús skrif- að Magnúsi Gíslasyni amtmanni og beðið um réttarstefnu gegn Þor- steini sýslumanni og meðdómend- um hans til næsta lögþings út af dóminum í ærumeiðingarmálinu, „af hverjum sést bæði hvað vægð- arlaust hefir verið við mig breytt í málsmeðferðinni, og síðan dæmd- ur í stórsektir og ærumissi, þvert ofan í lög og varnir Páls Axelsson- ar og munnleg og skriíleg sáttaboð af minni hendi fyrir mín óskikk- anleg drykkjuskaparorð, sem ég bauðst til að afturkalla.“ Vill hann nú áfrýa dóminum fyrir lögþings- rétt til þess að fá hann mildaðan eða af numinn. Amtmaður varð við þessu og þá um sumarið staðfesti Björn lög- maður Markússon héraðsdóminn, nema hvað hann lækkaði sekt til konungs. Magnús undi þessu illa og skrifaði amtmanni þegar og bað um áfrýun til yfirréttar og jafn- framt að amtmaður skipi Þorsteini sýslumanni að yfirheyra þau vitni, sem hann (Magnús) geti leitt máli sínu til stuðnings. Amtmaður hefir skrifað á þetta bréf, að enda þótt hann væni ekki Þorstein sýslu- mann um hlutdrægni í málsrann- sókn og dómi, þá skuli hann þó yfirheyra þessi vitni. Þá gaf hann og út stefnu til Björns Markússon- ar lögmanns, Þorsteins sýslumanns og meðdómenda hans, Jóns ísleifs- sonar og Einars Oddssonar, að þeir skyldi mæta fyrir yfirrétti, sem haldinn yrði á Þingvöllum 3. júlí 1758. Nú skrifar Magnús amtmanni enn og óskar þess að Sigurður Sig- urðsson landþingsskrifari verði látinn yfirheyra vitni sín, svo að það íáist fyllilega staðfest að hann haíi boðið sættir og fébætur. Og svo spyrst hann fyrir um hvort „hann og aðrir kóngsins þegnar megi ekki hafa frið þegar sjálfir vilja og sína yfirsjón meðkenna". Að lokum biður hann amtmann um að geía sér vegabréf „til útsigling- ar úr þessu mæðuíulla landi og mér ölundariullrar Rangárvalla- sýslu.“ Eítir því sem seinna kemur fram í bréii frá Magnúsi, þá hefir Þor- steinn sýslumaður hummað íram af sér að yíirheyra fleiri vitni og Sigurður landritari neitað að gera það. En amtmaður neitaði Magnúsi um vegabréf. ----★---- Héraðsdóminum í bitsmálinu (um eið Einars Oddssonar) hafði Magnús einnig fengið stefnt fyrir Alþingi 1758. En skömmu fyrir Alþing fór hann út í Vestmann- eyar og tafðist þar svo, að hann kom ekki til þings fyr en eftir steínudag. Varð því sá dórnur lög- réttunnar að hann skyldi hafa tap- að sókn sinni þar til hann hafi innstefnt henni löglega að nýu. Var hann svo dæmdur til að greiða Þorsteini sýslumanni fyrir tímatöf og gabb 60 alnir, Einari Oddssyni 30 alnir og réttinum 1 rdl. Ekki fór betur í yfirrétti. Þang- að kom Magnús of seint líka, en auk þess hafði hann málsskjölin ekki meðferðis. Hann bar það fyr- ir sig að hann hefði ekki haft efni á því árið áður að greiða landrit- ara málsskjölin og hefði því sótt til konungs um að fá þau ókeypis. Bað hann amtmann að staðfesta að sú umsókn sín hefði farið til konungs. En það dugði ekki að þessu sinni því að ekkert svar var

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.