Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1954, Blaðsíða 19

Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1954, Blaðsíða 19
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 295 er „Útvarpshúsið“, „Útvarpsborgin" eða „Hvíta húsið í Rosenörns allé“. „Kært barn á sér mörg nöfn“, segja Danirnir, þeir eru líka hrifnir af nýu útvarps- byggingunni, er var tekin í notkun 1. janúar 1941. Þegar inn er komið, eru veggir og gólf úr grænlenzkum marm- ara en loftið klætt með nautshúðum; það er gert af hagsýnum ástæðum, segir einn umsjónarmannanna, „ef loftið væri einnig úr marmara, myndi glymja í salnum af hælasparki og minna á hersetulið járnhælanna þýzku". Það sem vekur mesta athygli hjá þeim er heimsækir „Útvarpshúsið", er að sjálfsögðu vinnustofurnar, „studi- erne“, þar sem útsendingarnar fara fram. Kennir þar margra grasa af alls konar tækjum, sem notuð eru við út- sendingarnar, til dæmis við leikrit, þar sem þarf allt í einu þrumuveður eða þess háttar. Þar eru einnig sér vinnu- stofur fyrir sjónvarp, sem óðum ryður sér til rúms þar í landi. — Stærsta „studien“ er hljómleikasalurinn, sem rúmar 100 manna symfóníuhljómsveit og tilsvarandi kór; þar eru og sæti fyrir 1200 áhorfendur (hlustendur). Fyrir endanum á salnum er geysistórt orgel, 85 raddað, og koma tónarnir frá 6116 pípum. Auðvitað er svo í sambandi við hljómleikasalinn konungsstúka, með sér inngangi og sér aðkeyrslu. í bygg- ingunni er einnig mjög fallegur og sér- lega vandaður lítill salur fyrir fundi útvarpsráðs. Danskur fréttaritari hefur látið þau orð falla, að það væri „dýr- asti vindlakassi" í Danmörku. Byggingin er sérstaklega vel ein- angruð frá öllu truflandi hljóði utan frá, svo sem flugvéladyn o. fl. Er gróð- urmold á þökunum, sem eru í misjafnri hæð óg mynda einkennilega skrúð- garða með trjám og blómum. Ein af þeim byggingum sem mest ber á i Höfn, er Grundtvigskirkjan. Hún er byggð til minningar um N. F. S. Grundtvig f. 1783 d. 1872. Mestan hluta ævi sinnar vann hann með sínum ein- dæma dugnaði að velferð þjóðar sinn- ar sem skáld og sagnfræðingur, skóla- maður og prestur. Kirkjan, sem er mjög veglegt minnismerki, er byggð í „gotneskum stíl“; hún var vígð árið 1940. í bygginguna fóru um 6 millj. af múrsteinum, sem voru meira og minna tilhöggnir og handslípaðir. Hún rúmar um 3 þús. manns. Af öðrum byggingum má ngfna lista- safnið með t. d. málverk eftir Remb- randt og allt til nútima abstrakt mál- Hljómleikasalur útvarpsins og orgelið mikla ara. Svo er þjóðminjasafnið með geysi- mikið af gömlum verðmætum t. d. frá brons- og steinöldunum. Fáir af þeim sem heimsækja Kaup- mannahöfn láta hjá líða að fara í Kon- unglega leikhúsið, enda er alltaf góða og vandaða skemmtun þangað að sækja. Leiðin frá Ráðhústorginu liggur eftir Strykinu til „Kóngsins nýjatorgs“, þar sem leikhúsið stendur, með styttur af tveim helztu leikritaskáldum Dana, Oehlenschlager og Holberg, sitt hvor- um megin við innganginn, en þær svara til styttan af Ibsen og Björnson við Þjóðleikhúsið í Osló. En mitt í allri dýrðinni eru einnig skuggahliðar — húsnæðisvandamálin t. d. á Vesterbro. Alls konar glæpir eru tíðir í Kaupmannahöfn, sem telur rúm- lega 1 milljón íbúa, og í flestum tilfell- um er hægt að rekja þá sem beinlínis eða óbeinlínis orsök af húsnæðisvand- ræðunum. Börnin, sem næstum enga staði hafa til ‘að leika sér á, aðra en götuna, unglingarnir, sem ekki geta verið heima innan um alla fjölskyld- una, í kannske einsherbergis ibúð, (stundum búa fleiri en ein fjölskylda /í sama herberginu) sveigjast til alls konar óknytta er síðar geta leitt inn á glæpabrautina. En margt er gert til að afstýra vandræðunum t. d. eru stofn- settir margs konar klúbbar, þar sem unglingarnir geta eytt frístundum sín- um við áhugamál sín. Fyrir skömmu hafði ég tækifæri til að heimsækja svona klúbb, sem starfar á Vesterbro undir umsjá lögreglumanns, sem ung- lingarnir taka algerlega sem félaga sinn og leiðsögumann. Hann sagði mér að þessir klúbbar hefðu gefið góða raun og væru þýðingarmiklir til þess að halda unglingunum frá götu- og knæpu -lífinu. í unglingaklúbb En áður en við kveðjum Kaupmanna- höfn í þetta sinn, förum við sem snöggv -ast til „Mindelunden" í Ryvangen; þar er minnismerki um þá Dani, er börðust fyrir frelsi þjóðar sinnar í síðustu heimsstyrjöld. Við tökum ofan fyrir þeim.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.