Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1954, Qupperneq 23

Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1954, Qupperneq 23
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 299 ALÞJÓÐASKÓLI í PARÍS — Þjóðir þær, sem eru í Atlantshafsbandalaginu, hafa sent mesta fjölda erindreka til »ð- alstöðva bandalagsins í París og margir þessara manna hafa með sér konur sínar og börn. Og þessi börn þurfa auð- vitað að njóta skólavistar eins og önnur börn. Hefir því verið stofnaður sérstakur skóli fyrir þau utan við borgina í St. Germain en-Laye, í sambandi við gagnfræðaskóla, sem þar er. Kennslan í þessum skóla fer aðallega fram á frönsku, en við' skólann starfa einnig kennarar frá hinum ýmsu löndum, sem kenna börnunum á móðurmáli sínu sína eigin tungu, sögu og landafræði. Eru þvi mörg tungumál töluð í þessum skóla og má hann sannarlega kallast alþjóð- legur. — Myndin hér að ofan var tekin þegar skólinn var vígður. Berhöl'ðaði maðurinn er André Marie, kennslumála- ráðherra Frakka, sem kominn var til að vera við vígsluna, en maðurinn með húfuna er skólastjórinn. ur áhaldið á meðan hann er að tala, en leggur heyrnartólið á símatæk- ið um leið og hann hættir að tala. Þegar húsbóndinn kemur heim, er það hans fyrsta verk að reyna plöt- una og hlusta á þau skilaboð, sem þar kunna að vera, máske frá fleiri en einum. Einfaldari áhöld eru þau, sem aðeins svara, en taka ekki við skila- boðum. Skýra þau þá frá því að hægt sé að ná í húsbóndann í öðr- um síma, eða að hann verði kom- inn heim innan ákveðinnar stund- ar. - ji AKMBANDS ÚTVARPSTÆKI í New Jersey hafa menn nýlega smíðað útvarpstæki, sem eru á borð við armbandsúr og hægt er að spenna um úlflið sér. Frá því liggja tvær leiðslur upp í ermina, annað er loftnetið en hitt er þráð- ur í sambandi við lítið hlustunar- tæki, sem stungið er inn í eyrað eins og hverju öðru heyrnartæki. — Með þessu áhaldi er hægt að ná sambandi við útvarpsstöð í 70 km. fjarlægð, og það hefir mis- munandi bylgjulengdir. NÝASTA KLUKKAN Svissneskur úrsmiður og hug- vitsmaður hefir búið til klukku, sem gengur fyrir birtu. Eru í henni ljósnæmar ræmur, líkt og íilmur í myndavél, en áhrif ljóssins á þær halda sigurverkinu gangandi. Ein af þessum klukkum var nýlega til sýnis vestan hafs og vakti fádæma athygli. t_^''t>®®®G'^_J> Geðlæknir var að rannsaka unga stúlku og hún kvartaði um að sig hefði dreymt hræðilegan draum. — Segið mér nú glögglega frá því hvað yður dreymdi, sagði læknirinn. — Mig dreymdi að ég var á gangi á fjölfarinni götu og var ekki með neina spjör á kroppnum nema hatt á höfðinu. — Og fannst yður þetta óbærileg skömm? — Já, þér getið svo sem nærri. Þetta var gamall hattur. ■sk''

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.