Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1954, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1954, Page 14
290 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS fjallakofa sem heitir Tamar og er í 3600 feta hæð. Þegar vér komum á kreik árla r-æsta morguns, blasti við oss fjallið Jalovec, 8674 feta hátt með hamratindum milli hjarn- fanna. Morgunsólin roðaði hæsta tindinn. Þetta fjall ætluðum vér að klífa. Enginn tími er betri til f jallgöngu en morgunstundin, svo vér lögðum á stað fjórir saman. Tveir háskóla- kennarar voru saman um klifur- taug, en við dr. Arvéin um aðra. í miðju fjallinu er hjalli og þver- hnýpt klettabelti allt um kring og þegar maður er kominn upp að rót- um þess, sést ekki tindurinn, og ekki annað en þessi klettaveggur, sem ber kolsvartan við bláan him- in. Og mér var óskiljanlegt hvernig vér ættum að komast yfir hann. Ég hafði aldrei vanizt því á fjallgöng- um að reka fleina í berg og komast upp á þeim. Varð ég því undrandi er þeir drógu upp marga stóra fleina og þungan hamar, í staðinn fyrir fjallahaka. Þetta er nauðsyn- legt þarna, því að grjótið er svikult. Vér komum nú að klettabelti, þar sem hvergi var handfestu né tá- festu að fá og nú kom það upp úr kafinu, að vér höfðum farið villir vegar. En það var ekki viðlit að snúa aftur. Þarna urðum vér að fara upp. Annar háskólakennarinn, Dolan heitir'hann, fór nú að reka fleina í bergið og gekk upp á þeim þangað til hann var kominn upp á brún. Þaðan renndi hann festi til okkar hinna og það gekk eins og í sögu að komast upp, en þó er ekki heiglum hent að fara upp þver- hnýptan klettavegg og ganga á fleinum sem reknir eru inn í laust bergið. Vér vorum nú á stalli og yfir oss gnæfði annað berg, sem slútti fram og virtist alveg ófært. Vér fórum meðfram bjarginu þangað til vér komum að sprungu og upp eftir henni urðum vér að reyna að klífa. Það hefði þó aldrei tekizt ef vér hefðum ekki haft fleinana. Komum vér nú að kletti, sem slútti fram og lokaði sprungunni. Þeir sögðu mér að ganga fyrir hornið og voru dá- lítið kímileitir. Þar var þá glufa, sem náði upp í gegn um klettabelt- ið. Þetta voru sannkölluð leynigöng til þess að komast upp á hjallann. Flest slys, sem verða í fjallgöng- um ske þegar menn eru komnir yfir hættulegustu staðina. Þá er eins og varygð þeirra dvíni. En fjallgöngu- menn verða alltaf að fara jafn var- lega, og það sáum vér bezt nú. Þeg- ar vér vorum komnir upp á snar- brattan hjallann, hvíldum vér og fengum oss brauðsneiðar og vatn úr ferðapelanum. Vér tókum bakpok- ana af oss og lögðum þá í skriðuna. Einn leysti sig þá og gekk fram á brúnina til þess að horfa fram af hengifluginu og svo sneri hann við aftur. Varð honum það þá á að reka fótinn óvart í bakpoka sinn, og pok- inn á stað niður skriðuna. Hann brá skjótt við og ætlaði að grípa pok- ann, en var nærri kominn fram af. Pokinn hentist fram af hengiflug- inu, en maðurinn fleygði sér niður og með því að spyma við fótum og krafsa með höndunum tókst honum að stöðva sig á blábrúninni. Sex klukkustundum seinna komum vér þar sem pokinn hafðí komið niðím- eftir 1800 feta fall. Hann hafði' sprungið líkt og pappírspoki. Qg'það, sem í honum var hafði þeytzt út urri' allt. Niðursuðudós hafði flatzt út og var eins og klessa, glöggt dæmi um þann reginkraft, sem nefnist að- dráttarafl. Varúð, varúð og enn meiri varúð ætti að vera kjörorð allra fjallgöngumanna. FUALLGÖNGUR eru þjóðaríþrótt * í Júgóslavíu. Þjóðin er um tvær milljónir, en 65.000 manna eru í fjallgöngufélögunum. Triglav er það fjallið, sem menn hafa mestan áhuga fyrir að klífa. Um það eru margar þjóðsagnir og það kemur einhver draumkenndur löngunarsvipur á alla þegar það er nefnt, eða þegar þeir syngja söngvana um það. Hvarvetna í fjöllunum má sjá rauðar málningarslettur hingað og þangað á grjótinu. Þessi merki eru til leiðbeiningar fyrir fjallgöngu- menn. Sumum kann að virðast það nokkuð barnalegt, en það er mjög villugjarnt þarna í fjöllunum og auðvelt að komast í sjálfheldu fyrir þann, sem ekki nýtur neinnar leið- beiningar. Gaman var að ganga á fjallið. Leiðin lá fyrst um Trenta-dalinn og á aðra hönd var niðurinn í ánni, en á hina bjölluhljómur frá kúm. Við heiðskírt loftið bar bláa og hvassa fjallatinda, og vér klöngr- uðumst yfir stórgrýti. Um fleiri leiðir var að ræða en þessa. Vér hefðum getað farið beint, en þá orðið að klífa 3000 feta þverhnýpi. Vér völdum krókinn. Þar er farið eftir hlykkjóttum smástígum, sem höggnir eru í bergið. Þarna voru og gamlar og ryðgaðar festar að „Lagður vegur“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.