Lesbók Morgunblaðsins - 20.06.1954, Síða 1
Jón Jónsson:
Heimsókn til Haiti
Ilöfuðborgin. Forsetahöllin í miðju.
pORT AU PRINCE er höfuð-
borgin í negralýðveldinu Haiti.
Stendur hún við botn Gonaives
fjarðarins á glæsilegu bæjarstæði.
Fjöllin há allt í kring. Við fyrstu
sýn úr lofti sýnist borgin líka falleg
enda ber þá mest á veglegum turn-
um Notre Dame Basilica og stíl-
hreinni forsetahöllinni. En við nán-
ari kynni kemur í ljós, að glæsi-
leiki er ekki aðal-einkenni Port au
Prince.
Farangurs og vegabréfaskoðun
gekk greiðlega. Allir embættis-
menn kolsvartir, miklir á lofti og
talandi golfrönsku í þokkabót .
Port nu Prince
Ferðamanna hótelin eru öll uppi
í hlíðunum í útjaðri borgarinnar.
Leiðin þangað, frá flugvellinum,
liggur í gegnum aðalbæinn á lág-
lendinu, við fjarðarbotninn. Það
var um tuttugu mínútna akstur að
Hotel Sans Souci, þar sem ég hafði
pantað gistingu. Þykist ég vita að
ég muni hafa haft augun á stilkum
og gapandi munn af forundr-
un alla þá leið. Fyrst og fremst
vakti kvenfólkið athygli mína, þó
ekki fyrir fegurðar sakir heldur
vegna búnaðar og þeirra byrða,
sem það bar. Kerlingar á öllum
aldri þrömmuðu um göturnar, með
heila hestburði af allkyns varn-
ingi á höfðinu. Þær voru hnakka-
kertar og höfðu alveg sérstakt
göngulag til þess að farmurinn
héldi jafnvægi. Sumar voru í
strigaserkjum og leyndi sér ekki
að þeir voru sniðnir úr pokum.
Mátti lesa framan á þeim ýmsar
áletranir, svo sem Pillsbury’s Best
og Ful-O-Pep Laying Mash. Svo
voru heilar hersingar af kven-
mönnum ríðandi klofvega á klyfj-
uðum ösnum. Skildi ég ekki í
fyrstu hverskyns vöruflutninga var