Lesbók Morgunblaðsins - 20.06.1954, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 20.06.1954, Blaðsíða 12
r 424 ? LESBÓK MORGUNBLAÐSINS GUNNAR DAL: Heimspeki Spinoza ólíkar mjög ströndum Kyrrahafs- ins, því að þar er allt bogadregn- ara. Þar eru það stórvaxnar fell- ingar í jarðskorpunni, sem ráða lögun landanna meir. Munurinn á ströndum megin- hafanna kemur af því, að þessir hlutar jarðarinnar, sem þar koma til greina, sýna það sem kalla mætti viðburðabylgju á gagnstæðu fram- vindustigi. Öðrum megin á hnett- inum er viðburðabylgjan að rísa. Hinum megin hnígur viðburða- bylgjan. Öðrum megin er í vexti útrás jarðhitans, mikil og stórkost- leg. Þannig hefur verið á jörðu vorri um hundruð áramilljóna. Sums staðar hefur jarðskorpan hafist upp og hnyklast í meginlönd og fjall- garða. Þar hefur viðburðabylgjan risið. En þegar hitinn hafði eytt sér í slíka atburði, brast sundur jarðskorpan og seig og urðu stór höf og djúp ... Og þannig mun ganga enn á jörðu hér, um hundr- uð heldur en tugi áramilljóna. En þó mun þar koma, að jörðin kóln- ar svo langt inn, að hún hættir að hefjast upp nokkurs staðar. Þess- um útrásum hitans, sem um svo margar milljónir ára hafa orðið, nú í einum stað, nú í öðrum, og hafið upp meginlöndin, verður lokið. Alls staðar mun jarðarhnötturinn síga saman og brezta sundur. En höfin munu minka, af því að vatnið á jörðunni hverfur meir og meir. Og sjálft lofthvolfið mun meir og meir eyðast, lofttegundirnar hverfa í grjót jarðarinnar, líkt og vatnið. Og þar mun koma, að blasa við geimi um alla jörð, rauðleit öræfi, sandar og grjót, allt sundur rifið af gín- andi gjám, heimskautanna milli. Slík mynd er það nú einmitt, sem stjörnufræðingamir sjá, þegar þeir eru að skoða Marz. Hann sýnir oss mynd af jörðu vorri, eins og hún verður eftir svo sem 3—400 míllj- ómr ara. Það, sem merua hafa hald- CPINOZA hafði í æsku sinni num- ið bæði austræna heimspeki Gyðinganna og heimspeki Vestur- landa fyrir sinn dag, einkum Des- cartes. Hann óx upp úr hvom tveggja — en þó er þetta sá texti, sem hann leggur út af. Hann byrjar líkt og Descartes, en fer brátt sínar eigin leiðir. Cogito, ergo sum, hafði Descartes sagt. Og Spinoza er á sama máli! Cogito, ergo Deus est (Ég hugsa, þess vegna er guð til) er næsta spor Descartes, en þar skilja leiðir. Spinoza þótti sú niður- staða enginn heimspekigrundvöll- ur, enginn substans, grundvöllur eða undirstaða. Undirstaða allra hluta hlaut að vera tiL Hana þarf ekki að sanna. Ef menn á annað borð viðurkenna að náttúran í kringum þá sé til — eða að eitthvað sé til, þá hlýtur það að eiga sér undirstöðu. Hún er hinn innsti veruleiki alls sem er til og sá veru- leiki er í öllu. Þess vegna sannar tilveran sjálf að til sé undirstaða. Þessi innsti veruleiki (guð) getur ekki byggzt á neinu nema sjálfum ið vatnsveituskurði, eru hinar gín- andi gjár, sem hlutu að koma fram, þegar hnötturinn gegnkólnaði svo, að hann fór allur að síga saman og bresta sundur. En sögu Marz er miklu lengra komið en sögu jarðar vorrar, eigi einungis af því að hann er eldri, heldur líka af því, að rúm- tak hans er svo miklu minna en rúmtak jarðarinnar, og hann hef- ur því verið margfalt fljótari að kolna. sér. Hugurinn skilur ekki þennan algjöra veruleika (guð) heldur að- eins einhverja eiginleika hans. — Skilningurinn leggur því veruleik- anum til eðli sem er ekki hið al- gilda eðli hans. Undirstaðan á sér þannig eiginleika, sem hugurinn heldur að sé eðli hennar, en eru að- eins brot af veru hennar. Þriðja dráttinn í heimsmyd Spinoza köllum við hér ummyndanir, þ. e. a. s. allar birtingar hins innri veru- leika, undirstöðunnar (guðs) í hin- um ytra heimi. Tilvera þess byggist á einhverju öðru en sjálfu sér og er skynjuð af einhverju öðru en sjálfu sér. — Þetta er skilgreining hinna þriggja þátta í heimsmynd Spinoza: 1) undirstöðunni eða hin- um innsta veruleika; guði. 2) eigin- leikum, 3) ummyndunum. Sú undirstaða allra hluta sem trúarbrögðin kalla guð, segir Spin- oza, hlýtur að vera sín eigin orsök. Ef hún ætti sér aðra orsök, væri sköpuð af einhverju öðru, en sjálíri sér, væri hún ekki undirstaða. — En er hún þá sjálfsköpuð? Hefur hún skapað sig sjálf? Ef svo væri, þá væri hún þó samt sem áður sköpuð og ætti sér því upphaf. En það sem á sér upphaf á sér þá um leið undirstöðu. Þetta þýddi að undirstaðan væri þá til á undan sjálfri sér! En Spinoza á ekki við að undirstaðan (guð) sé sjálfsköp- uð í þessari merkingu. Með því að segja að undirstaðan (guð) sé sjálf- sköpuð (causa sui) á hann við að undirstaðan sé oskopuö; haíi aldrei

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.