Lesbók Morgunblaðsins - 20.06.1954, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 20.06.1954, Side 4
r 4i(j' - LESBÓK MORGUNBLAÐSINS segja ,þá verður það ekki af honum skafið að hann var aðsópsmikili persónuleiki og hann lét eftir sig mannvirki, sem einstæð eru. Menntun hlaut Christophe enga. Þegar hann var orðinn einvaldur, þá rétt gat hann klórað „Henry“ á konungleg bréf og tilskipanir. Á unglingsárunum var hann á tíma- bili til sjós, varð síðan hestastrák- ur hjá hóteleiganda. Eftir það varð hann umsjónarmaður á billiard- stofu. Toussaint kom auga á hinn unga mann í her sínum og gerði hann að undirforingja. Christophe var þá orðinn risi að vexti. Næstu árin segir sagan lítið af honum. Hann kemur aftur fram á sjónarsviðið, sem liðsforingi og hefur honum verið falið að verja Cap Francois á norðurströndinni Le Clerk var að freista þar innrásar en Napóleon hafði falið honum að brjóta alla mótspyrnu á Haiti á bak aftur. Með snarræði og brögðum tókst Christ- onhe að veita innrásarhernum við- nám þannig að tími vannst til að brenna borgina, og le Clerk greip í tómt. Hitasótt hafði leikið her Frakka grátt og nú tók Clerk sjálfur veik- ina. Eftirmaður hans Rochambeau beið lægra hlut í orustum við hina svörtu hershöfðingja, Dessalines, Christophe og Petion, hvern af öðrum. Þessir viðburðir vöktu mikla undrun um allan heim. Þar kom að Rochambeau gafst alveg upp fyrir Dessalines, sem þá varð forseti Haiti og síðar keisari. Þegar Dessalines hafði verið myrtur, varð Christophe forseti. Brátt urðu væringjar með honum og Petion, sem lauk með því að Haiti skiftist í tvent. Stjórnaði Christophe norðurhlutanum frá Cap Francois, sem hann nú nefndi Cap Haitien, en Petion varð for- seti suðurhlutans og hafði aðset- ur í Port au Prince. Hið litskrúðuga veldi Christophe hefst 2. júní 1811 er hann lætur krýna sig Henry konung I. Athöfn- in fór fram með þeirri pomp og prakt, sem hæfði aldarfarinu og negrakónginum. Þar skein á gull- sett klæði, gullkórónu og veldis- sprota. í kringum konunginn sner- ist tíguleg hirð, háaðall með bláu blóði. Þar voru fjórir prinsar, átta hertogar — þar á meðal hertogarn- ir af Limonade og Marmelade — fjöldi greifa og minni háttar aðals- manna, allt dubbað til virðinga sinna af Henry kóngi. Henry hafði kvænst dóttur hótéieigandans, fyrrverandi vinnuveitanda síns. Sú kona varð nú Marie-Louise drottn- ing. Henry tók nú að byggja nýja höf- uðborg þar sem var þorpið Milot. Bygði hann þar margar íburða- miklar hallir, þar á meðal konungs- höllina Sans Souci, sem tók langt fram öllu, sem þekktist í nýja heim- inum. Bygging þessi var fjórar hæðir. íbúð konungs, veizlu- og móttökusalir voru klæddir kjör- viðum, , skreyttir dýrustu vegg- tjöldum og olíumálverkum. Annar búnaður var eftir þessu. Gólfin voru lögð mosaic. í höllinni var kæliveita. Fjallalæk var veitt und- ir gólfin og kom hann fram í gos- brunni í hallargarðinum. Skammt frá höllinni lét Henry gera vand- aða kapellu, þótt ekki væri hann trúmaður. Henry Christophe hafði barist fyrir frelsi þjóðar sinnar en þeg- ar hann var sjálfur kominn til valda, beitti hann slíkri harðstjórn að slíks þekktust ekki dæmi. Svipan var á lofti og fólkið þræl- aði. Laun letinnar var dauði. .En sykurekrurnar gáfu ríkulega upp- skeru og atvinnuvegirnir blómstr- uðu. Ræktun jókst og þorp og bæir stækkuðu. Utanríkisverzlunin óx hröðum skrefum og umheimurinn tók að veita Haiti eftirtekt. Henry konungur var í senn hataður og dáður. Virkið á fjallinu Dessalines hafði lagt drögin að miklu vígi uppi á fjallabrúnum. Það varð hlutskipti Henry að byggja þetta mannvirki, sem stend- ur eins og þögult vitni um þá sál- arlegu umhverfing, sem völd og metorð geta valdið. La Ferriére eins og Henry kallaði virki sitt, minnir að sumu leyti á arnar- hreiður Hitlers, og sennilega hafa sömu öflin gert þessi tvö furðu- verk. Það varð lífstakmark og ástríða Henry að lúka við La Ferriére. Hann varði síðustu æviárum sín- um í þessa byggingu, sem svo varð grafhvelfing hans. Virkið stendur á brún fjallsins Biskupshatturinn, nálega 3000 fet yfir sjávarmáli. Veggirnir, úr grjóti eru tíu feta þykkir og yfir hundr- að fet á hæð. Það var byggt fyrir 10.000 manna setulið en gat rúm- að 15.000 manns, ef á þurfti að halda. Konungsfjölskyldunni voru ætluð rúmgóð salarkynni. Geymsl- ur rúmuðu mörg hundruð tonn af vistum, og þær voru allar fullar á meðan Henry lifði. Þrær og brunn- ar sáu fyrir vatni. Þrem hundruð fallbyssum var komið fyrir í virkinu. Margar þeirra eru þar enn og kynstrin öll af kúlum. Fjörutíu þúsund rifflar voru geymdir í vopnabúri, þús- undir sverða og hnífa. Það má nærri geta hvílíkt þræl- dómsverk það hefur verið að koma byggingarefninu, vopnum og vist- um upp fjallahlíðarnar. Fyndist Henry slælega unnið, þá drap hann sjálfur verkamennina, í bræði sinni. Þúsundir létust af ofreynslu. Hatr- ið á harðstjóranum magnaðist og ráð voru á lögð um að taka hann af lífi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.