Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1955, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
95
dagar hafa liðið á milli þess að líkin
fundust.
rrtfl
SÉRA Matthías Jochumsson orti
erfiljóð eftir séra Guðmund E.
Johnsen. Þar í er þetta, er lýtur
að slysinu og því, hvernig fólk
hugsaði sér að það hefði að bonð:
Ef gaeti talað mállaus mar
hann mundi gefa þetta svar:
„Eg hími hér með hryggð og þrá,
minn herra hvarf í strauminn blá.
Eg sá hans fallinn förunaut,
þá fældist eg á miðri braut.
Minn herra fram á fæti hljóp
er fallins heyrði neyðaróp.
Minn herra hvarf í hrannarflóð
eg heyrði kallað: „Jesú blóð!“
FRÁSÖGN þessi, „Ævilok sr. Guð-
mundar E. Johnsens“, hefur birzt
áður í nokkuð annarri mynd, —
eftir sama höfund — í „íslenzkir
sagnaþættir og þjóðsögur VI., en
er hér nokkru ítarlegri, og auk þess
leiðrétt hér missögn, er þar slædd-
ist með; sú, að lík Jóns á Hrauni
hefði ekki fundizt. Þetta er hér með
leiðrétt. — Heimildarmenn, auk
skráðra heimilda, nokkrir gamlir
Ölfusingar.
Guðlaugur E. Einarsson,
Hafnarfirði.
*^G)®®®G^J>
GRASEYAR OG HÓLMAR
í Flateyarhreppi á Breiðafirði, eru
alls, eftir því sem næst verður komizt:
tilheyrandi Flatey............ 40
— Hergilsey með Oddbjarnar-
skeri .................... 31
— Svefneyum ............... 60
— Hvallátrum .............. 300
— Skáleyum .............. 136
— Sviðnum .................. 22
— Bjarneyum með Stagley ... 11
Samtals 600
(Úr sóknarlýsingu sera Ólafs Sivertsen)
Varnir Evrópu
IHaðurinn sem á að skapa þýzka herinn
Á PARÍSARRÁÐSTEFNUNNI í
október í haust, sat næstur
Adenauer kanzlara miðaldra mað-
ur, breiðleitur, bjarteygur og ákveð
-inn í allri framkomu. Þetta var
Theodor Blank, ráðgjafi kanzlar-
ans í hernaðarmálum, og kanzlar-
inn tók engar ákvarðanir án þess
að ráðgast um það við hann. Helztu
menn ráðstefnunnar, svo sem
Dulles utanríkisráðherra, Mendes
France forsætisráðherra, Anthony
Eden utanríkisráðherra, stjórnmála
menn og herforingjar, sýndu þess-
um manni sérstaka kurteisi. Og
þegar samningar höfðu verið undir-
ritaðir, gekk Gruenther yfirhers-
höfðingi bandamanna rakleitt til
hans til að taka í hendina á honum,
en fréttaljósmyndarar kep.ptust við
að taka myndir af þessum merki-
lega viðburði. Theodor Blank —
fyrverandi húsgagnasmiður, liðs-
foringi, verklýðsleiðtogi og þing-
maður — var allt í einu kominn í
fremstu röð stjórnmálamanna.
Samkvæmt því sem samið var
um á ráðstefnunni, eiga Þjóðverj-
ar að koma sér upp hálfrar milljón-
ar her á næstu þremur árum, og
á hann að vera ein deild í varnar-
her Evrópu. Þessi her verður í 12
hersveitum og er hér um bil fjórði
hlutinn af her Atlantshafsbanda-
lagsins á meginlandi álfunnar. Her
þessi stendur undir yfirstjórn hins
sameiginlega hers, en hann verður
æfður og skipulagður af Theodor
Blank og þeim þýzkum herforingj-
um, er hann velur sér til aðstoðar.
Og einn amerískur hershöfðingi
hefur sagt, að í þessu sé miklu
meiri trygging fólgin, heldur en
Theodor Blank
með samningum og eftirliti af hálfu
hinna þjóðanna.
EGAR Adenauer kanzlari fór að
hugsa um það árið 1950 að
Vestur-Þjóðverjar kæmi sér upp
sérstökum her, þá var honum vel
ljóst, að mikil hætta vgr á því að
herinn lenti undir stjórn manna,
sem enn væru Hitlersinnar. En
kanzlaranum var sízt í hug að slíkir
menn skyldu komast til valda aftur,
til þess a'ð leika sama leikinn og
Hitler lék.
Það þurfti því valinn mann til
þess að sjá um stofnun hins nýa
hers. Og margir urðu hissa þegar
hann valdi Theodor Blank til þess.
Mörgum sýndist sem hann mundi
skorta alla hæfileika til þess að
taka á sig þetta ábvrgðarmikla
starf. En gamli maðurinn vissi
hvað hann fór, og hann hefur jafn-
an sýnt það, að honum hefur ekki
orðið skotaskuld úr því að finna
hæfustu mennina til þess að stjórna
málefnum hins nýa þýzka ríkis. Og