Lesbók Morgunblaðsins - 15.01.1956, Síða 7
LESBÓl MORGUNBLAÐSINS
27
Hér er þess alls ekki getið að
Eiríkur blóðöx komi neitt við sögu
eyarinnar.
Frásagnir af ævi Eiríks konungs,
eftir að hann varð landflótta úr
Noregi, eru af skornum skammti.
Þó er það víst, að Norðymbrar tóku
hann til konungs yfir sig árið 947.
Og árið eftir hefur Egill Skalla-
grímsson komið til hans í Jórvík
og kvað þá Höfuðlausn. En sex ár-
um seinna, eða 954, hefur Eiríkur
tlæmzt frá ríki í Norðymbralandi.
Er hann nefndur seinasti konung-
ur Norðvmbra í enskum ritum.
Þegar hann var orðinn landflótta
lagðist hann í hernað. Er sagt að
hann færi þá til Suðureva og ír-
lands og hefði þaðan lið, og hefði
svo herjað á Bretland (Wales) og
suður um England. En á því sumri
fell hann í orustu.
Heimildum ber nú ekki saman
um hvar hann hafi fallið. Segir
Snorri að hann hafi gengið langt
upp á England og fallið þar í mann-
skæðri orustu fyrir Ólafi kon-
ungi, landavarnarmanni Játmund-
ar Englakonungs. Egils saga segir
að Eiríkur konungur hafi faliið í
vesturvíking, en önnur heimild
segir að hann hafi fallið á Spáni.
Adam frá Brimum segir eftir ensk-
um heimildum að Eiríkur hafi ver-
ið rekinn frá ríkjum af þegnum
sínum og síðan svikinn og drepinn.
f enskum sagnaritum er skýrt frá
falli Eiríks. Segir Símon frá Dur-
ham að hann hafi fallið fyrir
Makkusi Ólafssyni. Matthías frá
Westminster getur líka um Makk-
us, en bætir því við, að Eiríkur
hafi fallið í Stanmore (við landa-
mæri Kumbaralands og Westmore-
lands) fyrir svikum Ósulfs jarls í
Bernikia.
Hér greinir heimildir mjög á um
það hvar Eiríkur hafi fallið. Efttr
frásögn Snorra hefur hann íallið á
sunnanverðu Englandi. Og Snorri
segir líka aS hann ha.fi fariS frá
Bretlandi g herjað suður um Eng-
land. Þá hfur Lundey orðið á leið
hans er hain sigldi bangað suður.
Og að bví thuguðu fór ég að velta
fvrir méravernig á bví stæði að
Lundevinar gefa nú út viðhafnar
frímerki ll minningar um að 1|V>9
ár sé liðit siðan Eiríkur ^11. Gat
það skeð.að þar á eynni liíðu enn
einhver munnmæli urn þennan
seinasta íernað Eiríks konungs og
afdrif hais?
Til beis að fá skorið úr þessu
skrifaði ég ,,póstmeistaránum“ á
evnni o| spurðist fvTÍr um þetta.
Fekk ógsvo bréf frá honum aftur
og er hið á þessa leið:
— Etjfar sanneögulegar heimild-
ir eru um að Eiríkur blóðöx hafi
nokkurn sinni pengið á land í
Lundey En á 10. öM settist víking-
ur nokkir að á Lundev um hríð
og voru í fvlvd með honum útlagar
frá Wales. Þeir gerðu útrásir frá
evnni og (óru ránsferðir bæði um
suðurströid Wales og norðurströnd
Devon. Msnn gizka belzt á að bessi
víkingur aafi verið Eiríkur blóðöx.
En það gjtur svo sem vel verið að
þetta hafi verið menn úr liði hans.
Mr. M^rtin Coies Harman.*) sem
nú er látinn, taldi ærna ástæðu til
að minnast ooinberlega þeirra
tímamóta, er búsund ár voru liðin
frá því að seinasta norræna kon-
unginum í Englandi var stevpt og
það því fremur sem Lundev er
norrænt nafn og sýnir að Norð-
menn hafa verið kunnugir þar. —
★
Um þetta er svo ekki meira að
segja. En mvnd af flugfrímerkjun-
um, sem Lundeyingar gáfu út
(1954) í minningu þess að 1000 ár
voru liðin frá þvf að Eiríkur blóð-
öx fell, fvlgir hér með. Er gaman
að sjá að landaurareikníngur skuli
*)Hann hefir líklega verið eigandi
ayarmnar.
enn vera á eynni, eins og var hér á
íslandi til skamms tíma. Sá er að-
eins munurinn, að hjá oss voru
verðeiningarnar alnir og fiskar, en
hjá þeim eru það lundar. Stóra frí-
merkið er með mynd af Eiríki
bióðöx og verðgildi þess er 3 lund-
ar.
Á. Ó.
Frumefii 101
UÁSKÓLINN í Kalifomíu til-
^ kvnnir að fundizt hafi 101.
frumefnið, en það er ekki úr nátt-
úrunnar ríki og hefur aldrei verið
til hér á jörð fyr. Þetta er frum-
efni, sem mönnum hefur tekizt að
framleiða, og það er ið langþyngsta
frumefni, sem til er, stendur 9
stigum hærra i þyngdarstiga frum-
efna heldur en úraríum. sem er
þyngst af öllum frumefnum jarðar.
Þetta frumefni framleiddist á
þann hátt, að menn tóku frumefnið
99 (sem einnig hefur verið fundið
upp af mönnum) og létu það verða
fyrir skothríð alfa-gneista með 41
milljón volta rafspennu í kjarna-
kljúf háskólans.
Þetta nýa frumefni hefur verið
nefnt „mendelevium" og er ákaf-
lega geislandi. Það var búið til úr
hér um bil 1000 milljón öreindum
af frumefni 99, en það er svo lítið
að það sést ekki með berum aug-
um. Með átta tilraunum tókst vís-
indamönnunum að finna aðeins 17
frumeindir af 101, en þær eru
minni fyrirferðar heldur en mönn-
um er unnt að hugsa sér. Frumefn-
ið geislar sér fljótt út Og breytist
í annað frumefni.