Lesbók Morgunblaðsins - 17.06.1956, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 17.06.1956, Side 5
iESBÓK MORGUNBLAÐSINS 329 PERLAIM Á FESTIIMGU HIMIIMS JARÐSTJARIMAIM SATURIMIJS J^JARLÆGASTA jarðstjarnan, sem inir fornu vísindamenn þekktu, hlaut nafnið Satúrnus, skírð í höfuðið á goði tímans. Þá áttu vísindamenn engar stjörnu- sjár og þess vegna vissu þeir ekki, að þessi stjarna væri sannarlega réttnefnd perla himinsins. Allir hafa heyrt getið um hringa Satúrnus, og það eru einmitt þeir, sem gera hana ólíka öllum öðrum stjörnum í sólhverfinu. Júpíter er miklu stærri og ber að því leyti af öllum jarðstjörnunum. Venus og Marz eru bjartari og tindra með meiri ljóma. En þrátt fyrii það ber Satúrnus af þeim öllum. Hringarn- ir, sem eru umhverfis þennan gul- leita hnött, eiga enga sína líka, og þess vegna ber stjarnan af öllum öðrum. Satúrnus er miklu minni en Júpíter. Þvermál hans um miðlínu er 75.000 enskar mílur, en þver- málið milli skautanna aðeins 67.000 mílur. Hann er líka tvöfalt lengra frá sól, eða að meðaltali 886 milljónir mílna. Og hann fer svo hægt, að hann er 29 ár að fara eina hringferð um sólina. En hann snýst um sjálfan sig einu sinni á hverjum 10 klukkustundum og verður því tímatalið þar með allt öðrum hætti en hér á jörðinni. Þar verða um 25.000 dagar í einu ári. Og ekki mundi auðvelt að skifta því ári í tunglmánuði, eins og hér, því að jörðin hefir aðeins eitt tungl, en Satúrnus hefir níu tungl. Um stærð ber engin jarðstjarn- an af Satúrnus nema Júpíter einn. Þó er Satúrnus svo stór, að 700 jarðir gæti komizt fyrir innan í honum. En hann er ótrúlega létt- ur. Hann er ekki nema 95 sinnum þyngri en jörðin og yfirborðið er harla lauslegt í sér. Aðdráttarafl hnattar fer ekki eingöngu eftir stærðinni, heldur einnig eftir þétt- leika. Tvær jafnstórar stjörnur hafa ekki sama aðdráttarafl. Sú sem er þéttari í sér hefir meira aðdráttarafl en hin. Og þrátt fyr- ir stærð Satúrnusar er aðdráttar- aflið þar svipað og á jörðinni. Mað- ur, sem vegur 200 pund hér, mundi vega um 230 pund á Satúrnusi — það er að segja ef maðurinn gæti staðið föstum fótum á yfirborði hnattarins, en það er með öllu óvíst. Menn vita að mestur þéttleiki er í miðju hnattarins, það sést á því hve mjög hann bungar út um mið- línu, en er flatur til skautanna. Það sést einnig á því hvað snúnings- hraði hans er mikill. Þess vegna hlýtur hann að vera mjög sundur- laus ið ytra. Þetta sannaðist líka 1920. Þá voru tveir stjörnufræð- ingar að athuga Saíúrnus og á með- an gekk hann fyrir fjarlægari stjörnu. Og stjörnuna sáu þeir um hríð í gegn um hann. l/'EGNA þess að Satúrnus er hér um bil helmingi lengra frá sól heldur en Júpíter, mætti ætla að þar væri heljarkuldi. Þetta hefir líka reynzt rétt, mönnum hefir tek- izt að mæla kuldann þar og reynd- ist hann 240 stig neðan við frost- mark á Fahrenheit. Þá er það enn einkennilegt við Satúrnus, að ýmsir hlutar hans snúast með mismunandi hraða. Einn sólarhringur um miðlínu er hér um bil 10 stundir og 14 mínút- ur, en hann getur verið allt að 20 mínútum lengri út við skautin. En þó eru það hringarnir, sem ein- kennilegastir eru og setja einstæð- an svip á Satúrnus. Hægt er að sjá þá í sæmilega góðum sjónauka, en það þarf góða stjörnusjá til þess að geta greint þá sundur. Hefir það þó ekki tekizt að öllu leyti enn. Áreiðanlegt er að hringarnir eru þrír, en þeir geta líka verið fjór- ir. —- Þvermál hringanna er geisilega mikið og hefir mælzt frá brún að brún um 170.000 enskar mílur. Breiddin á yzta hringnum, sem nefndur er A, er 10.000 mílur. Síðan kemur bil, sem er um 1700 mílur á breidd, og síðan hringurinn B, sem er 16.000 mílur á breidd. Bilið milli þeirra er nefnt Cassines-bil, kennt við Jean Dominique Cassine, er fyrstur manna lýsti því árið 1675. Hringarnir A og B eru ekki

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.