Lesbók Morgunblaðsins - 17.06.1956, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 17.06.1956, Page 14
338 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ir fjölda manna í sunnanverðri Kaliforínu. Flugmenn, sem voru á leið til Los Angeles, sáu þær. Her- flugvélar hjá Long Beach sáu þær. Skýrsla kom frá tveimur mönnum í Hollvwood. sem höfðu séð þær. Og bar að auki kom fiöldi manr.a til ’ögreglu og hemaðaryfirvalda með eigin frásagnir um þessar ,.Fljúgandi kringlur11. Daginn eftir komst upp hvað þetta hafði verið. í>að voru eldsnevtis-flutr.ingaflug- vélar, sem voru að koma eldsneyti yfir í herflugvélar á flugi. Þegar þetta er gert, hafa flutningavélarn- ar l'ós og beina því á herflugvélarn ar. Flogið var með litlum hraða. en svo hátt í lofti að ekkeri heyrðist í flugvélunum til jarðar, og ekki sást neitt nema uppliómaðir belg- ir herflugvélanna. Og vesma þess að menn höfðu a'drei séð betta áð- ur, töldu þeir víst að þetta væri UFO, eða ,.Fljúgandi kringlur". Svo er stundum um hreinar og beinar missýningar að ræða, sem stafa af einhverri sjónskekkju, eins og t. d. þegar stjarna, sem menn hafa horft á frá blautu barnsbeini, tekur allt i einu upp á því að þeyt- ast til og frá, eða þegar útblástur frá brýstiloftsflugvélum verður að UFO í augum manna. Sumt er aft- ur á móti ímyndanir einar, menn siá af því að aðrir hafa séð, og af því að þeir vilja sjá. Ef hægt hefði verið að flokka öll fyrirbærin undir þetta, þá hefði ekki þurft á neinni rannsóknar- nefnd að halda. En það eru önnur fyrirbæri, sem valda því, að nánar gætur eru gefnar að öllum UFO t'Jkynningum, bað er þegar skil- ríkir menn halda því fram að þeir h?fi séð eitthvað, og það verður ekki rengt. Slík fyrirbæri voru höfð sér í flokki og kölluð „óþekkt“. Af þeim mörgu þúsundum til- kvnninga um UFO, cem borizt hafa síðan 1947 munu 1?—20% falla undir þennan flokk. Þær tilkynn- ingar eru sem sagt komnar frá skil- ríkum mönnum og studdar nægum upplýsingum. Oft komu álíka tilkynningar og þetta: „Harry Armstrong var í bíl á leiðinni frá Grundy Center til Rienbeck í gærkvöldi og sá þá Jjós. Hann heldur að það hafi verið fljúgandi kringla". Allar slíkar til- kynningar voru settar sér í bók og merktar „Ófullnægjandi upplýs- ingar“. í aðra bók voru settar allar tilkynningar frá fólki, sem þóttist hafa talað við áhafnir „Fljúgandi kringla", fengið að skoða þessi farartæki þar sem þau hefði lent, höfðu ferðast í þeim, eða þóttust vera á slíku farartæki. Slíkt er auð- vitað allt rugl. En hér er sýnishorn af tilkvnn- ingu, sem er studd svo miklum UDnlýsingum, að hún kemur undir „Óþekkt": ÞRÍHYRND FLUGTÆKI „24. júlí 1952 fóru tveir flugfor- ingjar frá Hamilton flugvellinum hiá San Francisco og ætluðu til Colorado Springs. Þeir voru í her- flugvél B-25. Veður var bjart og sá hvergi skýskaf á lofti. Þeir flugu í 11.000 feta hæð eftir „Green 3“ flugleiðinni til Salt Lake City. Kl. 3.40 e. h. voru þeir vfir Carson Sink svæðinu í Nevada. Þá varð annar þeirra var við þrjá hluti í loftinu fram undan og ofurlítið til hægri við þá. Þetta líktist mest þremur F-86 flugvélum í oddaflugi. En ef það hefði verið F-86 flug- vélar, þá hefði þær ekki mátt fljúga svona hátt, samkvæmt flugreglun- um. Þó kemur það fyrir í jafn björtu veðri og nú var, að flug- menn gæta þess ekki mjög ná- kvæmlega hve hátt þeir eru á lofti. Örfáum mínútum seinna var B-25 komin svo nærri að þessi flugtæki sáust glöggt. Það voru ekki F-86 flugvélar .Þetta voru þrír þríhyrn- ingar, silfurgljáandi og á þeim var hvorki stél né flugmannsklefi. Yf- irborðið var alveg slétt, nema hvað upphleypt rönd lá frá trjónunni og aftur úr. Rétt um leið sveigðu þessar þríhyrnur til vinstri og þutu fram hiá B-25 með geisilecum hraða. Flugforir.gjarnir gizka á að hraði þeirra hafi verið þrefaldur á móts við flughraða F-86 flugvéla. Þær fóru fram hjá B-25 í 400—800 metra fjarlægð, svo að þær sáust vel“. — Þegar flugforingjarrir komu til Colorado Springs til- kynntu þeir þetta þegar í stað. Þeim var sagt að líklega hefði þeir séð F-86 flugvélar, en þeir vorr nú ekki á því, þeir þekktu vel þær flugvélar og rugluðu þeim ekki saman við annað. Þá var hafin rannsókn. Flugstjórn hersins segði að engar F-86 flugvélar hefði ver- ið á flugi á þessum slóðum og eng- ar aðrar flugvélar. En þar sem flugforingjarnir höfðu sagt að flugtæki þessi hefði verið þríhyrnur, var betta atriði rannsakað sérstaklega. Kom þá upo úr kafinu að allar inar silfurlitu þríhyrndu flugvélar hersins voru á austurströndinni um þetta leyti, en hinar, þær blámáluðu, voru á vest- urströndinni langt frá Carson Sink. Nú kemur það stundum fyrir að loftbelgir sýnast þríhyrndir og var því leitað upplýsinga í því efni. En engir loftbelgir gátu hafa verið á bessum slóðum. Þá var tekin skýrsla af flugfor- ingjunum. Það vitnaðist þá að báð- ir höfðu þeir lengi verið flugstiór- ar og þeir voru svo hátt settir, að þeim átti að vera kunnugt um allt, sem vitað er í Bandaríkjunum um hvers konar flugtæki. hvar sem er í heiminum. Kunningjar beggja höfðu séð „Fljúgandi kringlur“, en þeir höfðu báðir dregið í efa að það gæti verið rétt. En eftir bessa sýn voru þeir á öðru nrib. Enginn veit hvað það var sém f í

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.