Lesbók Morgunblaðsins - 29.07.1956, Qupperneq 1
26. tbl.
Sunnudagur 29. júuí 1956
XXXI. árg.
Vfö Eyrarsund II.
tlRÓARSKELDA OG HLEIÐRA
CTÓR tré með víðum laufkrónum
luktu um garðinn hennar frú
Holm á Friðriksbergi, og þar voru
einnig rósatré með gulum og rauð-
um rósum og lagði ilminu af þeim
um garðinn. Þarna drukkum við
oft kaffi þegar gott var veður. En
til hliðar við húsið var bílgeymsla
og þar átti frú Holm svo að segja
nýan Hillman, og hún var ekki
spör á hann. Varla kom fyrir sá
dagur að hún byði okkur ekki í
ökuíerð með sér, stundum innan
borgar, stundum langar leiðir um
Sjáland, svo að við fengjum að sjá
náttúruíegurð þess.
Danmörk er kölluð „brosandi
land“ og á það eigi sízt við um Sjá-
land. En það er komið norðan úr
Svíþjóð. Þegar Óðinn kom til Norð-
urlanda settist hann fyrst að í
Óðinsey á Fjóni (Odense). Þá sendi
hann Gefjun norður yfir sundið,
líklega á njósn, því að hún klæddist
farandkonu gerfi. Hún kom til
Gylfa konungs í Svíþjóð og gaf
hann henni að launum skemmtun-
ar sinnar eitt plógsland í ríki sínu,
það er 4 öxn drægi upp dag og nótt
Dómkirkjan að lnnan.
Hún tók þá 4 öxn norðan úr Jötun-
heimum, en það voru synir jötuns
nokkurs og hennar, og setti þá fyrir
plóg, en plógurinn gekk svo breitt
og djúpt, að upp leysti landið, og
drógu öxnarnir það land út á hafið
og vestur og námu staðar í sundi
nokkru. Þar setíi Gefjun landið og
gaf nafn og kallaði Selund. Og þar
sem landið hafði upp gengið, .var
þar eftir vatn; það er nú Lögurinn
kallaður í Svíþjóð, og liggja svo
víkur í Leginum sem nes í Selundi.
Til minningar um þetta hafa Danir
reist í Kaupmannahöfn mynd
mikla af Gefjun og nautunum, og
má segja að oft hefir verið reist
minnismerki af minna tilefni.
Sjáland er flatt mjög og er þar
fjöldi vatna. Þar eru skógar og
víðar akurlendur. En hvar sem far-
ið var virtist mér ég sjá sama
landslagið. Það er að vísu brosandi,
en brosið er tilbreytingalaust, hver
staðurinn sem annar, nema þar sem
þorp eru eða borgir.
Sunnudaginn 3. júlí ókum við
til Hróarskeldu og er talið að þang-
að sé rúmlega 30 km. leið frá Kaup-
mannahöfn. Borgin stendur fyrir
botni Hróarskeldufjarðar, og þó
snertuspöl frá honum. Halda menn
að fjörðurinn hafi verið lengri
fyrrum. Nokkrar hæðir eru þarna