Lesbók Morgunblaðsins - 29.07.1956, Side 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
417
Snœbjörn Jónsson:
Hver var hún?
All houses wherein men have
lived and died / Are haunted
houses. Lonffellow.
AFT hefi ég brotið heilann um
það, hvað því hafi valdið að
löngu áður en ég vissi nokkuð um
enska tungu eða hafði heyrt nokk-
urt enskt orð, heillaði hún mig til
sín. Enginn maður í sókninni kunni
ensku og sennilega var þar ekki
ensk bók til í þá daga, en þá var
ég ennþá bara lítið barn er ég hét
því með sjálfum mér, að ætti ég
þess nokkru sinni kost að læra
nokkuð, þá skyldi ég læra ensku.
A þessu veit ég að ég fæ aldrei
skýringu, a. m. k. ekki í þessu lífi.
Má vera að hinumegin verði yfir-
sýnin stærri.
Þegar að því kom að ég færi til
Englands til þess að nema þar, var
það ætlun mín að fara til Oxford
og ganga á Ruskin College. Um
hann hafði ég lesið í Kringsjaa. Svo
Oman að liggja? Hversu lengi
munu lifnaðarhættir haldast hér
óbreyttir?
Tracial Oman hefir engin landa-
mæri á vestræna vísu. Hvaða þýð-
ingu gat það haft að setja landa-
mæri í vatnslausri og óbyggðri sand
-auðn? En nú hefir vonin um að
olía finnist þarna gert „konungana"
uppvæga að fá einhver landamæri.
Það verður erfitt og vandasamt
verk að ákveða þau. Og skyldi svo
fara að „ið fljótandi gull“ finnist
hér einhvers staðar undir sandin-
um eða undir sjónum, þá verða um
leið endaskipti á öllu hér.
sótti ég um skólavist (eða öllu held-
ur sótti Eiríkur gamli Magnússon
fyrir mína hönd; voru það ráð
Björns Jónssonar) og fékk afr svari
eyðublað eða eyðublöð, er útfylla
skyldi. Þá voru skipagöngur strjál-
ar og nú var orðið naumt um tíma
ef ég átti að bíða eftir öðru bréfi.
Leitaði ég þá til Jónasar Jónsson-
ar frá Hriflu, er ég hafði aldrei fyrr
talað við, en hann hafði verið í
Ruskin College. Hann réð mér til
að svara formfestu skólans með því
að sækja hann alls ekki, heldur
Central Labour College í London.
Þar þekkti hann flesta kennarana
og lét mig hafa bréf til þess að færa
einum þeirra. Gekk síðan allt eins
og í-sögu. En fyrir þetta er ég síð-
an þakklátur bæði Jónasi og for-
sjóninni, því það varð mér til hinna
mestu heilla. Reyndist og orðstír
Jónasar mikill hjá þeim mönnum
á Englandi, körlu.m og konum, er
honum höfðu kynnzt, en umfram
allt á meðal kennara hans og skóla-
bræðra. Hjá öllu slíku fóllci naut
ég hans, en varð sífellt að vera að
leiðrétta þann eðlilega misskilning
að hann væri frændi minn. Ekki að
mér hefði þótt minnkun í því,
heldur var það hitt, að hverja sögu
verður að segja eins og hún geng-
ur.
Svo liðu tímar og ég sótti þenna
sama skóla í annað sinn. Og enn
leið og styrjöldin kom. Þegar
skammt var á hana liðið, höfðu
margir enskir skólar lokað sökum
þess, að bæði nemendur og kenn-
arar höfðu fengið öðru að sinna. I
september 1916 var svo komið, að
úr Central Labour College, sem var
heimavistarskóli, voru allir nem-
endur farnir, og af kennurunum
voru aðeins tveir eftir, annar þeirrz
þó á förum í herinn. Hinn var aldr-
aður maður, Alfred J. Hacking, á
sjötugsaldri (d. 1922). Hann var
enskukennarinn, ágætur maður,
stórlærður og alúðarvinur minn;
höfðum við ávallt skipzt á bréfum
eftir fyrstu dvöl mína í skólanum.
Enda þótt hann væri mikill gáfu-
maður, var hann í sumum efnum
barnslegur, eða jafnvel allt að þvi
barnalegur. Ekki sýndist það ráð-
legt að hann væri dag og nótt ein-
samall í hinu mikla húsi. Flutti ég
nú þangað og var þar allan vetur-
inn til aprílloka 1917.
Þetta var mér í allan máta mjög
hagkvæmt. Skólahúsið (11 og 13
Penywern Road) er að heita má
alveg við Underground-stöðina í
Earls Court, svo að ekki er þangað
nema einnar mínútu gangur, en
þaðan bein lína, Central Tube
Line, til Holborn, þaðan svo aftur
þriggja mínútna gangur í Strand
House, þar sem ég vann. Rólegt var
þarna og gamli maðurinn skemmti-
legur félagi. Umhverfið var hið
ákj ósanlegasta, yf ir stéttarh verf i.
Má geta þess, að andbýlingur okk-
ar, ninu megin við götuna, var
stjörnufræðingurinn (og dulfræð-
ingurinn) frægi, Sir Joseph Nor-
man Lockyer (1836—1920). Af
húsastílnum álykta ég að Penywerr.
Road muni byggð á síðara helm-
ingi átjándu aldar, eða í síðasta
lagi um 1800. Húsin eru fimm hæða
bygging fyrir ofan jörðu, ákaflega
vönduð, og á neðstu hæð er geisi-
hátt undir loft, raunar líka á annari
hæð, og lofthæð alls staðar mikil.
Herbergi eru stór, og í skólanum
voru þar stórir salir á neðstu hæð.
Borðsalur og eldhús voru í kjall-
ara..
Mr. Hacking hafði svefnherbergi
á annarri hæð og vissu gluggarnir