Lesbók Morgunblaðsins - 19.08.1956, Qupperneq 8
460
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Við Eyrarsund IV.
*
R í R eru þeir staðir í Kaup-
mannahöfn, er eg mundi ráð-
leggja sumargestum að skoða,
fremur öðrum. Það er Grasgarður-
inn (Botanisk Have), Dýragarður-
inn og Fiskasafnið í Charlotten-
lund. Aliir þessir staðir mega kall-
ast náttúrufræðilegar stofnanir,
hver I sínu sviði, þar sem menn
geta fengið meiri fræðslu á stutt-
um tíma heldur en með lestri
margra bóka. En auk þess er hvergi
skemmtilegra að koma, því að svo
margt merkilegt ber þar fyrir augu,
að menn verða þess ekki varir
hvernig tíminn líður. Með því að
skoða þessa staði hafa menn eigi
aðeins ferðast til Kaupmanr.ahafn-
ar, heldur svo að segja um allan
heim og kynnzt gróðurfari og inu
furðulega dýralífi í löndum, sem
þeir fá aldrei augum litið. Fyrir
íslendinga er þetta sérstaklega
lærdómsríkt, vegna þess hve gróð-
urfar og dýralíf er hér fáskrúðugt.
Snöggva heimsókn mundi ég
kalla að eyða degi á hverjum þess-
ara staða, en þeim dögum er vel
varið, og þykir mér líklegt að marg-
ir vildu koma þangað aftur. En
fyrir þá, sem ekki hafa séð þessa
staði, skal nú sagt nokkuð frá
Dýragarðinum og Fiskasafninu.
DÝRAGARÐURINN
Hann er nú bráðurn hundrað
ára, var opnaður almenningi í
fyrsta skipti 20. septembsr 1359.
Hann var stækkaður 1872 og náði
þá yfir 7 hektara stórt svæði úti
á Friðriksbergi. Afmarkast hann af
Hróarskelduvegi að sunnan og Fas-
anvegi að vestan (sá vegur er
kenndur við fasanabúrið, sem er
rétt við veginn). En að norðan og
austan liggur að honum inn fagri
Frederiksberg Have, og má ganga
í gegn um garðinn inn í Dýragarð-
inn.
Sunnan við Hróarskelduvsginn
er Söndermarken, þar sem Grön-
dal gekk oft sér til skemmtunar á
Hafnarárum sínum. „Þar naut eg
oft náttúrunnar og fuglasöngsins
og blómanna, og þar var einn hóll,
sem eg nefndi Byronshól; í honum
stóðu tólf tré í hring og skyggðu
laufin yfir; þar sat ég oft á bekk
og horíði út yfir landið milli
trjánna. Þar sátum við Inga oft og
um þessa staði gengurn við og und-
um okkur“, segir hann í ævisögu
sinni. Gröndal haíði glöggt auga
fyrir fegurð náttúrunnar og á
þessu má nokkuð marka hvernig
þessi uppáhaldsstaður hans er. í
fyrra var stórri spildu af Sönder-
marken bætt við Dýragarðinn. —
Voru þá gerð neðanjarðargöng þar
á milli undir Hróarskelduveginn.
Þessi nýa viðbót er eins og þrí-
hyrna í laginu og verður skipulag
þar með nokkuð öðrum hætti en í
gamla garðinum. Verður þar með-
al annars stór leikvöllur, þar sem
fólk getur komið ungum börnum
sínum fyrir á meðan það skoðar
garðinn. Ekki hefir enn verið flutt
nema íátt eitt af dýrum í þennan