Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1957, Qupperneq 11

Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1957, Qupperneq 11
LESBÓK MORGUNBLAÐ SINS 39 birtu stjarnanna, og þetta var orsök þess hvað mönnum skjöplaðist í út- reikningum sínum á ljósmagni blossastj arnanna. Gasský eru einnig dreifð um geimhvelið milli stjarnanna. Þau eru gegnsæ, nema þegar þau eru í nánd við mjög heita sól. Útbláir geislar frá sólinni verða að sýni- legum ljósgeislum í gasinu. Þetta er hin alkunna „fluoroscent“-lýs- ing. Björtu gasþokurnar eru „fluoroscent“-lj ós himingeimsins. Stjörnufræðingar eru nú að kom- ast á þá skoðun að stjömur muni skapast úr þessum rykskýum og gasskýum. Þau dragist saman, verði þéttari og þéttari, og jafn- framt aukist hitinn í þeim, þangað til hann brýst fram sem birta. Birta allra sólna, þar á meðal sólar vorrar, stafar af kjamorku. Krafturinn kemur frá kjarnaklofn- ingum djúpt í iðrum þeirra, þar sem hitinn er margar miljónir stiga. SMÁSTIRNI Tilgangurinn með ljósmyndun himinhvelsins var sá, að kynnast vorri vetrarbraut og hinum fjar- lægari heimshverfum. Ekki var lögð nein áherzla á að rannsaka sólhverfi vort. En á myndunum komu hér og hvar fram ljósrákir, örmjóar. Þær voru eftir smástimi, sem fóm um loftin með miklum hraða í samanburði við fjarlægari stjörnur. Þessi smástirni ganga um- hverfis sól eftir reglulegum braut- um, og fæst þeirra koma nærri jörðinni. En svo var það aðfaranótt 31. ágúst 1951 að smástirnis varð vart á mynd. Sennilega er það ekki nema um 1% km. í þvermál, en á braut sinni umhverfis sólina fer það inn fyrir braut jarðarinnar. Þetta smástirni hefir því afar mikla þýðingu fyrir nákvæman útreikn- ing fjarlægða innan sólhverfis vors. Sporbrautir jarðar og Geographus umhverfis sólina. Braut þess hefir verið reiknuð og kemur það í námunda við jörðina á þriggja ára fresti. Árið 1969 verður það næst jörðu, eða nær henni heldur en nokkurt annað smástirni, og verða þó fjórar milljónir mílna í milli. Þetta smástirni hefir verið nefnt „Geographus“. Halastjörnur eru laus grysja af ryki og gasi. Þess vegna hefir þeim verið lýst svo að „þær komist næst því af öllum hlutum að vera ekk- ert, og vera þó eitthvað". Þær ganga umhverfis sól á mjög aflöng- um sporbrautum. Við ljósmynd- unina fundust 11 nýar halastjörnur, allar af tilviljun. Ein þeirra var mjög einkennileg, því að hún hafði tvo hala, sem stóðu út af henni í hér um bil réttan vinkil.------ Það var sumarið 1949 að byrjað var á því að ljósmynda himingeim- inn. Þessu verki var lokið 11 maí s.l. og höfðu þá verið teknar og fullgerðar 1758 myndir. Verkið tók nær helmingi lengri tíma heldur en ráð hafði verið fyrir gert. Varð margt til tafar. Sumar myndirnar urðu þeir að margtaka áður en þeim líkaði hvernig þær voru. Slæmt skyggni hamlaði stundum vikum og mánuðum saman. Og þegar tunglsljós var bjart, var ekki hægt að mynda, því að þá kom einsog hula á myndirnar. Eftir sjö ár er nú komið fullkom- ið ljósmyndakort af himinhvelinu eins og það sést frá Palomar. Um 100 háskólar og stjömuvísinda- stöðvar um allan heim, hafa gerzt áskrifgndur að þessu korti. Og þeg- ar farið verður að rannsaka það betur, má vænta ýmissa stórra tíðinda, því að myndirnar fela í sér fjölda rannsóknarefna, sem ekki hefir verið gefinn gaumur enn. Eldspýtnaverzlun DANSKA blaðið „Information“ segir þessa sögu: Maður kom gangandi eftir gangstétt- inni, einn, tveir — einn, tveir. Hann nam staðar hjá sölutumi og þegar röð- in kom að honum sagði hann: — Eg ætla að fá einn eldspýtna- stokk. — Gerið svo vel, hann kostar 12 aura, sagði afgreiðslustúlkan. — Bíðum nú við, það er réttast að ég fái tvo stokka. — Gerið svo vel, þeir kosta 25 aura, sagði stúlkan. — 25 aura? endurtók maðurinn. — Já, þeir kosta 25 aura. — Nú, mér var samt kennt í skólan- um að tvisvar sinnum 12 væri 24. — Já, en stokkarnir kosta 25 aura. — Finnst yður það ekki undarlegt? — Jú, en svona er nú þetta, sagði stúlkan. — f>á ætla eg ekki að fá neina einn stokk — 12 aurar, gerið svo vel. Og maðurinn helt áfram för sinni — einn, tveir. En þegar hann hafði gengið svo sem fimm eða sex skref, þá sneri hann við — einn, tveir! Og svo gekk hann að sölutuminum — einn, tveir, einn tveir! — Hvers óskið þér? spurði stúlkan. — Eg ætla að fá einn eldspýtna- stokk, einn af þessum sem kosta 13 aura. — Gerið svo vel, sagði stúlkan og brosti ofurlítið. Það em aðeins 12 aurar. Einn eldspýtnastokkur kostar 12 aura. — Þakka yður fyrir, sagði maðurinn og brosti líka, því að hann var sér þess meðvitandi að hafa gert góð kaup. Þetta er sönn saga og gerðist hér í Danmork nýlega.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.