Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1957, Síða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
tM
Salthúsið mikla í
Reykjavík brennur.
Eldur kviknaði í fortjaldi í Bíóhöll-
inni á Akranesi. Þar var þá skemmtun
Gagnfræðaskólans. Fyrir snarræði um-
sjónarmanns tókst að afstýra stór-
slysi (9.)
Brann nýlegur leigubíll á veginum
fyrir sunnan Hafnarfjörð (12.)
Brann til ösku elzta húsið í Súg-
andafirði, svonefnt Jónshús. Þar bjó
vertíðarfólk og missti allt sitt (13.)
Brann íbúðarhúsið að Hraunsnefi í
Norðurárdal. Fólk bjargaðist nauðu-
lega, en engu varð bjargað af innan-
stokksmunum (13.)
Bílaviðgerðastöð í Njarðvíkum brann
til grunna og þar inni tveir bílar,
vélar og áhöld (19.)
íbúðarhús á Hvalsnesi í Skefils-
staðahreppi brann til kaldra kola með
öllu, sem í var. Eldurinn barst svo
í fjós og hlöðu og brann hvort tveggja,
en gripum var bjargað. Konan var
ein heima með þrjú ung börn og
sluppu þau nauðulega úr eldinum (22.)
Tveir drengir, 11 og 9 ára, fóru um
borð í gamla hafnarbátinn Magna í
Reykjavík, til þess að reykja þar sígar-
ettur. Afleiðingin varð sú, að ltviknaði
í bátnum (28.)
Brann frystihúsið í Tálknafirði. —
Hafði eldurinn komið upp í beitinga-
skúr rétt hjá því. Tjón varð mjög
mikið (28.)
Eliur kom upp í íbúðarhúsi í gróðr-
arstöðinni Sólvangi í Fossvogi. Var
fljótt slökktur, en tjón varð talsvert
(28.)
Á bílaviðgerðarstöð í Reykjavík
komst eldur í benzín og brann húsið
og einn bíll, sem þar var inni. Tveir
menn voru þar við vinnu og brenndist
annar mikið (29.)
Bílskúr brann í Keflavík og bíll
sem í honum var (30.)
BÍLSLYS
Tveir litlir drengir urðu fyrir bíl-
um í Reykjavík og slasaðist annar
þeirra mikið (9.)
Drengur á hjóli varð fyrir síma-
kefli, sem bíll dró á eftir sér. Fell
drengurinn í götuna og höfuðkúpu-
brotnaði (23.)
Lítil telpa varð fyrir bíl í Reykja-
vík, en meiddist ekki mikið (23.)
Fimm ára telpa hljóp á bíl sem var
á fullri ferð á götu í Reykjavík. Hún
stórslasaðist (31.)
SLYSFARIR
Stefán Jóh. Stefánsson fyrrv. for-
sætisráðherra, fell í stiga og meiddist
mikið (7.)
Flugmaður í bandaríska hemum á
Keflavíkurflugvelli varð fyrir skrúfu
á kopta og beið samstundia bana (9.)
Sunnudaginn 10. gerði stórhríð á
Hellisheiði. Var þar þá fjöldi fólk*
á skíðum og mikil umferð á veginum.
Hundruð manna gistu í skíðaskálum
um nóttina, en þeir sem náðu ekki
þangað urðu að hafast við í bílum
þar sem þeir voru komnir. Engan
mun þó hafa sakað (12.)
Þrettán ára piltur 1 Reyðarfirði fót-
brotnaði er hann var að æfa skíða-
stökk (12.)
Tveggja ára stúlkubarn á Akureyri
rak vinstri höndina niður í hakka-
vél og tók af höndina (13.)
Gunnlaugur Jóhannesson húsgagna-
smiður á Akureyri lenti með vinstri
hönd í trésmíðavél og tók af þrjá
fingur (13.)
Pétur H. Lárusson kaupmaður á
Akureyri varð bráðkvaddur á morg-
ungöngu utan við bæinn (13.)
Guðmundur P. Kolka útgerðarmaður
í Reykjavík fórst í bílslysi í Skot-
landi (26.)
Tvær stúlkur og tveir piltar I
Reykjavík slösuðust á skíðum og voru
þau flutt til bæarins í sjúkrabíl (26.)
Tveir sjö ára drengir fellu í tjörn-
ina í Reykjavík. Magnús Jónsson
þingsveinn sá til þeirra og tókst hon-
um með snarræði að bjarga þeim (29.)
Belgiskur togari „Van der Wende“
strandaði á Meðallandsfjöru. Björgun-