Lesbók Morgunblaðsins - 14.07.1957, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 14.07.1957, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS J67 fyrir bæinn, aðrir í Mosfellsdal eða Lækjarbotna, en nokkrir alla leið austur yfir Svínahraun, til Marar- dals, sem er skammt frá Kolviðar- hóli. Var Kristmann meðal hinna síðast nefndu. Eigi er með vissu vitað hvort nokkrir voru samferðamenn hans frá upphafi, en síðar um daginn sást hann í fylgd með tveim karl- mönnum og einni konu. Hét hún Metta, en þeir Guðmundur og Sig- urþór. Höfðu þeir allmikið af vín- föngum meðferðis, en vitni báru síðan, að engin merki ölvunar hefðu sést á Kristmanni. Talið er, að hann hafi áður haft iítil kynni af fólki þessu, en þó sennilega ver- ið því málkunnugur. Aldrei verður úr því skorið hvað þeim fór á milli eða hvað það var, sem í raun og veru gerðist. En að áliðnum degi kom gestgjafinn á Kolviðarhóli ríðandi ofan úr Mar- ardal. Sá hann þá tvo hesta með reiðtýgjum á beit í mýrarsundi einu, en enga menn þar nálæga og þótti honum þetta kynlegt. Beygði hann af leið sinni og vildi huga nánar að þessu fyrirbæri. Sá hann þá til ferða þeirra Mettu og Sigur- þórs, en þau komu ríðandi undan hraunbrún, sem er ofanvert við mýrina. Voru þau flaustursleg nokkuð og námu ekki staðar þótt hann kallaði til þeirra. Svöruðu þau stutt, og mest afgæðingi, er hann spurði hvort þau vissu deili á lausahestum þeim, er þar voru skammt frá. Vildi hann fá aðstoð þeirra til að ransaka málið nánar, en þau neituðu því harðlega og héldu sína leið. Grunaði hann þá þegar, af útliti þeirra og framkomu, að ekki myndi allt hreint. Hélt hann nú áfram leitinni að eigendum hestanna og leið ekki á löngu áður en hann fann mann einn sofandi undir hraundranga, í útjaðri mýrarsundsins. Lá sá á bak- inu og reisti upp borðstóla. Vakti gestgjafinn kauða, sem var við skotaillur í fyrstu, svo að engu tauti varð við hann komið. Þetta var Guðmundur, annar ferðafélagi Kristmanns. En er gestgjafinn lit- aðist betur um í mýrinni, sá hann hvar maður lá á grúfu og höfuS hans mestallt niðri í vatnspolli. Hljóp hann til og dró mann þennan á þurt; var hann andaður, en lítt tekinn að stirðna. Sár var á höfði líksins og runnu úr því drefjar hálf- storkins blóðs niður um andlit og bringu. Fötin voru öll ötuð leiri og blóðslettur nokkrar á þeim. Hjá líkinu voru tveir hattar, hálffull púnsflaska, svipa með blóðugum hnúð og ýmislegt fleira smádót. Gestgjafanum brá að vonum illa við þennan fund. Krafði hann nú Guðmund sagna með alvöruþunga og guggnaði hann þá nokkuð, sagði til nafns síns og kvað hinn dána mann vera Kristmann Jónsson, gullsmið úr Reykjavík. En ekki þóttist hann vita hvað valdið hefði dauða hans. Guðmundur féllst á að hjálpa gestgjafanum með líkið heim að Kolviðarhóli. Var ölvíman þá að mestu af honum runnin. Átti hann annan hattinn og eitthvað fleira af því dóti, er hjá líkinu lá. Er gestgjafinn spurði hverju sætti blóðið á svipuhnúðnum, kvað hann Kristmann hafa „þurrkað sér um nasirnar á henni“. Mál þetta vakti feikna athygli, sem von var. En ransókn löggæzl- unnar var bæði frumstæð og klaufaleg, og auk þess eigi gerð fyrr en eftir dúk og disk. Ferða- félagar Kristmanns urðu margsaga fyrir réttinum og er lítið að græða á framburði þeirra. Hin ískyggilega hneigð íslendinga til að bjarga illræðismönnum undan refsingu laganna kom allskírt í ljós, bæðí hjá vitnum og verjendum. Enda þótt valdstjórnin gerði að lokum gangskör að því að komast til botns í málinu, var við svo ramman reip að draga, að ekkert ávannst. Al- menningsálitið taldi ravrnar víst að maðurinn hefði verið drepinn, ea vorkenndi jafnframt morðingjun- i

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.