Lesbók Morgunblaðsins - 14.07.1957, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 14.07.1957, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 379 Frönsku farþegaflug vélarnar af Caravelle gerð þykja skara fram úr að ýmsu leyti og hafa nú nokkur flugfélög, s.s. Air France og SAS fest kaup á þeim. Flugvélarnar hafa tvo hreyfla, (fasta við skrokkinn, sbr. örina) og fljúga með 800 km. hraða á klst. — Þær þykja mjög þægilegar. — 3 lífshættulega. Á sjálfum mér hafði vöðvi annars handleggs tætzt í sundur og blóðið lagaði úr hendinni. Það, að nokkrir okkar komust lífs af, er váfa- laust því að þakka, að Þjóðverjarnir áttu von á strandhöggi mörg þúsund manna. Að við vorum aðeins tuttugu talsins má eflaust teljast orsök þess að óvinirnir álitu strandhögg okkar ein- ungis Herbragð og væntu aðalárásar- innar á hverri stundu. Við gátum ekki borið sigur úr být- um og urðum að reyna að læðast niður að gúmmíbátnum og róa út að kaf- bátnum í skjóli myrkursins. Við höfðum, samkvæmt fyrirskipun- um, dreift okkur yfir stórt svæði á ströndinni og nokkrir hinna særðu voru aðframkomnir og komust ekki alla leið til sjávar aftur. Jerry Joel- Sass sem sjálfur var særður á vinstri hendi, hljóp til baka og sótti þá hvern á fætur öðrum. Hann var hið ágætasta skotmark fyrir leyniskyttur, sem lágu allsstaðar bak við eplatrén og það var líka skotið á hann, en aðeins á leið- inni til hinna særðu. Strax og hann hafði lyft særðum manni á bak séi, hætti skothríðin með öllu. Hvort sem það var nú yfirlæti eða uppgerð hjá Þjóðverjunum, eða beinlínis eftir fyrir- skipunum, veit ég ekki, en Joel-Sass sótti okkur hvern á fætur öðrum, þótt hann vissi, að þeir myndu skjóta a hann á leið hans til hinna sáru félaga, en samt tókst honum að flytja okkur alla til skips. — ★ — ★ — ★ — ★ — Kelvin Lindimann er einn af þekktustu skáldsagna- höfundum Dana. Þess má geta að Isafoldarprentsmiðja h.f. gaf út í fyrravetur skáldsöguna hans, „Rauðu regnhlífarnar". — ★ — ★ — ★ — ★ — I þessu stríði var fjöldi hermanna margra þjóða, sem geystust fram þrátt fyrir hætturnar. En það er mikill mun- ur á því að sækja fram ásamt mörg þúsund félögum eða einn síns liðs, þreyttur og særður, og vera óhjákvæmi lega eina skotmark óvinanna. Slíkt krefst sterkrar skapgerðar. Jerry Joel-Sass hafði verið kvæntur í tæpt eitt ár og eignazt einn son. Hugs- anir hans hafa eflaust snúizt um konu hans og barn. Já, Jerry hafði sterka skapgerð, og ég hélt, að hún væri einhver meðfædd- ur eiginleiki, en sé svo, þá er líka hægt að glata sterkri skapgerð í þessu lífi. PATRECK leit við og horfði á þennan feitlagna vin okkar, sem nú var rétt að byrja á hálfri önd. Augnatillit þeirra mættust og Patrick heilsaði að fyrra bragði. „Þetta er Jerry Joel-Sass og er rétt í þessu að grafa sína eigin gröf með skemmdu tönnunum sínurn", sagði hann glottandi. — „Hann hefur misst flesta vini sína sökum óreglu, en ég býð honum heim svona öðru hverju til að fylla vömbina — og svo hefur hann nú líka bjargað lífi mínu“. „Já, en hvernig gerðist það?“, spurði ég. „Hvers vegna er hann nú svona — langt leiddur?". „Ekki af neinu sérstöku, held ég“, svaraði Patrick, kæruieysislega. — tj-, v„r pjns Qg aj]jr v]taj sæmdur heiðursmerkjum, og maður skyldi haiua, ao si.Kur niaður, hefði svo margt að hugga sig við, þegar smávægileg óþægindi verða á vegi hans. En einn góðan veðurdag, þegar hann kom heim var kerlingin hans strokin með bezta vini hans — og það reið baggamun- inn“. Patrick yppti öxlum og bætti við: „Nei, hann hafði ekki sterka skapgerð". 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.