Lesbók Morgunblaðsins - 14.07.1957, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 14.07.1957, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 377 ár fór hann yfir þvera Evrópu til að sjá Paul Klee-sýninguna í Bern. ITM ÞESSAR fyrrnefndu listgrein- ir fjallar a. m. k. helmingur þeirra bóka, sem fylla bókahillurn- ar heima hjá honum. Bókahillum, sem ná frá gólfi upp í loft, hefir verið komið fyrir af miklu hugviti um allt húsið. Daginn eftir að Stra- vinsky flytur inn í gistihúsher- bergi, eru borðin orðin hlaðin bók- um, sumar hefir hann tekið með sér, aðrar hefir hann keypt. Ferðalög eru einhver bezta skemmtun Stravinskys, en hins vegar taka þau hjónin mjög lítinn þátt í venjulegu skemmtanalífi. Kona Stravinskys, sem er sjálf málari, orðar það svo: „Á þessu heimili er aldrei frí, alltaf unnið“. Stravinsky er mjög trúaður mað- ur. Hann er samt ekki í neinum sérstökum söfnuði, og er það auð- skilið. Eitt sinn er hann fór til skrifta, bað presturinn hann um eiginhandaráritun. Allar venjur Stravinskys og vinnuaðferðir bera vott um löng- un til að vera nákvæmur út í æs- ar. I vinnustofu hans úir og grúir af úrum, klukkum og ýmsum ná- kvæmnistækjum t.d. er þar raf- magnsyddari. Þar er einnig fullt af orðabókum og alfræðiorðabókum, og fari hanmí ferðalag, tekur hann Decca Radar Ltd. í Lundúnum hefir nýlega fullgert nýa ratsjá, sem unnið hefir verið að árum saman. Hún tekur öðrum ratsjám fram 1 því, að í henni sést eigi að- eins framundan, heldur til beggja hliða. Má þar greina hvort önnur skip liggja kyr, eða eru á ferð og þá hvaða stefnu þau hafa. Einnig sést í ratsjánni mynd af skipinu þar sem það er og afstöðu þess til annarra skipa. Með öðrum orðum, hún sýnir „lifandi mynd“ af um- hverfinu, og með þessu ætti að draga mjög úr þeirri hættu að skip að jafnaði með sér um tylft af orðabókum. CTRAVINSKY virðir menningar- legar erfðir mjög mikils, og á síðastliðinni hálfri öld hefir hann ekki síður unnið að því að hefja af nýju til vegs og varðveita tónlist- arform, sem nútíminn hefir hlotið að erfðum, en skapa ný fyrir fram- tíðina. Samt kemur það örsjaldan fyrir, að hann leikur verk eftir sjálfan sig. Igor Stravinsky er nú 75 ára gamall en lítur alltaf á sér- hvert nýtt verk eins og það sé fyrsta verkið, sem hann hefir sam- ið. Hann er nú að vinna að nýju verki. Það kann að verða álíka frá- brugðið ballettinum „Agon“, sem hann hefir nýlega fullgert, og ball- ettinum „Rite of Spring“, sem hann samdi fyrir tæpum fimmtíu árum. Stravinsky, sem er enn einn áhrifa- mesti maðurinn í heimi tónlistar- innar, er atkvæðamikill skapari og djarfur könnuður. (Þýtt og stytt úr The New York Times Magazine). rekist á. Ratsjáin hefir verið reynd á skipum, sem sigla milli Lundúna og Antwerpen og gefist mjög vel. ★ ★ ★ ★ ★ Eftir því sem segir í tímaritinu „Advertising Age“ þá voru 867 vörutegundir að meðaltali í hverri nýlenduvöruverslun árið 1928. En árið 1955 voru þær orðnar 4723. — Fyrir 20 árum voru á boðstólum 16 tegundir kornmatar, en nú eru þær orðnar 91. Af nýum vörum má nefna 149 tegundir af frystum matvælum. Ilý ratsjá — Vörutegundum fjölgar i

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.